Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 ✝ Valgerður Ólafsdóttir, þroskasálfræðingur og framkvæmda- stjóri Velferðar- sjóðs barna, fæddist á Fæðingarheim- ilinu við Eiríksgötu 4. október 1951. Hún lést á Landspít- alanum 11. nóv- ember 2021. For- eldrar hennar voru Ólafur Ólafsson lögfræðingur, f. 20. júní 1925, d. 10. maí 2011, og Svanhildur Marta Björnsdóttir röntgentæknir, f. 10. ágúst 1924, d. 17. mars 2015. Stjúpfaðir hennar var Kristján Davíðsson myndlistarmaður, f. 28. júlí 1917, d. 28. maí 2013. Bræður Val- gerðar eru Einar Sebastian, f. 22. nóvember 2004, Ísól, f. 15. des- ember 2007, og Katla, f. 12. apríl 2010. Börn Svanhildar Mörtu og eiginmanns hennar Davids Ro- berts Merriams, f. 9. október 1975, eru Markús Kári, f. 8. ágúst 2006, Alexander Róbert, f. 3. des- ember 2009, og Leó Kristján, f. 26. desember 2014. Sambýlis- maður Sólveigar er David Lea, f. 22. september 1971. Valgerður lauk stúdentsprófi frá MR árið 1971 og námi í meinatækni frá Tækniskóla Ís- lands 1974. Hún lauk cand.- psych.-gráðu í þroskasálfræði frá University of Chicago 1989 en þau hjónin voru lengi búsett í Bandaríkjunum. Hún var fram- kvæmdastjóri Velferðarsjóðs barna frá stofnun hans árið 2000 og þar til hún lést. Valgerður verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, 18. nóv- ember 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Allir sem vilja fylgja henni eru velkomnir en þurfa að framvísa hraðprófi við inngang- inn vegna samkomutakmarkana. maí 1962, og Kjart- an, f. 17. júlí 1967. Bróðir hennar sam- mæðra og sonur Kristjáns Davíðs- sonar er Björn Dav- íð, f. 30. mars 1961. Eftirlifandi eigin- maður Valgerðar er Kári Stefánsson, læknir og forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar, f. 6. apr- íl 1949, en þau voru lífs- förunautar í 53 ár. Börn Valgerðar og Kára eru Ari, f. 13. október 1971, Svanhildur Marta, f. 18. desember 1976, og Sólveig, f. 12. maí 1984. Börn Ara og eiginkonu hans Kristínar Bjarkar Jónasdóttur, f. 7. febrúar 1974, eru Katrín, f. 24. Og því varð allt svo hljótt við helf- regn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast æv- inlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson) Elsku hjartans Vala vinkona kvaddi okkur um daginn og hafði fyrir skömmu fagnað sjö- tíu árum meðal vor. Við kynnt- umst í Chicago árið 1983, þegar ég starfaði sem flugfreyja og varð þeirrar gæfu aðnjótandi að hitta hana í veislu. Á þeim ár- um var ég alloft í Chicago og þá hittumst við oftar en ella. Við urðum perluvinkonur og sú vin- átta varð dýrmæt og dýpkaði með árunum. Við umgengumst oft og mikið þegar hún flutti til Íslands með börnin. Vala var, eins og svo margir Íslendingar í Ameríku, með snert af heimþrá enda sonur þeirra Kára, móðir hennar, faðir, stjúpfaðir, bræð- ur og fjölskyldur þeirra Kára búsett hérlendis. Vala var sérlega yndisleg, skarpgreind og skemmtileg. Við hana var hægt að tala um heima og geima á léttum sem og alvarlegum nótum og ávallt stutt í hennar smitandi hlátur. Hjartans mál Völu var velferð barna enda þroskasálfræðingur að mennt og hún ræddi snemma um þá ástríðu sína að styðja við börn sem áttu við ramman reip að draga í lífinu. Hún lét ekki sitja við orðin tóm heldur vann markvisst að því að stofna Velferðarsjóð barna með stuðningi Íslenskrar erfða- greiningar, sem varð að veru- leika árið 2000 er sjóðurinn var stofnaður og hefur stutt og styrkt ótal málefni er varða börn. Vala var framkvæmda- stjóri Velferðarsjóðs barna og sinnti því starfi af hugsjón og þeirri ástríðu sem henni einni var lagið. Hún var yndisleg móðir og studdi börn sín í blíðu og stríðu en barnabörnin sex voru að vonum hennar líf og yndi frá fyrstu tíð og að sjálf- sögðu æskuástin og eiginmaður hennar, Kári Stefánsson. Ég hitti þau hjónin síðast fyrir tilviljun eftir að frábærum tónleikum lauk í Máli og menn- ingu í haust. Við Vala ákváðum að hittast sem fyrst aftur á heimili þeirra Kára uppi við Vatnsendavatn, en eftir að þau fluttu „út á land“, eins og Vala orðaði það að vera flutt frá Reykjavík í Kópavoginn og brosti