Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið viljum að börn nútímans spegli sig í draumum þessa fólks, því einu sinni voru þetta þeirra draumar sem þau létu rætast, hvort sem þau voru vísindamenn, baráttufólk fyrir mannréttindum, íþróttafólk, listafólk eða annað. Börnin sjá í bókunum að þetta er hægt, að þeirra eigin draumar skipta máli og geta ræst,“ segja þær Sara Lind Guðbergsdóttir lögfræðingur og Rakel Lúðvíksdóttir kennari, en þær ásamt eiginmönnum sínum stofnuðu fyrirtækið Stórir draumar, sem gefur út þýddar barnabækur úr bókaflokknum Little People, BIG DREAMS, eða Litla fólkið og stóru draumarnir. „Þetta er bókaflokkur sem hef- ur farið sigurför um heiminn, bæk- urnar hafa verið þýddar á þriðja tug tungumála, enda skemmtilegt fyrir krakka að fá að fræðast um mismun- andi einstaklinga sem hafa áorkað miklu í lífinu og sett mark sitt á mannkynssöguna. Börnin komast að því hvað drífur þetta fólk áfram í að láta drauma sína rætast,“ segja þær og Sara bætir við að útgáfa þeirra á bókunum á íslensku eigi upphaf sitt í því að hún og Stefán maðurinn henn- ar rákust inn í barnavöruverslunina Trotters í London árið 2018. „Þar sáum við þessar bækur og urðum strax rosalega hrifin og keyptum tvær bækur á ensku. Við töluðum um að þetta væru bók- menntir sem við mundum vilja að væru aðgengilegar fyrir strákana okkar. Við gengum með hugmyndina í maganum í tvö ár, að þýða bæk- urnar og gefa þær út, og viðruðum það í fyrra við vinahjón okkar, Rakel og Gísla,“ segir Sara Lind og Rakel bætir við að þeim hafi strax litist vel á hugmyndina. „Við höfðum í fram- haldinu samband við Mariu Isabel Sánchez Vegara, spænska rithöfund- inn og listamanninn sem skrifar þessar bækur, og fengum íslenska útgáfuréttinn. Fyrstu sex bækurnar eru komnar út og næstu sex koma til landsins í febrúar. Bókaröðin inni- heldur yfir fjörutíu bækur, svo það er nóg eftir,“ segir Rakel. Við viljum hafa erfið orð Þær segjast hafa reynt að gæta jafnræðis þegar velja þurfti hvaða tólf bækur þau ættu að gefa fyrst út. „Við völdum fólk frá ólíkum löndum heims, frá ólík- um tíma og karla og konur af ólíkum kyn- þáttum. Yngsti einstaklingurinn og sú sem er næst okkur í tíma er aðgerðasinninn Greta Thunberg, en elstu einstaklingar eru löngu látnir, fólk fætt á nítjándu öld, til dæmis Marie Curie eðlisfræð- ingur. Við leggjum líka í vali okkar áherslu á dreifingu ólíkra mark- miða og drauma þessara einstaklinga, tvö standa fyrir réttindabaráttu afrískættaðra Bandaríkja- manna, þau Martin Luther King Jr. og Rosa Parks, en hin pakistanska Malala Yousafzai berst fyrir því að mega ganga í skóla. David Attenborough er náttúru- fræðingur og Steve Jobs var einn þriggja stofnenda Apple.“ Þær segjast í þýðing- unni hafa lagt áherslu á að textinn væri ekki um of ein- faldaður. „Við viljum hafa erfið orð og hugtök inn á milli, einmitt til að börnin spyrji um það sem þau ekki skilja. Slíkt eflir orða- forða og fer inn í málvitundina. Þó ekki sé mikill texti á hverri síðu, þá er hægt að spjalla mikið út frá hon- um og myndunum. Til dæmis um réttindabaráttu þeldökkra. Sjö ára dóttir mín var óskaplega hissa á því að Rosa Parks hefði ekki mátt sitja á ákveðnum stað í strætó og hún þurfti mikið að spyrja og spjalla. Sem betur fer er þetta okkar börnum framandi, en þetta kennir þeim að annað fólk hef- ur þurft að berjast fyrir því sem okk- ur finnst sjálfsögð réttindi. Í bókinni um Martin Luther King kemur fram að hann mátti ekki leika heima með vini sínum, sem var ljós á hörund, þegar hann var ungur drengur af því foreldrar vinarins bönnuðu honum að leika við hörunds- dökkan dreng. Þetta var svo fjarri dóttur minni að hún hélt að þetta væri skáldsaga en ekki um alvöru fólk sem var til,“ segir Rakel og Sara bætir við að fimm ára sonur hennar pæli mikið í mann- eskjunum í bókunum. „Í skóla sonar okkar eru kennarar sem eru hörunds- dökkir og honum finnst al- gerlega galið að fólk með dökkan húðlit hafi ekki mátt sitja þar sem það vildi. Hon- um fannst líka stórmerkilegt að lesa um Steve Jobs, mann- inn sem fann upp símana okkar og tölvurnar.