Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
V
ið viljum að börn nútímans
spegli sig í draumum þessa
fólks, því einu sinni voru
þetta þeirra draumar sem
þau létu rætast, hvort sem þau voru
vísindamenn, baráttufólk fyrir
mannréttindum, íþróttafólk, listafólk
eða annað. Börnin sjá í bókunum að
þetta er hægt, að þeirra eigin
draumar skipta máli og geta ræst,“
segja þær Sara Lind Guðbergsdóttir
lögfræðingur og Rakel Lúðvíksdóttir
kennari, en þær ásamt eiginmönnum
sínum stofnuðu fyrirtækið Stórir
draumar, sem gefur út þýddar
barnabækur úr bókaflokknum Little
People, BIG DREAMS, eða Litla
fólkið og stóru draumarnir.
„Þetta er bókaflokkur sem hef-
ur farið sigurför um heiminn, bæk-
urnar hafa verið þýddar á þriðja tug
tungumála, enda skemmtilegt fyrir
krakka að fá að fræðast um mismun-
andi einstaklinga sem hafa áorkað
miklu í lífinu og sett mark sitt á
mannkynssöguna. Börnin komast að
því hvað drífur þetta fólk áfram í að
láta drauma sína rætast,“ segja þær
og Sara bætir við að útgáfa þeirra á
bókunum á íslensku eigi upphaf sitt í
því að hún og Stefán maðurinn henn-
ar rákust inn í barnavöruverslunina
Trotters í London árið 2018.
„Þar sáum við þessar bækur og
urðum strax rosalega hrifin og
keyptum tvær bækur á ensku. Við
töluðum um að þetta væru bók-
menntir sem við mundum vilja að
væru aðgengilegar fyrir strákana
okkar. Við gengum með hugmyndina
í maganum í tvö ár, að þýða bæk-
urnar og gefa þær út, og viðruðum
það í fyrra við vinahjón okkar, Rakel
og Gísla,“ segir Sara Lind og Rakel
bætir við að þeim hafi strax litist vel
á hugmyndina. „Við höfðum í fram-
haldinu samband við Mariu Isabel
Sánchez Vegara, spænska rithöfund-
inn og listamanninn sem skrifar
þessar bækur, og fengum íslenska
útgáfuréttinn. Fyrstu sex bækurnar
eru komnar út og næstu sex koma til
landsins í febrúar. Bókaröðin inni-
heldur yfir fjörutíu bækur, svo það
er nóg eftir,“ segir Rakel.
Við viljum hafa erfið orð
Þær segjast hafa reynt að gæta
jafnræðis þegar velja þurfti hvaða
tólf bækur þau ættu að gefa fyrst út.
„Við völdum fólk frá ólíkum
löndum heims, frá ólík-
um tíma og karla og
konur af ólíkum kyn-
þáttum. Yngsti
einstaklingurinn og sú
sem er næst okkur í
tíma er aðgerðasinninn
Greta Thunberg, en
elstu einstaklingar eru
löngu látnir, fólk fætt á
nítjándu öld, til dæmis
Marie Curie eðlisfræð-
ingur. Við leggjum líka í
vali okkar áherslu á
dreifingu ólíkra mark-
miða og drauma þessara
einstaklinga, tvö standa
fyrir réttindabaráttu
afrískættaðra Bandaríkja-
manna, þau Martin Luther
King Jr. og Rosa Parks, en
hin pakistanska Malala
Yousafzai berst fyrir því að
mega ganga í skóla. David
Attenborough er náttúru-
fræðingur og Steve Jobs
var einn þriggja stofnenda
Apple.“
Þær segjast í þýðing-
unni hafa lagt áherslu á að
textinn væri ekki um of ein-
faldaður.
„Við viljum hafa erfið
orð og hugtök inn á milli,
einmitt til að börnin spyrji um það
sem þau ekki skilja. Slíkt eflir orða-
forða og fer inn í málvitundina. Þó
ekki sé mikill texti á hverri síðu, þá
er hægt að spjalla mikið út frá hon-
um og myndunum. Til dæmis um
réttindabaráttu
þeldökkra. Sjö ára
dóttir mín var
óskaplega hissa á
því að Rosa Parks
hefði ekki mátt sitja á ákveðnum stað
í strætó og hún þurfti mikið að
spyrja og spjalla. Sem betur fer er
þetta okkar börnum framandi, en
þetta kennir þeim að annað fólk hef-
ur þurft að berjast fyrir því sem okk-
ur finnst sjálfsögð réttindi. Í bókinni
um Martin Luther King kemur fram
að hann mátti ekki leika heima með
vini sínum, sem var ljós á hörund,
þegar hann var ungur drengur af því
foreldrar vinarins bönnuðu
honum að leika við hörunds-
dökkan dreng. Þetta var svo
fjarri dóttur minni að hún
hélt að þetta væri skáldsaga
en ekki um alvöru fólk sem
var til,“ segir Rakel og Sara
bætir við að fimm ára sonur
hennar pæli mikið í mann-
eskjunum í bókunum.
„Í skóla sonar okkar eru
kennarar sem eru hörunds-
dökkir og honum finnst al-
gerlega galið að fólk með
dökkan húðlit hafi ekki mátt
sitja þar sem það vildi. Hon-
um fannst líka stórmerkilegt
að lesa um Steve Jobs, mann-
inn sem fann upp símana okkar og
tölvurnar.“
Þær taka fram að aftast í hverri
bók séu ljósmyndir af manneskj-
unum sem sagt er frá og fyllri texti
um lífshlaup þeirra, fyrir eldri
krakka og foreldra, til að fræðast
nánar um þetta fólk og geta svarað
spurningum barnanna.
