Morgunblaðið - 18.11.2021, Side 40

Morgunblaðið - 18.11.2021, Side 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ í Danmörku HUNDAFÓÐUR Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Hið háa Alþingi hef- ur nýlega rétt ákæru- valdinu í hendur breið- síðuákvæði varðandi peningaþvætti og reynslan sýnir að ákæruvaldið sést ekki fyrir í útfærslunni á því. Skilgreiningin í 3. gr. laga # 140/2018 um peningaþvætti hljóðar svo: 2. Peningaþvætti: Þegar ein- staklingur eða lögaðili tekur við ávinningi, nýtir ávinning eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti sem er refsivert samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum; einnig þegar einstaklingur eða lög- aðili umbreytir slíkum ávinningi, flyt- ur hann, sendir, geymir, aðstoðar við afhendingu hans, leynir honum eða upplýsingum um uppruna hans, eðli, staðsetningu, ráðstöfun eða flutningi ávinnings eða stuðlar á annan sam- bærilegan hátt að því að tryggja öðr- um ávinning af slíkum refsiverðum brotum. Það fyrirbrigði sem reynt er að skilgreina er ekki peningaþvætti eins og það er almennt skilið. Hið einfalda viðfangsefni, peningaþvætti, vefst fyrir saksóknurum í framhaldinu, trúlega af skilningsleysi eins og dæmin sanna. Það er trúlega stremb- ið á stundum að finna ákæru stað en það má best vera vandamál ákæru- valdsins án þess að gengið sé á rétt almennra borgara. Lög um peningaþvætti eru til kom- in vegna þess að upprunabrotið, eða uppspretta ólögmæts ávinnings, er ekki þekkt eða sannanlegt með góðu móti. Þá er umbreytt mynd ávinnings notuð sem andlag og mælikvarði refsinga. Að taka við illa fengnum ávinningi er annað og sérstakt við- fangsefni. Lög um peningaþvætti ættu að taka til þess aðila sem hefur ólög- mæta starfsemi að lifibrauði og um- breytir ólögmætum ávinningi sínum þannig að hann fær lög- mætt yfirbragð. Sam- kvæmt lagatextanum að framan hefðu starfs- menn í þvottahúsum Als Capones getað orð- ið illa úti. Al Capone hefði ekki getað stundað pen- ingaþvætti með sama hætti í dag því jafnvel íslenskir saksóknarar hefðu hankað hann á rafrænum greiðslumáta og þá í frumbrotinu sjálfu. Vegna aukins rekjanleika fjármuna er þörf- in fyrir ítarlega lagasetningu ekki söm og áður. Það segir ekki að pen- ingaþvætti sé ekki stundað en þá skyldu menn hafa í huga skilyrðin sem ætti að uppfylla. Í lagagreininni hér að framan er frumbrotið enn- fremur orðið algert aukaatriði. Ákærur í sakamálum virðast taka mið af moðsuðunni. Tilteknum af- mörkuðum meintum afbrotum er rækilega og nákvæmlega lýst og krafist viðeigandi refsingar en að auki og í ofanálag krefst ákæruvaldið refsingar fyrir peningaþvætti! Þeim sem skilja um hvað peningaþvætti snýst er mótsögnin augljós. Saksóknarar og þá dómarar sem telja slíka saksókn tæka fyrir dómi verða ekki vændir um að skilja hvað peningaþvætti raunverulega er. Ef ákært er fyrir peningaþvætti þýðir það að ekki sé hægt með góðu móti að slá máli á hið upprunalega brot, það er hvert hið undirliggjandi refsiverða athæfi var og hver var ávinningurinn af því að formi og magni. Aðrar skilgreiningar Það er einfalt að sækja grunn- skilgreiningar á peningaþvætti á net- ið og ein slík hljóðar svo: Money laundering is the illegal process of making large amounts of money generated by a criminal acti- vity, such as drug trafficking or ter- rorist funding, appear to have come from a legitimate source. The money from the criminal activity is conside- red dirty, and the process “launders“ it to make it look clean. Lauslega þýtt: Peningaþvætti er ólögmætur gjörningur ætlaður til að láta líta svo út, að umtalsverðar fjárhæðir sem eru afurð ólögmætrar starfsemi, svo sem dreifing eiturlyfja eða fjár- mögnun hryðjuverka, séu ávinningur lögmætra viðskipta. Fjármunir upp- runnir í hinni ólögmætu starfsemi eru taldir óhreinir, og gjörningurinn að „þvætta“ er til að hreinsa þá í ásýnd. Það eru tvö skilyrði sem uppfylla þarf samkvæmt þessu orðalagi eða: stórar fjárhæðir og undirliggjandi ólögmæt starfsemi. Alvarleiki brota er gefinn sem sambærilegur við dreifingu eiturlyfja og fjármögnun hryðjuverka. Í íslenska lagatext- anum hefur alfarið verið sneitt hjá þessu því skilninginn virðist skorta. Það er alvarleg hugsanavilla að telja að hægt sé að sakfella þjóf fyrir peningaþvætti samkvæmt raunsærri skilgreiningu ef hann stelur reiðufé í