“ Þær taka fram að aftast í hverri bók séu ljósmyndir af manneskj- unum sem sagt er frá og fyllri texti um lífshlaup þeirra, fyrir eldri krakka og foreldra, til að fræðast nánar um þetta fólk og geta svarað spurningum barnanna. „Þó ég þekki stóra drætti í sög- um þessa fólks sem bækurnar segja frá, þá er þar ýmislegt sem ég vissi ekki. Ég hef lært alveg helling,“ seg- ir Sara. Kannski líka bók um Vigdísi Bækurnar eru um afar fjöl- breytt fólk og málefni, þar er auk vís- indafólks og mannréttindafrömuða, fólk úr listheiminum, tónlistarfólk, rithöfundar, málarar, fólk út tísku- heiminum, kvikmyndum, íþróttum og ótal fleiri sviðum samfélagsins. „Þetta er raunverulegt fólk en ekki skáldað, slíkt fólk er alvöru fyr- irmyndir. Við höfum varpað þeirri hugmynd fram við bókaforlagið að skrifuð verði bók um Vigdísi okkar Finnbogadóttur, því hún er braut- ryðjandi á heimsmælikvarða, fyrsti lýðræðislega kjörni kvenkyns forseti í heimi. Bækurnar kenna börnum að það er þess virði að elta drauma sína, berjast fyrir því sem maður trúir á og standa með sjálfum sér. Þraut- seigja er það sem skín í gegnum allar þessar bækur. Þetta hefur því mikið uppeldislegt gildi, auk þess að vera fróðlegt og skemmtilegt,“ segir Rak- el sem er grunnskólakennari og bæt- ir við að þær Sara séu að þróa kennsluefni til að nota með bók- unum. „Það er auðvelt að vinna kennsluverkefni út frá þeim, þetta eru stuttar sögur sem opna inn á um- ræður í hóp. Eins er hægt að finna heilmikið ítarefni um þetta fólk, til dæmis geta kennarar sýnt krökk- unum þætti og myndir þar sem Dav- id Attenborough fræðir um lífríkið og dýrin. Hann er ástríðufullur og höfðar til krakka,“ segir Rakel og Sara bætir við að strákunum hennar hafi fundist stórmerkilegt þegar hún sýndi þeim dýralífsþætti hans, að þetta væri sami maður og sagt væri frá í barnabókinni. „Þetta eru líka tilvaldar bækur fyrir eldri börn sem eiga erfitt með lestur, því það er hvetjandi að geta klárað heila bók og verða margs vís- ari í leiðinni. Þessar bækur eru í raun fyrir alla, líka unglinga, for- eldra, ömmur og afa.“ Þær segjast vilja að bækurnar fari sem víðast og því séu þær á við- ráðanlegu verði. „Einnig er hægt að skrá sig í bókaklúbb hjá okkur, þá fær fólk hverja bók á lægra verði. Þetta gengur vonum framar. Við höfum þegar selt hluta af fyrsta upplagi fyrstu sex bókanna þar sem Íslands- banki gefur sínum ungu viðskipta- vinum bækur sem stofna reikning hjá honum. Við erum virkilega stolt- ar af þessu, þó auðvitað sé þetta mik- il vinna, en þegar maður gerir eitt- hvað af hugsjón, þá verða sporin léttari.“ Mátti hún ekki sitja þar sem hún vildi? Börnum á Íslandi finnst eðlilega skrýtið að lesa um fólk sem mátti ekki sitja þar sem það vildi. Í bókaflokknum Litla fólk- ið, stóru draumarnir, geta börn fræðst um einstaklinga sem hafa staðið með sjálfum sér. Morgunblaðið/Eggert Með afkvæmum Sara heldur á Jónasi Rafnari en eldri sonurinn Tómas Björn fyrir framan hana. Sara Bóel, yngri dóttir Rakelar, fyrir framan hana, sú eldri, Bjartey Hanna, lengst t.v. og við hlið hennar sonurinn Kristófer Tómas. Ólíkir ein- staklingar Þrjár þeirra fyrstu bóka sem Stórir draumar gefa út á íslensku, um Malala, Attenborough og Martin Luther King. Nánar á vefsíðunum: storirdraumar.is littlepeoplebigdreams.com 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 Á dögunum náðust myndir af því í Bridgetown á Barbados þegar þjálf- arar hesta í kappreiðum teymdu hófaljónin sín til hafs, til að æfa þá. Daglegar æfingar í sjó stunda þessir hestar en 30. nóvember næstkom- andi verður haldið upp á að 55 ára verða liðin frá því að landið hlaut sjálfstæði sitt frá Bretlandi. BARBADOS Æfa hesta dag- lega í vatni AFP Kíktu í heimsókn og prófaðu! Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Vinsælu Hvíldarsófarnir væntanlegir aftur í byrjun desember Sjá nánar á patti.is Tryggðu þér eintak 2 sæta sófi 3 sæta sófi Hægindastóll Vandaðir sófar með rafstillanlegum sætum. SX 80532 Opið hús 18. nóvember kl. 16:00 til 16:30 Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt sérmerktu stæði í bílskýli. Húsvörður, lyfta. Glæsilegt útsýni til sjávar og stutt í fallega náttúru. Stærð 146,7 fm, þar af geymsla 6,5 fm og stæði í bílskýli 15,9 fm. Sameiginlegur salur/ setustofa með eldhúsi er á 1. hæð. ÞORRAGATA 5, 102 REYKJAVÍK - 63 ÁRA OG ELDRI ERLA DRÖFN MAGNÚSDÓTTIR lögfræðingur/löggiltur fasteignasali 692 0149 erla@fastlind.is Allar nánari upplýsingar veitir:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.