Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 68
HM 2022 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu mætir Rúmeníu í J-riðli undankeppni HM 2022 á Ghencea- leikvangingum í Búkarest í Rúmen- íu í kvöld. Allir leikmenn íslenska liðsins eru klárir í slaginn en Viðar Örn Kjartansson þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Þetta stað- festi landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson, þjálfari liðsins, á fjar- fundi með blaðamönnum á þriðju- daginn. Ísland er með 8 stig í fimmta og næstneðsta sæti riðilsins á meðan Rúmenía er með 13 stig í öðru sæt- inu, átta stigum minna en topplið Þýskalands, en Þýskaland er öruggt með efsta sæti riðilsins. Íslenska liðið á enn þá töl- fræðilega möguleika á því að enda í öðru sæti riðilsins sem er jafnframt umspilssæti um laust sæti í loka- keppni HM sem fram fer í Katar dagana 21. nóvember til 18. desem- ber á næsta ári. Til þess þarf Ísland að vinna Rúmeníu í kvöld og Norð- ur-Makedóníu í lokaleik sínum í undankeppninni hinn 14. nóvember í Skopje. Ísland þarf að vinna Rúmeníu með meira en tveimur mörkum til þess að vera með betri innbyrðisvið- ureign á Rúmena. Ísland og Norð- ur-Makedónía gerðu 2:2-jafntefli á Laugardalsvelli í september og því dugar Íslandi sigur í Skopje til þess að vera með betri innbyrðisvið- ureign á Norður-Makedóna. Norður-Makedónía er í þriðja sæti riðilsins með 12 stig og mætir Armeníu, sem er í fjórða sætinu með 12 stig, í Yerevan í kvöld. Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli í Skopje og Ísland þarf að treysta á að liðin geri einnig jafn- tefli í Yerevan í kvöld. Í lokaumferð undankeppninnar tekur Armenía á móti Þýskalandi í Yerevan og Rúmenía heimsækir Liechtenstein. Ísland þarf því að treysta á að Þýskaland vinni Arme- níu og að Rúmenía annaðhvort tapi eða geri jafntefli í Vaduz. Endurheimta lykilmann Rúmenía er sem stendur í 41. sæti heimslista FIFA en liðið var í 45. sæti þegar liðin mættust á Laug- ardalsvelli 2. september. Dennis Man kom Rúmenum yfir á 47. mín- útu og Nicolae Stanciu innsiglaðir 2:0-sigur rúmenska liðsins með marki á 83. mínútu. George Puscas og Florin Tanase voru báðir fjarverandi hjá Rúmen- um þegar liðin mættust í september en þeir eru báðir í hópnum fyrir leikina tvo gegn Íslandi og Liech- tenstein. Puscas, sem er 25 ára gamall og leikur með Reading í ensku B- deildinni, er hættulegasti sókn- armaður Rúmena en hann á að baki 24 landsleiki þar sem hann hefur skorað átta mörk. Aðeins Nicolae Stanciu hefur skorað fleiri mörk eða ellefu mörk í núverandi leik- mannahóp Rúmena en Stanciu er miðjumaður sem hefur leikið 52 landsleiki og spilar með FCSB í heimalandinu. Rúmenar eru hins vegar án miðjumannsins Alexandru Mitrita sem er að glíma við meiðsli en hann leikur með PAOK í Grikklandi á láni frá New York City. Mitrita hefur skorað þrjú mörk í sextán lands- leikjum. Þá er Claudiu Keseru, leik- maður FCSB, einnig fjarverandi, en hann var ekki valinn í hópinn af landsliðsþjálfaranum Mirel Radoi. Keseru er 34 ára gamall sókn- armaður sem á að baki 47 landsleiki þar sem hann hefur skorað 13 mörk. Dæmdir af úrslitunum „Ég hefði viljað vera með þrjú til fjögur stig til viðbótar og þá væri möguleikinn enn þá stærri að ná þessu öðru sæti,“ sagði landsliðs- þjálfarinn Arnar Þór á fjarfundi með blaðamönnum á þriðjudaginn. „Ég er mjög sáttur við mikið af því sem við höfum verið að vinna í með hópnum undanfarna mánuði. Það hafa miklar breytingar átt sér stað innan leikmannahópsins síðan ég tók við liðinu en mér finnst við samt sem áður vera á