eitt skipti. Sé ákært fyrir stuld og peningaþvætti í slíku tilfelli þá væri verið að bera þjófinn röngum sökum. Afbrotið er þekkt, afmarkað og skil- greint sem þjófnaður og engin um- breyting ávinningsins hefur átt sér stað. Réttarkerfið hefur viðurkennt slíka tvöfalda saksókn fyrir einn og sama glæp. En nota bene; kaupmað- urinn á horninu sem selur viðkom- andi matvöru á sér enga lagalega málsvörn um leið og hann tekur við ávinningnum. Peningaþvætti sam- kvæmt skilgreiningu íslenskra laga! Það skal ekki útiloka að óbrúkleg- ur lagatextinn sé ekki tilviljun en þá er málið sýnu alvarlegra þar sem þegnar landsins mættu eiga skjól fyr- ir slíkri aðför að réttindum sínum. Meira síðar. Eftir Jón Þ. Hilmarsson » Að auki og í ofanálag krefst ákæruvaldið refsingar fyrir peningaþvætti! Jón Þ. Hilmarsson Höfundur er endurskoðandi. jon@vsk.is Peningaþvætti eða hvað? Endurheimt vot- lendis er viðurkennd aðferð hjá loftslags- ráði Sameinuðu þjóð- anna (IPCC) í barátt- unni við loftslagsbreyting- arnar. Alþjóðleg við- mið um losun hvers hektara sem IPCC hefur gefið út eru 19,5 tonn. Um nokk- urra ára skeið hefur vísindafólk Landgræðslunnar unnið að rann- sóknum á meðallosun íslenskra mýra. Mælt er á fjórum mismun- andi stöðum á landinu og til þessa hafa mælingarnar gefið til kynna að meðaltalið sé nokkuð svipað hvað viðkemur losun íslenskra mýra. Þetta þýðir að árlega losar hver hektari í framræstu mýrlendi 19,5 tonn af koltvísýringsígildum. Árið 2019 stöðvaði sjóðurinn losun 1.404 tonna af koltvísýringsígild- um en uppreiknað til þriggja ára eru það 4.212 tonn. Árið 2020 stöðvaði sjóðurinn 2.636 tonn en uppreiknað til tveggja ára eru það 5.265 tonn. Samtals til dagsins í dag eru þetta 9.477 tonn sem samsvara losun 4.738 nýrra fólks- bíla á sama tíma. Vert er að hafa í huga að hér er um stöðvun að ræða en ekki bindingu. Votlendissjóðurinn endur- heimtir nú 70 hektara landsvæði í Fífustaðadal við Arnarfjörð. Með framkvæmdinni stöðvast losun 1.400 tonna af koltvísýringsígild- um á ári, sem er það sama og 700 nýlegir fólksbílar losa á ári. Þarna er ekki bara um loftslagsaðgerð að ræða heldur eflir framkvæmdin náttúrulegan fjölbreytileika, end- urheimtir vistkerfi mýranna og skapar vinnu fyrir verktaka á svæðinu. Frá árinu 1970 hefur þessi framræsing í Fífustaðadal losað um 70.000 tonn af koltvísýrings- ígildum. Endurheimtin er unnin að beiðni landeiganda sem gerði samning við Votlendissjóð um framkvæmdina en jörðin hefur aldrei verið nýtt til framleiðslu í landbúnaði. Landgræðslan vegur og mælir forsendur allra framræsing- arverkefna Votlendissjóðs og að lokinni framkvæmd er verkið mælt og metið að nýju. Ef verkið hefur heppnast til fulls færir Land- græðslan það í sam- antektartölur landsins um stöðvun losunar frá framræstu vot- lendi. Votlendissjóður er einkarekinn sjóður sem var stofnaður ár- ið 2018. Markmið sjóðsins er að undir- búa og framkvæma endurheimt fram- ræsts votlendis. Endurheimt vot- lendis er ekki bara einföld og mjög hraðvirk leið í baráttunni við loftslagsbreytingarnar, heldur er endurheimt votlendis um leið stórkostlegt vopn í endurheimt vistkerfa og styður við nátt- úrulegan fjölbreytileika á þeim svæðum þar sem hún er fram- kvæmd. Votlendissjóður býður öllum landeigendum til samstarfs um framkvæmd endurheimtar á svæðum í þeirra eigu. Undir slík- um samningi tryggir landeigand- inn að endurheimtin verði unnin af fagaðilum og undir eftirliti og mælingum Landgræðslunnar. Á átta ára samningstíma greiðir Votlendissjóður fyrir alla vinnu við undirbúning og framkvæmd endurheimtarinnar. Þá er fylgst með framkvæmdinni og henni við- haldið. Á samningstímanum er ábati aðgerðanna, þ.e. kolefnis- einingarnar, eign sjóðsins og selur sjóðurinn þær til að fjármagna að- gerðina. Að samningstímanum loknum eru einingarnar eign land- eigandans. Kynntu þér starfið okkar hjá Votlendissjóði á www.votlendi.is og sjáðu sóknarfærin sem liggja allt í kringum okkur í loftslagsbarátt- unni. Eftir Einar Bárðarson Einar Bárðarson » Samtals eru þetta 9.477 tonn sem sam- svara losun 4.738 fólks- bíla á sama tíma. Vert er að hafa í huga að hér er um stöðvun að ræða en ekki bindingu. Höfundur er framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. einarb@votlendi.is Það er von í votlendinu Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.