„Þó ég þekki stóra drætti í sög-
um þessa fólks sem bækurnar segja
frá, þá er þar ýmislegt sem ég vissi
ekki. Ég hef lært alveg helling,“ seg-
ir Sara.
Kannski líka bók um Vigdísi
Bækurnar eru um afar fjöl-
breytt fólk og málefni, þar er auk vís-
indafólks og mannréttindafrömuða,
fólk úr listheiminum, tónlistarfólk,
rithöfundar, málarar, fólk út tísku-
heiminum, kvikmyndum, íþróttum
og ótal fleiri sviðum samfélagsins.
„Þetta er raunverulegt fólk en
ekki skáldað, slíkt fólk er alvöru fyr-
irmyndir. Við höfum varpað þeirri
hugmynd fram við bókaforlagið að
skrifuð verði bók um Vigdísi okkar
Finnbogadóttur, því hún er braut-
ryðjandi á heimsmælikvarða, fyrsti
lýðræðislega kjörni kvenkyns forseti
í heimi. Bækurnar kenna börnum að
það er þess virði að elta drauma sína,
berjast fyrir því sem maður trúir á
og standa með sjálfum sér. Þraut-
seigja er það sem skín í gegnum allar
þessar bækur. Þetta hefur því mikið
uppeldislegt gildi, auk þess að vera
fróðlegt og skemmtilegt,“ segir Rak-
el sem er grunnskólakennari og bæt-
ir við að þær Sara séu að þróa
kennsluefni til að nota með bók-
unum.
„Það er auðvelt að vinna
kennsluverkefni út frá þeim, þetta
eru stuttar sögur sem opna inn á um-
ræður í hóp. Eins er hægt að finna
heilmikið ítarefni um þetta fólk, til
dæmis geta kennarar sýnt krökk-
unum þætti og myndir þar sem Dav-
id Attenborough fræðir um lífríkið
og dýrin. Hann er ástríðufullur og
höfðar til krakka,“ segir Rakel og
Sara bætir við að strákunum hennar
hafi fundist stórmerkilegt þegar hún
sýndi þeim dýralífsþætti hans, að
þetta væri sami maður og sagt væri
frá í barnabókinni.
„Þetta eru líka tilvaldar bækur
fyrir eldri börn sem eiga erfitt með
lestur, því það er hvetjandi að geta
klárað heila bók og verða margs vís-
ari í leiðinni. Þessar bækur eru í
raun fyrir alla, líka unglinga, for-
eldra, ömmur og afa.“
Þær segjast vilja að bækurnar
fari sem víðast og því séu þær á við-
ráðanlegu verði.
„Einnig er hægt að skrá sig í
bókaklúbb hjá okkur, þá fær fólk
hverja bók á lægra verði. Þetta
gengur vonum framar. Við höfum
þegar selt hluta af fyrsta upplagi
fyrstu sex bókanna þar sem Íslands-
banki gefur sínum ungu viðskipta-
vinum bækur sem stofna reikning
hjá honum. Við erum virkilega stolt-
ar af þessu, þó auðvitað sé þetta mik-
il vinna, en þegar maður gerir eitt-
hvað af hugsjón, þá verða sporin
léttari.“
Mátti hún ekki sitja þar sem hún vildi?
Börnum á Íslandi finnst
eðlilega skrýtið að lesa
um fólk sem mátti ekki
sitja þar sem það vildi. Í
bókaflokknum Litla fólk-
ið, stóru draumarnir,
geta börn fræðst um
einstaklinga sem hafa
staðið með sjálfum sér.
Morgunblaðið/Eggert
Með afkvæmum Sara heldur á Jónasi Rafnari en eldri sonurinn Tómas Björn fyrir framan hana. Sara Bóel, yngri
dóttir Rakelar, fyrir framan hana, sú eldri, Bjartey Hanna, lengst t.v. og við hlið hennar sonurinn Kristófer Tómas.
Ólíkir ein-
staklingar
Þrjár þeirra
fyrstu bóka
sem Stórir
draumar gefa
út á íslensku,
um Malala,
Attenborough
og Martin
Luther King.
Nánar á vefsíðunum:
storirdraumar.is
littlepeoplebigdreams.com
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
Á dögunum náðust myndir af því í
Bridgetown á Barbados þegar þjálf-
arar hesta í kappreiðum teymdu
hófaljónin sín til hafs, til að æfa þá.
Daglegar æfingar í sjó stunda þessir
hestar en 30. nóvember næstkom-
andi verður haldið upp á að 55 ára
verða liðin frá því að landið hlaut
sjálfstæði sitt frá Bretlandi.
BARBADOS
Æfa hesta dag-
lega í vatni
AFP
Kíktu í heimsókn
og prófaðu!
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
Vinsælu Hvíldarsófarnir
væntanlegir aftur í byrjun desember
Sjá nánar
á patti.is
Tryggðu
þér
eintak
2 sæta sófi
3 sæta sófi
Hægindastóll
Vandaðir sófar með
rafstillanlegum sætum.
SX 80532
Opið hús 18. nóvember
kl. 16:00 til 16:30
Falleg og vel skipulögð fjögurra
herbergja íbúð á 2. hæð ásamt
sérmerktu stæði í bílskýli. Húsvörður,
lyfta. Glæsilegt útsýni til sjávar og
stutt í fallega náttúru. Stærð 146,7
fm, þar af geymsla 6,5 fm og stæði í
bílskýli 15,9 fm. Sameiginlegur salur/
setustofa með eldhúsi er á 1. hæð.
ÞORRAGATA 5, 102 REYKJAVÍK
- 63 ÁRA OG ELDRI
ERLA DRÖFN
MAGNÚSDÓTTIR
lögfræðingur/löggiltur
fasteignasali
692 0149
erla@fastlind.is
Allar nánari upplýsingar veitir: