Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Melabúð, Fjarðarkaup, Frú Lauga, Fiskkompaní og Matarbúr Kaju Akranes Sælkerabitar Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Það er ljóst að Noregur sýnir litla viðleitni til að semja. Noregur ætl- ar ekki að eiga samræður við önn- ur ríki nema þau samþykki alvar- lega gölluð skilyrði þeirra,“ skrifar Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi, um viðræður um nýtingu makríls í aðsendri grein sem birt var á vef bresku sjávarútvegsfréttaveitunnar Fish Focus. Tilefni skrifa Heiðrúnar Lindar var aðsend grein sem birt var í sama miðli. Í þeirri grein segja þeir Audun Maråk, framkvæmda- stjóri Fiskebåt, samtaka norskra útgerðarmanna, og Jonny Ber- fjord, stjórnarformaður Fiskebåt, öll strandríkin bera sameiginlega ábyrgð á makrílstofninum. „Þess vegna þurfa Evrópusambandið, Bretland, Færeyjar, Grænland, Rússland, Ísland og Noregur öll að leggja sitt af mörkum, leita mála- miðlana og sætta sig við einhverja ósigra í þessu máli.“ Málum frestað Samningafundir um uppsjávar- stofnana kolmunna, norsk-íslenska síld og makríl hófust í London í október en ekkert heildarsam- komulag milli ríkjanna gildir um veiðar úr þessum stofnum. Öll rík- in viðurkenna veiðiráðgjöf Alþjóða- hafrannsóknaráðsins (ICES) en eru ósammála um skiptingu aflans og hafa þessir stofnar því allir ver- ið ofveiddir miðað við ráðgjöf. Miklar vonir voru bundnar við að eitthvað myndi þokast áfram í viðræðum ríkjanna um skiptingu veiðanna, en fátt áorkaðist annað en samkomulag um að veiði á kol- munna og norsk-íslenskri síld skuli ekki vera umfram ráðgjöf ICES. Auk þess var ákveðið að fela vís- indamönnum að kortleggja út- breiðslu kolmunna og uppfæra fyrri samantekt frá 2013. Þá náðist ekki heldur árangur á sviði makríls og munu strandríkin áfram úthluta einhliða veiðiheimildum í tegund- unum þremur. Ákveðið var að halda áfram við- ræðum eftir áramót með það að markmiði að geta tryggt sjálfbær- ar veiðar strax á vertíðum 2022, en stórir kaupendur uppsjávarafurða hafa lýst því að þeir hyggjast kaupa minna, borga minna eða ein- faldlega að hætta að kaupa afurð- irnar ef veiðar séu ekki stundaðar með sjálfbærum hætti. Hins vegar má sjá í greinaskrif- um hagmunaaðila að enn kann að vera nokkuð í land. Samkomulag án Íslands? Heiðrún Lind tekur í andsvari sínu undir sjónarmið er varða mik- ilvægi sjálfbærra veiða en vekur athygli á því að eðlilegt er að spyrja hvað valdi því að ekki hafi tekist að semja? Við þessu hafi fengist svar í grein talsmanna norskra útgerðarmanna. „Norð- menn eru einfaldlega ekki tilbúnir til að semja, að því gefnu að fram- kvæmdastjóri Fiskebåt endurómi afstöðu norska ríkisins.“ Vísar hún til þess að Maråk og Berfjord segja í grein sinni að „svæðistenging“ sé „eðlileg for- senda“ skiptingar veiðiheimilda milli strandríkjanna. „Svæðisteng- ing makrílsins við Noreg og Bret- land er mikil. Megnið af makríln- um er veitt í efnahagslögsögu þessara tveggja ríkja. Lítið er um makríl í hafsvæði Íslands og eng- inn makríll í hafsvæði Grænlands og Rússlands. Þetta er ástæðan fyrir því að þeir veiða makríl á al- þjóðlegu hafsvæði og í magni sem er langt umfram það sem hægt er að réttlæta út frá makríl í eigin efnahagslögsögu.