sínu blíða fallega brosi, hafði ég ekki heimsótt þau þangað en var alltaf á leiðinni og hlakkaði mikið til. Var búin að finna gamlar myndir frá ýmsum árum til að gefa henni. Það var því reiðarslag að frétta af andláti elsku Völu og ég er eins og svo margir vina hennar harmi lostin og engin taug ósnortin í hjarta mínu. Mestur er þó missir Kára, barnanna og barnabarnanna, sem fá ekki lengur notið eiginkonu, móður og ömmu sinnar. Með þessum fátæklegu orðum sendi ég þeim mínar innilegustu samúðar- kveðjur og vona að þeim auðn- ist kraftur til að kljást við þá djúpu sorg sem fylgir ástvina- missi. En látum Kahlil Gibran eiga síðustu orðin: Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahill Gibran/Gunnar Dal) Guðbjörg Gróa Guðmundsdóttir. Langt inn í skóginn leitar hindin særð og leynist þar, sem enginn hjörtur býr, en yfir hana færist fró og værð. Svo fjarar lífið út … Ó, kviku dýr reikið þið hægt, er rökkva tekur að og rjúfið ekki heilög skógarvé, því lítil hind, sem fann sér felustað, vill fá að deyja ein á bak við tré. Um blóð, sem fyrr var bæði ungt og heitt, mun bleikur mosinn engum segja neitt. En þú, sem veist og þekkir allra mein, og þú, sem gefur öllum lausan taum, lát fölnað laufið falla af hverri grein og fela þennan hvíta skógardraum. Er fuglar hefja flug og morgunsöng og fagna því, að ljómar dagur nýr, þá koma öll hin ungu, þyrstu dýr að uppsprettunnar silfurtæru lind – öll, nema þessi eina, hvíta hind. (Davíð Stefánsson) Hallgerður Pétursdóttir. Við mikilvægustu krossgötur lífsins eru sjaldnast vegvísar. Það eru aðeins örfáir dagar síð- an Valgerður stýrði fundi í Vel- ferðarsjóði barna, frísk og fal- leg með góðar áætlanir fyrir framtíð sjóðsins. Áhugasöm var hún sem aldrei fyrr að koma til móts við börn sem þurfa sér- stakan stuðning. Á teikniborð- inu hjá henni voru framtíðar- plön sem við hlökkuðum til að framkvæma með henni. Ekkert okkar sem vorum þarna gat lát- ið sér til hugar koma að þetta væri kveðjustundin. Fyrir röskum tuttugu árum átti hún hugmyndina að stofnun Velferðarsjóðs barna á Íslandi þar sem markmiðið var að koma til móts við börn sem eiga á brattann að sækja félagslega, menntunarlega eða vegna veik- inda eða fátæktar. Hugmynd hennar fékk vængi þegar eig- inmaður hennar með fulltingi Íslenskrar erfðagreiningar lagði fram myndarlega fjárupp- hæð sem gerði draum Valgerð- ar að veruleika. Það eru margir sem hafa notið og eiga eftir að njóta frumkvæðis og framsýni sem þau Vala og Kári sýndu með stofnun sjóðsins. Ég kynntist Valgerði í gegnum þennan sjóð og við erum nokk- uð mörg sem höfum fengið að vera með í þeirri vegferð. Þau kynni mín mun ég geyma og þakka. Við Valgerður vorum ekki alltaf sammála um allt en hún hafði hæfileika til að hlusta og var sannarlega tilbúin til málamiðlunar þannig að auðvelt var að ganga sátt frá borði. Áhugi hennar á líðan barna kom fram í flestu sem hún gerði og engin gleði jafnast á við að starfa öðrum til heilla og þess naut hún. Eftir hana liggja ritverk um tjáningu og tilfinn- ingar barna. Bókin Saga, sem kom út fyrir nokkrum árum, er lýsandi dæmi um löngun henn- ar til að gefa börnum sterkari rödd. Sú bók er sett fram á auðskiljanlegan og einfaldan hátt og er hjálpleg börnum til að tjá líðan sína. Hún var af- skaplega stolt af börnunum sín- um en barnabörnin voru í al- gjöru öndvegi. Valgerður var einstaklega góð heim að sækja og hafði lag á að gera allt fallegt og smekk- legt í kringum sig. Það er mikið hryggðarefni að kveðja hana og þungt högg fyrir fjölskylduna. Fólkinu hennar öllu sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur og bið þeim blessunar. Ingibjörg Pálmadóttir. Þær áttu heima í Chicago og Lake Shore Drive var þeirra gata. Önnur bjó í suðurhluta borgarinnar og hin í norður- hlutanum og hvenær sem færi gafst heimsóttu litlu stúlkurnar hvor aðra. Þegar þær hittust fyrst var önnur nýkomin vestur um haf og naut þess að eignast vinkonu sem kunni að rata í Ameríku. Og hin tók því fagn- andi að leika sér á íslensku. Þessi tími er löngu liðinn en einhvern veginn sínálægur og