Morgunblaðið - 18.11.2021, Page 4

Morgunblaðið - 18.11.2021, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 01. - 20. DESEMEBER VERÐ FRÁ:96.500 KR. á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn Verð frá 152.500 kr. á mann m.v. 2 fullorðna SÓLARFERÐIR SENDU OKKUR PÓST Á INFO@UU.IS OG FÁÐU AÐSTOÐ VIÐ AÐ BÓKA FRÍIÐ ÞITT VETRARSÓL Á KANARÍ BEINT Í SÓL RÉTT FYRIR JÓL Íslendingar hafa sótt í dásamlegar strendur Gran Canaria áratugum saman og hefur eyjan verið einn vinsælasti áfangastaður Úrval Útsýn í gegnum árin. Betri stað í sólarfrí er erfitt að finna, fyrir alla. Stöðugt hitastig, þægilegt loftslag, hreinar strendur og stórbrotið landslag er eitthvað sem heillar alla! FLUG EINGÖNGU BEINT TIL KANARÍ 49.900 KR.FLUG BÁÐAR LEIÐIR Mikil þörf er á uppbyggingu við Seljalandsfoss til að tryggja öryggi ferðamanna. Þá er bæði þörf á að byggja upp stígakerfi, útsýnispalla og handrið en einnig að byggja upp varnir gegn grjóthruni. Úrbóta er einnig þörf við fossinn Gljúfrabúa, sem er skammt frá Seljalandsfossi. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í hættumati á ferðamannastöðum í Rangárþingi eystra. Skýrslan var unnin af Guðrúnu Guðjónsdóttur, nema í umhverfisfræðum við Land- búnaðarháskóla Íslands. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði náms- manna og unnið í samvinnu við sveit- arfélagið. Fjallað er um Skógafoss, Seljalandsfoss, Gljúfrabúa, Glugga- foss og Landeyjasand, en fyrstnefndu staðirnir eru meðal mest sóttu ferða- mannastaða á landinu. Ekki tilkynnt um grjóthrun Vinsælt er að ganga á bak við Seljalandsfoss og segir í skýrslunni að ætla megi að þeir gestir sem gangi á bak við fossinn geri sér á engan hátt grein fyrir þeirri hættu sem er á grjóthruni úr bergveggnum. „Þrátt fyrir að staðkunnugir hafi vitneskju um að grjóthrun sé nokkuð algengt við Seljalandsfoss er það almennt ekki tilkynnt formlega,“ segir í skýrslunni. Meðal tillagna til úrbóta má nefna skilti sem bendi á hættur, varanlegar tröppur og bætt aðgengi með betri göngustígum, útsýnispalla, ábend- ingar um grjóthrunshættu, reipi eða keðjur til stuðnings, aðgerðir til að verja fólk gegn hruni úr bergveggn- um og að hindra för fólks um efri brún fossins vegna hættu sem skap- ast fyrir fólk sem er fyrir neðan. Síðastliðinn áratug hefur tæplega 20 milljónum verið varið úr Fram- kvæmdasjóði ferðamanna til upp- byggingar innviða við Skógafoss. Þessar framkvæmdir hafa leitt til þess að dregið hefur verulega úr hættu þar. aij@mbl.is Gera sér ekki grein fyrir hættunni - Vinsælt að ganga á bak við Seljalandsfoss Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vinsæll Fjöldi ferðamanna skoðar Seljalandsfoss á hverju ári. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Suðurland Endurtaka þarf ferli sameiningar og kjósa aftur. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Takmarkaður áhugi virðist vera hjá þeim sveitarstjórnum á Suðurlandi þar sem íbúarnir samþykktu sam- einingu í haust að fara í nýjar sam- einingarkosningar. Frumkvæðið nú kemur frá sveitarstjórn Skaftár- hrepps en þar var fyrri sameining- artillagan samþykkt með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða. Sveitar- stjórn Rangárþings ytra er að kanna vilja íbúa til sameiningar og þá hvernig sameiningu þeir vilja skoða. Tillaga um sameiningu fimm sveit- arfélaga á Suðurlandi var samþykkt af meirihluta íbúa í fjórum sveitar- félögum en felld í einu. 75% íbúa Skaftárhrepps sögðu já og sömuleið- is 51-52% íbúa Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Mýrdals- hrepps. Aftur á móti sögðu 80% þeirra íbúa Ásahrepps sem þátt tóku nei. Þarf nýja umferð Samkvæmt sveitarstjórnarlögum hefði sveitarstjórnunum fjórum þar sem sameiningartillaga var sam- þykkt verið heimilt að ákveða sam- einingu, án Ásahrepps. Allar sveit- arstjórnirnar höfðu hins vegar lýst því yfir fyrir atkvæðagreiðsluna að þær myndu ekki nýta þessa heimild. Þurfa því nýjar sameiningarviðræð- ur og eftir atvikum ný atkvæða- greiðsla að fara fram. Sveitarstjórn Skaftárhrepps vildi láta reyna á það. Bjarki Guðnason, oddviti Skaftár- hrepps, segir að aðalástæðan fyrir frumkvæði sveitarstjórnarinnar sé sá afgerandi vilji sem íbúar þar sýndu til sameiningar. Hins vegar virðist takmarkaður áhugi hjá hinum sveitarstjórnunum