Morgunblaðið - 11.11.2021, Side 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2021
50 ÁRA Þórey er Garðbæingur en
á ættir að rekja norður til Siglu-
fjarðar. Hún ólst upp í Smáíbúða-
hverfinu í Reykjavík, var í Hvassa-
leitisskóla alla barnæskuna og
síðan Menntaskólanum við Hamra-
hlíð en hefur búið í Garðabæ sl. 20
ár. Hún er viðskiptafræðingur að
mennt frá Háskólanum í Reykjavík,
löggiltur fasteignasali og er fram-
kvæmdastjóri og einn af eigendum
LANDMARK fasteignamiðlunar.
„Ég hef starfað mikið við sölu- og
markaðsmál, vann lengi hjá Flug-
leiðum og hef unnið frá 2012 við
fasteignasölu. Það er alltaf nóg að
gera hvort sem það er kaupenda-
eða seljendamarkaður, lítið fram-
boð af eignum eins og núna eða
mikið. Starfið er mjög fjölbreytt og
alltaf jafn gefandi og ótrúlega skemmtilegt.“ Þórey sat í stjórn Félags fast-
eignasala en situr nú í fagráði í námi til löggildingar hjá EHÍ.
Áhugamál Þóreyjar eru útivist og almennt heilbrigt líferni. „Ég stunda
mjög mikla hreyfingu, æfi reglulega og geng fjöll af kappi, stunda skíði og
spila golf í alveg frábærum félagsskap góðra vinkvenna. Það er bara allur
pakkinn held ég, alltof mikið af áhugamálum og tíminn aldrei nægur.“ Þórey
er í gönguhóp hjá Tómazi Þór Verusyni leiðsögumanni, en hópurinn telur 20-
30 manns. „Við erum búin að ganga út um allt, hef farið á Hvannadalshnúk
og Birnudalstind, Eyjafjallajökul og Snæfellsjökul í sumar. Næsta sumar er
svo fyrirhuguð ganga á Mont Blanc og margt fleira skemmtilegt.“
FJÖLSKYLDA Maki Þóreyjar er Gunnar Sverrisson, f. 1965, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins Fálkinn-Ísmar. Börn þeirra eru sex samtals:
Sverrir Geir og Halldór Árni, f. 1997, Andri Már, f. 2000, Arnar Már, f. 2001,
Þórunn Hanna, f. 2004, og Thelma Lind, f. 2005. Það er komið eitt barnabarn,
Sigríður Thea Sverrisdóttir, f. 2021. Foreldrar Þóreyjar eru Ólafur Björns-
son, f. 1946, húsasmíðameistari, búsettur í Reykjavík, og Jónína Helga Jóns-
dótir, f. 1946, d. 2015, húsmóðir.
Þórey Ólafsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Dagurinn í dag hentar alls ekki fyrir
samningaviðræður við yfirmanninn eða
aðra sem hafa yfir þér að segja. Gættu
þess að ganga ekki á hlut annarra.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þótt gaman sé að fljúga er nauðsyn-
legt að hafa báða fætur á jörðinni þegar
kemur til þess að ráða fram úr vanda-
málum dagsins.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er engin skoðun svo skotheld
að hún geti ekki breyst vegna nýrrar vitn-
eskju eða einhvers annars. Ef þú kýst að
taka til hendinni skaltu láta verða af því.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Ekki láta sannfæra þig um eitthvað
sem þér er á móti skapi. Þú hefur lagt hart
að þér en munt nú uppskera árangur erf-
iðis þíns.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Einhver óróleiki ríkir á vinnustað þín-
um og þér finnst erfitt að átta þig á stöðu
mála. Allt sem þú gerir í dag mun bæta
heimili þitt, heimilislífið og samband þitt
við fjölskylduna.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það getur verið freistandi að falla
fyrir nýjum hugmyndum. Sýndu tillitssemi
og þá leysast öll mál af sjálfu sér fyrr en
varir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft á öllum þínum góðu hæfi-
leikum að halda til þess að leiða viðkvæmt
fjölskyldumál til lykta. Hafðu þitt á hreinu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Það hefur hver sína skoðun og
þér er óhætt að treysta fyrst og fremst á
eigið innsæi. Búðu þig undir að hlutirnir
fari öðruvísi en áætlað er.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Ekki leggja svo hart að þér við
vinnu að þú finnir þér aldrei stund eða stað
til þess að sinna eigin hugðarefnum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Hamingja er hugsanamynstur.