minningin um ungu vinkonurn- ar á sér enga hliðstæðu. Hið sama gildir um leikvöllinn þeirra: Á aðra höndina sigldu skútur á einu af stærstu vötn- um Norður-Ameríku og á hina blikaði á skýjakljúfa. Ætli það skipti ekki máli í þessum drögum að paradís að Vala var mamma litlu stúlkunn- ar í suðurhluta borgarinnar. Hún átti eftir að verða önnur fastastjarna á nýjum himni og opnaði ásamt pabba litlu stúlk- unnar og eldri systur hliðið í Hyde Park fyrir vinkonunni og fjölskyldu hennar. Öll nutum við ómældrar ljúfmennsku, gjafmildi og gleði. Með tíman- um urðum við Vala einnig vin- konur og þegar reynsluna af til- vistinni bar á góma naut ég þess að hún var á vegum sálar- innar og lengra komin í lífinu. Kannski verður allt fallegt í drögum að paradís og mann- eskjan blinduð af birtunni sem af henni stafar. En þá er gott að muna að meðan tálsviptingin sér um það sem kann að virðast fagurt en mun glata töfrum sín- um er til fegurð sem ekkert fær grandað. Ég þykist því vita að tálsviptingin játi sig sigraða andspænis þeirri sem stafar af minningunni um Völu og sam- veruna í Vesturheimi. Í nýjum kapítula á gömlu landi munaði einnig um mannkosti hennar og eftirlifandi eiginmanns í veg- ferð okkar mæðgna. Ólíkt vest- urförum fyrri tíma get ég ekki treyst á endurfund í því sem þeir kölluðu algóða lífinu en þar hefði ég viljað þakka Völu fyrir fegurðina og stuðninginn í jarð- lífinu. Votta Kára, börnum þeirra Völu og barnabörnum mína innilegustu samúð. Birna Bjarnadóttir. Valgerður Ólafsdóttir Útför í kirkju Kirkjan til staðar fyrir þig þegar á reynir utforikirkju.is Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Hjartans þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og vináttu við andlát elskulegrar móður okkar og tengdamóður, GUÐLAUGAR STEINGRÍMSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Seltjörn. Fjölskyldan þakkar sérstaklega starfsfólki Seltjarnar fyrir einstaka umhyggju. Jóhannes Long Ása Finnsdóttir Guðlaugur Long Anna Jónsdóttir Steingrímur Long Hrefna Sigurðardóttir Ásta Long Örlygur Ásgeirsson Árni Long Sigurveig Ólafsdóttir og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATLA KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR húsmóðir, áður til heimilis að Heiðarhjalla 6, Kópavogi, lést á dvalarheimilinu Grund föstudaginn 29. október. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar á deild V-2 fyrir einstaklega hlýja og góða umönnun og alla hjálp og stuðning í gegnum árin. Þeir sem vilja minnast hennar hafi í huga minningarsjóð alzheimersamtakanna. Útför hennar hefur farið fram. Sturla Frostason Ólöf Einarsdóttir Svanborg Þórdís Frostadóttir Bjarni Frostason Hrafnhildur Peiser barnabörn og barnabarnabörn Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar ástkæra HRAFNKELS KÁRASONAR vélfræðings, Suðurlandsbraut 70a, Reykjavík, áður Furuvöllum 15, Egilsstöðum, sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 29. október. Dröfn Jónsdóttir Dagný Rúna Hrafnkelsdóttir Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Finnur Sveinsson Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir Kári Hrafn Hrafnkelsson Lóa Sigurðardóttir og afabörn Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra GRÉTARS OTTÓS RÓBERTSSONAR læknis. Elín Þorgerður Ólafsdóttir Lovísa Grétarsdóttir Kjartan Jóhannsson Guðríður Anna Grétarsdóttir Sindri Hans Guðmundsson Heiður Grétarsdóttir Sveinbjörn Þórðarson Tumi Kjartansson Troels Andri Kjartansson Teitur Kjartansson Elín Ebba Sindradóttir Við viljum þakka öllum þeim sem sýndu samúð og virðingu, sendu hlýjar kveðjur, minningarkort og blóm við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR JÓHÖNNU ÁGÚSTSDÓTTUR, Ellýjar frá Aðalbóli, Vestmannaeyjum, áður til heimilis á Kleppsvegi 62. Við viljum þakka starfsfólki Hrafnistu sérstaklega fyrir umönnun sem móðir okkar hrósaði svo mjög. Bestu þakkir öllsömul. Bjarni Sighvatsson Auróra Friðriksdóttir Viktor Sighvatsson Jóna Margrét Jónsdóttir Ásgeir Sighvatsson Hilda Torres Elín Sighvatsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.