“ Hvetja þeir „alla samningsaðila, sérstaklega Evrópusambandið, Bretland og Noreg, til að ná sam- komulagi á næstu vikum“. Vekur athygli að í orðum sínum skilja Norðmennirnir út undan Græn- lendinga, Íslendinga og Rússa. Aðferðin gölluð Svæðistenging getur ekki verið eina forsenda skiptingar veiði- heimilda milli ríkja og neita Norð- menn að horfast í augu við þá stað- reynd, skrifar Heiðrún Lind. Úthlutun á grundvelli svæðisteng- ingar fiskistofna byggi á að meta hlutfall fiskistofns innan lögsögu hvers ríkis, vegið með tíma sem hann eyðir á svæði hvers aðila. „Sumum kann að finnast þetta sanngjörn og einföld nálgun, en það er ekki raunin. Svæðistenging hunsar einfaldlega mikilvæga þætti. Fiskistofnar breyta stöðugt hreyfimynstri sínu, meðal annars vegna umhverfisáhrifa eins og hækkandi sjávarhita. Það er því ómögulegt að staðsetja fiskistofna með óyggjandi vissu og nákvæmni og erfitt að leggja mat á og sam- ræma þau gögn sem liggja fyrir frá einu tímabili til annars. „Landfræðileg útbreiðsla fiski- stofns í dag getur verið allt önnur en hún var fyrir 1, 5 eða 10 árum og gefur enga vissu um dreifingu hans í framtíðinni. Það er líka staðreynd að óvissa og eyður í mæligögnum leiða til mikillar óná- kvæmni í áætlunum og útreikn- ingum. Þessar hugleiðingar sýna einn verulegan galla í því að treysta eingöngu á svæðisteng- ingu, galla sem á örugglega eftir að ýta undir ágreining, bæði nú og í framtíðinni,“ útskýrir hún. Auk þessa ágalla bendir Heiðrún Lind á að svæðistenging taki ekki tillit til þess hvar fiskistofnar hrygna, vaxa, leita ætis og þyngj- ast. Þannig sé ekki metið hvert framlag hvers ríkis er í þágu heil- brigðis stofnsins og heldur ekki hve háð ríki eru veiðunum eða hvar veiðar eru hagkvæmastar. „Á þetta hefur Ísland og fjöldi sér- fræðinga ítrekað bent.“ Tekist á um forsendur samninga Heimild: MSC Útbreiðsla kolmunna, makríls og norsk-íslenskrar síldar Kolmunni Makríll Norsk-íslensk síld GRÆNLAND ÍSLAND NOREGUR BRETLAND - Framkvæmdastjóri SFS segir Norðmenn ekki sýna vilja til að semja um makríl - Norðmenn segja að forsenda skiptingar milli ríkja sé svæðistenging stofnsins - Aðferðin meingölluð að mati SFS Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) lagði til að á síðustu mak- rílvertíð yrði ekki veitt meira en 852 þúsund tonn. Íslensk yfirvöld hafa gefið út að hlutdeild Íslands eigi að mið- ast við 16,5% af ráðgjöfinni og var íslenskum skipum úthlutað veiðiheimildum sem nema rétt rúmlega 140 þúsund tonnum. Færeyingar og Norðmenn juku hins vegar þá hlutdeild sem þeir hafa áður talið sig eiga tilkall til og hækkuðu útgefnar veiðiheim- ildir til sinna skipa um 55%. Út- hlutuðu Færeyingar 167 þúsund tonnum til sinna skipa og Norð- menn 298 þúsund tonnum til sinna. Alls gáfu strandríkin út veiði- heimildir fyrir 1.208 þúsund tonn sem er 42% umfram ráðgjöf. Langt um- fram ráðgjöf MAKRÍLVEIÐAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.