réttri leið. Þjálfarar og lið eru dæmd af úr- slitum og þannig verður það og mun alltaf verða. Tölfræðin úr þeim leikj- um sem við höfum spilað er hins vegar jákvæð að mörgu leyti og ég er ánægður með það. Þetta hafa verið mörg skref sem við höfum þurft að taka og núna er bara að halda áfram,“ sagði Arnar. Arnar Þór skrifaði undir þriggja ára samning við KSÍ þegar hann tók við karlalandsliðinu í desember 2020. „Á meðan möguleikinn er til stað- ar þá höldum við áfram, sama hvað á bjátar. Við ætlum okkur að vinna næstu tvo leiki og svo kemur það bara í ljós hverju það skilar okkur en það er ljóst að örlögin eru ekki í okkar höndum. Þegar ég tók við liðinu stóð til að árið 2022 yrði svokallað þróunarár þar sem markmiðið væri að gera nýtt lið tilbúið fyrir undankeppnina 2023. Þessi þróun og endurnýjun hefur átt sér stað fyrr en við reikn- uðum með en árið 2022 er árið sem við þurfum að brúa bilið og taka stóra skrefið,“ bætti Arnar við. Kemur ekkert annað til greina en sigur í Búkarest - Íslenska karlalandsliðið heimsækir Rúmeníu í undankeppni HM 2022 í kvöld Morgunblaðið/Eggert Laugardalur Albert Guðmundsson í fyrri leiknum gegn Rúmeníu í und- ankeppni HM í september en þá höfðu Rúmenarnir betur 0:2. 68 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021 Olísdeild karla HK – Selfoss ......................................... 23:28 KA – Fram ............................................ 37:33 Víkingur – Haukar ............................... 20:31 Grótta – Stjarnan ................................. 34:32 Valur – FH ......................................... (25:26) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Staðan fyrir leik Vals og FH: Haukar 7 5 1 1 207:174 11 Stjarnan 6 5 0 1 189:174 10 Valur 6 5 0 1 179:148 10 ÍBV 5 4 0 1 144:138 8 Afturelding 6 3 2 1 175:163 8 FH 6 4 0 2 161:145 8 Fram 7 4 0 3 195:194 8 KA 7 3 0 4 190:204 6 Selfoss 6 2 0 4 144:157 4 Grótta 6 1 1 4 155:165 3 HK 7 0 0 7 175:204 0 Víkingur 7 0 0 7 152:200 0 Olísdeild kvenna Valur – ÍBV........................................... 35:22 Staðan: Valur 6 6 0 0 177:132 12 Fram 6 4 1 1 166:150 9 KA/Þór 6 4 1 1 170:155 9 Haukar 6 2 1 3 158:165 5 HK 6 2 1 3 140:149 5 Stjarnan 6 2 0 4 143:157 4 ÍBV 6 2 0 4 157:158 4 Afturelding 6 0 0 6 129:174 0 Þýskaland RN Löwen – Lemgo............................. 30:33 - Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark fyrir Löwen og stal boltanum einu sinni. - Bjarki Már Elísson skoraði 12 mörk fyr- ir Lemgo. Flensburg – Füchse Berlín................. 28:23 - Teitur Örn Einarsson skoraði 3 mörk fyrir Flensburg. Göppingen – Magdeburg.................... 24:25 - Janus Daði Smárason lék ekki með Göppingen. - Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 1 mark. Melsungen – Minden ........................... 25:29 - Elvar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Melsungen en hvorki Arnar Freyr Arnars- son né Alexander Petersson skoruðu. Staða efstu liða: Magdeburg 20, Füchse Berlín 17, Kiel 12, Flensburg 12, Göppingen 11, Hamburg 11, Lemgo 10, RN Löwen 9, Bergischer 9. Danmörk SönderjyskE – Fredericia .................. 26:26 - Sveinn Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir SönderjyskE. Skanderborg – Herning-Ikast ........... 16:29 - Steinunn Hansdóttir komst ekki á blað hjá Skanderborg. Bikarkeppni, 8-liða úrslit: Holstebro – Aalborg............................ 20:30 - Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Frakkland Deildabikar, 8-liða úrslit: Chambéry – Aix ................................... 