Reyndu að stunda líkamsrækt þér til
skemmtunar, lesa eitthvað sem heillar þig
og dansa af því að þú ert lifandi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Sýndu þínum nánustu hversu
vænt þér þykir um þá því í raun og veru eru
þau sannindi aldrei of oft kveðin.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú munt komast að því að hæfi-
leikar þínir liggja á mörgum sviðum. Not-
aðu krafta þína til þess að laða nýjan vin
inn í vinahópinn.
taka þessu sjónvarpsleysi illa, þvert
á móti. Félagsstarf hvers konar var
gjarnan sett á fimmtudaga og marg-
ir sögðust fegnir því að fá frí frá
sjónvarpsglápi í júlí enda stór hluti
þjóðarinnar í sumarfríi hvort sem
var.“
Eftir 15 ár í fréttamennskunni í
daga myndbandstækjanna. Þar af
leiðandi var áhorf á fréttir allt að
70% og sama var að segja um
fréttaskýringaþætti. Vegna þess
hve starfsliðið var fámennt var sjón-
varpslaust einn dag í viku (fimmtu-
dag) og allan júlímánuð vegna sum-
arleyfa. „Almennt virtist þjóðin ekki
G
uðjón Einarsson fæddist
í Reykjavík 11. nóv-
ember 1946 og hefur
búið í Vesturbænum
frá barnæsku. Hann
gekk í Melaskólann og Hagaskólann
og þaðan lá leiðin í Menntaskólann í
Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi
árið 1966 innritaðist hann í Háskóla
Íslands og lauk BA-prófi í ensku og
sagnfræði árið 1970.
Sem barn og unglingur var hann í
sveit á sumrin á Hreðavatni í Borg-
arfirði og á menntaskóla- og
háskólaárunum vann hann á sumrin
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur
sem verkamaður, línumaður, verk-
stjóri, vörubílsstjóri og margt fleira.
Haustið 1970, að loknu BA-
náminu, sótti hann um og fékk stöðu
fréttamanns á fréttastofu sjón-
varpsins þar sem hann starfaði
næstu 15 árin, þar af síðustu sjö
sem varafréttastjóri. Starfið fólst í
fréttaskrifum, fréttalestri og um-
sjón með fréttaskýringaþáttum og
umræðuþáttum.
„Ég hafði alltaf haft áhuga á
blaðamennsku og sótti námskeið á
vegum Blaðamannafélags Íslands
en hafði aldrei unnið á fjölmiðli þeg-
ar ég var ráðinn á sjónvarpið 24 ára
gamall. Þá hafði sjónvarpið aðeins
starfað í fjögur ár og meirihluti
starfsmanna ungt fólk undir þrí-
tugu. Eins og gefur að skilja var
þetta afar skemmtilegur vinnu-
staður, metnaðurinn mikill og fólk
tilbúið að leggja á sig ómælda vinnu.
Um þetta leyti voru miklir umbrota-
tímar í þjóðfélaginu sem endur-
spegluðust í fréttaumfjölluninni.
Tólf ára tímabili Viðreisnarstjórn-
arinnar var að ljúka og við tók
vinstristjórn sem flestu vildi breyta,
meðal annars reka herinn úr landi.
Tvö landhelgisstríð við Breta voru
háð með fárra ára millibili. Eldgos í
Heimaey, Heklu og Kröflu og svo
má áfram telja,“ segir Guðjón.
Guðjón rifjar upp að þar sem
þetta var eina íslenska sjónvarps-
stöðin voru allir landsmenn að horfa
á sama efnið samtímis og ef fólk
missti af fréttatíma eða áhugaverðri
mynd eða þætti var það efni að ei-
lífu „glatað“, að minnsta kosti fyrir
sjónvarpinu ákvað Guðjón að söðla
um og réð sig árið 1985 sem rit-
stjóra hjá tímaritaútgáfunni Frjálsu
framtaki sem síðar varð Fróði. Þar
ritstýrði hann vikublaðinu Fiski-
fréttum og tímaritinu Sjávar-
fréttum. Seinna keypti útgáfufélag
Viðskiptablaðsins Fiskifréttir og
Guðjón Einarsson, fyrrverandi fréttamaður og ritstjóri – 75 ára
Í Mývatnssveit Fjölskyldan stödd í Reykjahlíð sumarið 2021. Á myndina vantar Margréti Söru sem býr erlendis.
Vann við fjölmiðla í 47 ár
Hjónin Guðjón og Bryndís við Langasjó sumarið 2020. Fréttamaðurinn Guðjón Einarsson.
Til hamingju með daginn
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS
LAND ROVER
DISCOVERY SPORT
Aksturstölva
Bluetooth
Bakkmyndavél
Fjarlægðarskynjarar aftan
Dráttarbeisli
Hiti í framsætum
Hæðarstillanlegt sæti ökumanns
ISOFIX festingar í aftursætum
USB tengi
Loftkæling
Rafdrifnar rúður
Rafdrifnir hliðarspeglar
Vökvastýri
ABS hemlakerfi
Hraðastillir
Spólvörn
Stöðugleikakerfi
Reyklaust ökutæki
Aðgerðahnappar í stýri
Regnskynjari
Rafdrifin handbremsa
Lykillaus ræsing
Fjarlægðarskynjarar framan
Leðurklætt stýri
Gírskipting í stýri
Raðnúmer 397148
Ekinn 53 Þ.KM
Nýskráður 11/2018
Næsta skoðun 2022
Sjálfskiptur
Dísel
Sjálfskipting
Fjórhjóladrif
Verð kr. 5.690.000