Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021
Hreint loft –betri heilsa
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Láttu þér og þínum
líða vel - innandyra
Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum.
Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglugróum,
bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
HFD323E
Air Genius 5.
Hreinsar allt að 99.9%
af óhreinindum.
Hægt að þvo síuna.
Verð kr. 39.420
ÚR BÆJARLÍFINU
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Rauði kross Íslands tekur á móti
notuðum fatnaði um allt land í þar til
gerðum fatagámum. Í Borgarnesi er
einn slíkur, rekinn af Vesturlands-
deildinni, og hefur lengst af verið
staðsettur við Félagsbæ á Borgar-
braut. Í gegnum tíðina hefur hann
tekið við gríðarlega miklu magni af
fatnaði, svo miklu að stundum hefur
ekki tekist að hafa undan við að
tæma.
Því miður hefur fólk skilið eftir
fulla plastpoka og jafnvel rusl við
gáminn, svo lýti hefur verið að. Nú
hefur fatagámurinn verið færður um
set, hann er ennþá við Félagsbæ en
Bjarnarbrautarmegin. Það eru vin-
samleg tilmæli til allra að ganga vel
um og skilja ekki eftir fatapoka fyrir
utan gáminn. Vesturlandsdeild
Rauða krossins rekur einnig verslun
í Borgarnesi sem selur notaðan fatn-
að á góðu verði. Verslunin er opin
eftir hádegi á föstudögum og laugar-
dögum.
- - -
Hljómlistarfélag Borgarfjarðar
heldur sína árlegu jólatónleika
fimmtudaginn 9. desember nk. í
Hjálmakletti (Menntaskóla Borgar-
fjarðar). Tvennir tónleikar verða í
boði; síðdegistónleikar kl. 18.30 og
kvöldtónleikar kl. 21.30. Þetta er í
fimmta sinn sem félagið stendur fyr-
ir jólatónleikum. Á tónleikunum
kemur fram hljómsveit, skipuð með-
limum í Hljómlistarfélagi Borgar-
fjarðar, og leikur og syngur ásamt
gestum úr Borgarfirði. Aðalgestur
tónleikanna verður Sigríður Bein-
teinsdóttir en forsala miða fer fram í
Brúartorgi í Borgarnesi.
Hjónin Elfa Hauksdóttir og
Svanur Steinarsson reka hér fyrir-
tækið Brúartorg. Þar er framköll-
unarþjónusta og selja þau einnig
ýmsar vörur tengdar myndavélum,
gjafavöru og garn. Svanur hefur
staðið vaktina í þessu fyrirtæki frá
síðustu öld, þá er jólakort voru vin-
sæl og því vertíð á þessum árstíma í
myndvinnslu og framköllun. Þjón-
ustan nær til fleiri þátta, s.s. að
skanna inn gamlar myndir og lag-
færa, taka passamyndir, viðgerðir á
úrum o.fl. Upplýsingar má finna á
vefsíðunni bruartorg.is.
- - -
Íþróttamál Borgarness hafa allt-
af verið mér hugleikin. Skallagrímur
átti lengi körfuboltalið karla í efstu
deild og konurnar eru nú í efstu deild
en einhverra hluta vegna hefur oft
gengið betur. Íþróttahúsið í Borg-
arnesi er of lítið til að fylgja eftir
stöðu Skallagríms í fremstu röð og
kemur það líka niður á öðrum
íþróttagreinum. Tveir ungir Borg-
nesingar, þeir Skúli Guðmundsson
og Eiríkur Theodórsson, sem ávallt
hafa lagt hönd á plóginn í sjálfboða-
starfi fyrir Skallagrím, skrifa athygl-
isverða grein í Skessuhorn um hús-
næðisvanda íþróttaiðkunar í
Borgarnesi undir yfirskriftinni:
„Skuldum við ekki Skallagrími og
öðrum íþróttafélögum að gera bet-
ur?“
Þeir benda á að nýtt fjölnota
íþróttahús myndi laða að fleiri íbúa
og styðja við íþróttir á svæðinu.
Þessi húsnæðisvandi er víðtækari,
líkamsræktaraðstaðan í sundlaug-
inni stenst tæplega nútímakröfur.
Ég veit að reynt hefur verið að koma
upp annarri líkamsrækt hér en ekk-
ert húsnæði er á lausu sem hentar
eða hefur fengist leigt sem kemur til
greina fyrir þessa starfsemi. Von-
andi tekst að ná athygli þeirra sem
geta haft áhrif á þessa þróun áður en
þetta verður að vandamáli þegar
kemur að því að laða ungt og efnilegt
fólk í plássið.
- - -
Nýtt samþætt leiðakerfi sem
tengir Kleppjárnsreyki, Varmaland
og Borgarnes alveg sérstaklega er
ánægjulegt framfaraspor til að
tengja sveitarfélagið betur. Að baki
liggur áralöng þörf og viðleitni til að
koma þessu á. Þetta er tilraunaverk-
efni styrkt af samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytinu með 12 milljóna
króna styrk sem deilist á tvö ár, 2021
og 2022. Borgarbyggð, Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi, Mennta-
skóli Borgarfjarðar og Vegagerðin
standa fyrir þessu samstarfsverk-
efni og leiða það. Þetta er mikil þjón-
ustuviðbót fyrir íbúa sveitarfélagsins
og eykur jöfnuð til náms í heima-
byggð.
Í samræmi við verkefnið hefur
Borgarbyggð breytt reglum um
skólaakstur og fleiri en grunnskóla-
börn geta nú nýtt skólabílana í upp-
sveitum Borgarfjarðar og Mýrum.
Vegagerðin og Strætó hafa bætt við
leiðum í leiðarkerfi sínu og er ekið
alla virka daga yfir vetrartímann.
- - -
Hjá Foodstation (Fóðurstöð-
inni) er mikið að gerast. Í lok októ-
ber tók nýr rekstraraðili við rekstr-
inum af Kaupfélagi Borgarfjarðar, H
veitingar í eigu Hendriks Björns
Hermannssonar meistarakokks.
Fésbókarsíðan ber vott um stórhug,
tónlistarviðburðir eru fram undan,
jólahlaðborð með söng og þekktum
veislustjórum. Maturinn er á hóflegu
verði og mikil aðsókn. Skemmtilegt
þegar líf er í tuskunum og hreyfing í
samfélaginu þrátt fyrir allt.
Fatagámurinn hefur vart undan
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnes Fatagámur Vesturlandsdeildar Rauða krossins er kominn á nýj-
an stað, Bjarnarbrautarmegin við Félagsbæ. Mikil söfnun er á fötum í hann.