27:26 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 3 mörk fyrir Aix. Nimes – Montpellier............................ 28:32 - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 1 mark fyrir Montpellier. Svíþjóð Sävehof – Kristianstad ....................... 32:26 - Andrea Jacobsen skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad. Höör – Lugi .......................................... 25:35 - Ásdís Þóra Ágústsdóttir lék ekki með Lugi vegna meiðsla. Sviss Zug – Herzogenbuchsee..................... 38:30 - Harpa Rut Jónsdóttir leikur með Zug. E(;R&:=/D Magdeburg hefur unnið fyrstu tíu leikina í þýsku bundesligunni í handknattleik en í gær vann liðið Göppingen á útivelli 25:24. Ómar Ingi Magnússon var við sama hey- garðshornið og skoraði 9 mörk fyr- ir Magdeburg en gaf einnig 5 stoð- sendingar. Gísli Kristjánsson skoraði 1 mark fyrir Magdeburg. Forskot liðsins á toppnum jókst og er nú þrjú stig því Flensburg vann Füchse Berlín 28:23. Bjarki Már Elísson fór á kostum og skor- aði 12 mörk í útisigri Lemgo á Rhein-Neckar Löwen. Tíundi sigurinn hjá Magdeburg Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markahæstur Ómar Ingi skoraði 9 mörk fyrir Magdeburg í gær. Óvænt frétt barst úr herbúðum kvennaliðs París Saint-Germain í knattspyrnu í gær þegar félagið til- kynnti að leikmaður liðsins, Am- inata Diallo, hefði verið handtekin. Íþróttablaðið L’Equipe segir að Diallo sé grunuð um að hafa skipu- lagt árás á Kheiru Hamraoui sem leikur með henni í Parísarliðinu. Tveir grímuklæddir menn réðust á Hamraoui 4. nóvember og beittu hana ofbeldi. Diallo og Hamaroui eru einnig í franska landsliðinu og í báðum tilfellum keppa þær um sömu stöðuna á vellinum. Óhugnalegt mál komið upp í París AFP París SG Aminata Diallo kom aðeins við sögu gegn Blikum í Smáranum. Valur burstaði ÍBV 35:22 í Olís- deild kvenna í handknattleik á Hlíð- arenda í kvöld 35:22. Valur var yfir 16:11 að loknum fyrri hálfleik og var því með ágætt forskot en stakk ÍBV gersamlega af í síðari hálfleik. Mariam Eradze átti stórleik hjá Val og skoraði 10 mörk úr fimmtán tilraunum. Lilja Ágústsdóttir var næstmarkahæst með 6 mörk. Saga Sif Gísladóttir varði tólf skot í marki Vals og var með 35% markvörslu. Markverðir ÍBV vörðu samtals 9 skot. Marta Wawrzy- kowska varði sex skot og Erla Rós Sigmarsdóttir þrjú skot. Marija Jovanovic var at- kvæðamest hjá ÍBV með 8 mörk og var með 100% skotnýtingu. Lands- liðskonan Sunna Jónsdóttir skoraði 5 mörk fyrir ÍBV. Valur er á toppnum með 12 stig eftir sex leiki og hefur þriggja stiga forskot á Fram og KA/Þór. ÍBV er með 4 stig eftir sex leiki og í næst- neðsta sæti. Liðið er reyndar með jafn mörg stig og Stjarnan. Aftur- elding er án stiga í botnsætinu. sport@mbl.is Stórleikur hjá Mariam Eradze þegar Valur burstaði ÍBV Morgunblaðið/Unnur Karen Hlíðarendi Karolina Olszowa og Sunna reyna að stöðva Mariam í gær. KÖRFUKNATTLEIKUR Subway-deild karla: Smárinn: Breiðablik – Þór Þ. ...............18:15 Höllin Akureyri: Þór Ak – Keflavík.....19:15 Sauðárkrókur: Tindastóll – Vestri.......19:15 Hlíðarendi: Valur – ÍR..........................20:15 HANDKNATTLEIKUR Olís-deild karla: Vestmannaeyjar: ÍBV – Afturelding...18:30 Í KVÖLD! Freyja Karín Þorvarðardóttir er gengin til liðs við kvennalið Þróttar úr Reykjavík í knattspyrnu. Freyja, sem er fædd árið 2004 og uppalin hjá Þrótti í Neskaupstað, kemur til fé- lagsins frá Fjarðabyggð/Hetti/ Leikni. Þá hefur Ída Marín Her- mannsdóttir gert nýjan tveggja ára samning við Íslandsmeistara Vals. Freyja Karín fer til Þróttar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.