og telur hann ólíklegt að gengið verði til nýrra sameiningarviðræðna í vetur. Stutt sé til kosninga til sveitarstjórna. Sveitarstjórn Rangárþings ytra ákvað að fresta afgreiðslu erindis Skaftárhrepps á meðan fram færi könnun á afstöðu íbúa sveitarfé- lagsins til sameiningar. Spurt verður hvort íbúar vilji skoða umrædda sameiningu, sameiningu með Rang- árþingi eystra eða láta staðar numið í sameiningarmálum. Þegar erindi Skaftárhrepps var tekið fyrir í sveitarstjórn Mýrdals- hrepps var bókuð sú afstaða að eðli- legt væri að bíða með frekari við- ræður að svo stöddu og þess í stað lögð áhersla á framgang verkefnis- ins Stafrænt Suðurland. Markmið þess er að móta eins konar stafrænt ráðhús og þjónustuver fyrir sveitar- félögin. Lítill áhugi á nýjum kosningum - Enn rætt um sameiningu á Suðurlandi - Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hafnar erindi Skaftárhrepps um nýjar viðræður - Sveitarstjórn Rangárþings ytra kannar vilja íbúa með formlegum hætti Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hundruð ef ekki þúsundir græn- lenskra rjúpna komu til landsins í haust. Greiningar á vængjum veiddra rjúpna staðfesta þetta, að sögn Ólafs Karls Nielsen, rjúpnasér- fræðings og vistfræðings hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands. Hann hvet- ur rjúpnaskyttur til að skila öðrum vængnum af veiddum rjúpum til Náttúrufræðistofnunar vegna ald- ursgreininga á íslenskum rjúpum og eins til að sjá hve víða grænlensku rjúpurnar fóru. Rannsakar holdafar rjúpna Ólafur er nýkominn úr leiðangri í Þingeyjarsýslur þar sem hann fékk að láni frá veiðimönnum 207 ný- veiddar rjúpur og voru þær vigtaðar og mældar. Tilgangurinn er að meta holdafar fuglanna samanborið við fyrri ár. Mögulega eru tengsl á milli heilbrigðis fuglanna að hausti og vetraraffalla. Niðurstöður mæling- anna 2021 liggja ekki fyrir. „Það voru ágætis fuglar þarna innan um, stórir og miklir,“ sagði Ólafur. Hann sagði að í haust hefði frést að rjúpur sem örugglega voru grænlenskar hefðu sest á skip norðan við Ísland. Einnig kom rjúpnahópur til Gríms- eyjar í lok september. Allir þessir fuglar voru alhvítir. Grænlenskar rjúpur verða alhvítar snemma í sept- ember en þær íslensku í lok október eða fyrrihluta nóvember. „Við fundum eina grænlenska rjúpu í þessu safni sem við skoðuðum fyrir norðan og var hún skotin í Öxarfirði. Svo fengum við poka með vængjum níu fugla sem voru skotnir í Ólafsfjarðarmúla og þeir voru allir grænlenskir,“ sagði Ólafur. Útlitsmunur á rjúpunum Hægt er að greina grænlenskar rjúpur frá íslenskum vegna litamun- ar. Fjaðurstafir handflugfjaðranna eru mun ljósari á þeim grænlensku en þeim íslensku. Eins er minna lit- arefni í fönum flugfjaðra græn- lensku rjúpnanna en þeirra íslensku. Grænlenskar rjúpur eru líka með áberandi stærri vængi en þær ís- lensku. Þær grænlensku eru auk þess miklu loðnari um tærnar en ís- lenskar rjúpur og nöglin ljósari á þeim grænlensku. Ólafur segir að grænlenska rjúpan sé farfugl innan Grænlands og ferð- ist milli norðurhéraða landsins og suðurhlutans vor og haust. Væntan- lega hreki fugla af leið í farfluginu og komi þeir þannig til Íslands endrum og sinnum. Ólafur segir að Finnur heitinn Guðmundsson fuglafræðingur hafi leitað að grænlenskum rjúpum í rjúpnakippum á Vestfjörðum á 7. áratug síðustu aldar eftir að rjúpur höfðu sést setjast á skip. Svo virðist að þegar það gerist nái æði margar hingað til lands. Merktar hafa verið um 10.000 rjúpur á Íslandi frá upphafi. Hátt í 2.000 þeirra endurheimtust, allar hér á landi. Verndaráætlun í smíðum Rjúpnaveiðar eru leyfðar 22 daga í nóvember, það er alla daga nema miðvikudaga og fimmtudaga og frá hádegi hvern dag. Nú er ráðlögð veiði rétt yfir 20.000 fuglar eða 4-5 fuglar á mann miðað við að 4-5 þús- und veiðimenn gangi til rjúpna. Umhverfisstofnun vinnur nú í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir rjúpur. Grænlenskar rjúpur komu í haust Ljósmynd/Ólafur Karl Nielsen Fullorðinn karri Myndin var tekin á Norðausturlandi í maí í vor. - Hundruð ef ekki þúsundir rjúpna til landsins - Settust á skip og komu til Grímseyjar - Hafa m.a. veiðst í Öxarfirði og Ólafsfjarðarmúla - Veiðimenn hvattir til að skila vængjum til að kanna útbreiðslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.