Morgunblaðið - 18.11.2021, Page 52

Morgunblaðið - 18.11.2021, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2021 www.danco.is Heildsöludreifing st í næstu rslun Nettó g Iceland m land allt æ o Fidget - Jóladagatal Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Hundsvit eru hlaðvarpsþættir undir stjórn þeirra Theodóru Ró- bertsdóttur dýrahjúkrunarfræð- ings og Thelmu Dögg Harð- ardóttur viðskiptafræðings en báðar eru þær að eigin sögn „hundanördar“ og elska að fræð- ast um og fræða aðra um allt sem viðkemur hundum, umönnun þeirra, þjálfun og uppeldi. Fjalla þær meðal annars um all- ar mögulegar hundaíþróttir sem hægt er að stunda á Íslandi, um geldingu rakka, um þjálfun ungra rakka og um mikilvægar lífsreglur fyrir hundaeigendur og margt fleira og hefur hlaðvarpið slegið í gegn hjá hundaeigendum hér á landi. Skortur á íslensku efni „Hugmyndin var búin að malla lengi en skortur á íslensku efni um hunda og hundaþjálfun vantaði að okkar mati. Hundaeign er orðin gífurlega algeng og hvergi auðvelt að sækja upplýsingar á einn stað,“ segja þær Theódóra og Thelma Dögg í viðtali við Morgunblaðið. Þær segjast leggja mikið upp úr því að fjalla um allar hliðar mál- anna og reyna að auka þekkingu hlustandans á þeim umfjöllunar- efnum sem þær taka fyrir. „Umræðuefni hlaðvarpsins eru allt frá því hvernig hundar læra, heilsufar og um daglegt líf með hund. Við blöndum líka inn í um- ræðuna reynslusögum og dæmum úr eigin lífi enda erum við dugleg- ar að hitta aðra hundaþjálfara, sækja okkur reynslu og reynum að miðla henni eftir fremsta megni,“ útskýra þær Theodóra og Thelma Dögg en þær segjast styðjast við ritrýnt efni og vísindagreinar. Halda í fjölbreytnina „En höldum sterkt í fjöl- breytnina og fjörið,“ bæta þær við. „Hundalíf er betra líf mynd- um við segja.“ Theodóra á núna tvær tíkur, þær labradorinn Sig- urbjörgu og Matt- hildi, sem er pudel- pointer-veiðihundur úr fyrsta gotinu hér- lendis. Áður átti hún australian shepherd-rakkann Marley sem fór með henni til Þýskalands í nám í dýra- hjúkrun. Thelma á tíkina Birnu, White Swiss Shepherd sem hún stundar hlýðniþjálfun og hundasýningar með. „Við þjálfum mikið hundana saman enda bestu vinkonur. Á milli okkar höfum við því fjölbreyttar reynslusögur af vandamálum og aðstæðum sem við höfum þurft að klóra okkur í gegnum sem bæði tengjast því að vera með ákveðnar tegundir af hundum og einstaklinga sem líta þarf á sem slíka,“ segja vinkon- urnar. K100 fékk þær til að deila sín- um eftirlætishlaðvörpum en þau má sjá hér. Hunting Dog Confidential „Frábærir hlaðvarpsþættir fyrir hundanörda og áhuga- sama. Fjalla um sögu og upphaf hinna ýmsu hunda- tegunda og hvernig þær tengjast.“ Sporting Dog Talk „Áhugavert pod- cast um þjálfun og umhirðu vinnu- hunda. Virkilega hvetjandi og fræð- andi hlaðvarp!“ Clinician‘s Brief: The podcast „Hlað- varpsþættir um heilsu og umhirðu dýra, eru nákvæmir og henta þeim sem vilja læra djúpt um heilsu dýra.“ Í ljósi sögunnar „Það þarf vart að kynna það hlað- varp – en frá- bært í eyrun þeg- ar við viljum hlusta á eitthvað annað en hunda- spjall.“ Betri helming- urinn með Ása „Þegar mann vantar hlýju í dag- inn, það eitthvað svo ljúft að hlusta á hlaðvarpið hans Ása!“ Íslensku hlaðvörpin má nálgast á hlaðvarpsvef mbl.is en erlendu hlaðvörpin má hlusta á öllum helstu alþjóðlegu hlaðvarps- veitum. Fimm bestu hlaðvörpin frá Hundsviti Theodóra og Thelma Dögg halda úti hlaðvarpinu Hundsvit þar sem þær fjalla um allt sem viðkemur hundum og því að eiga hund en hlaðvarpið hefur slegið í gegn hjá hundaeigendum hér á landi. Þær deila hér sínum eftirlætishlaðvörpum. Ljósmynd/Carolin Giese „Hundalíf er betra líf“ Hundsvit Theodóra og Thelma halda úti hundahlaðvarpinu Hunds- vit þar sem þær fjalla um allt sem tengist því að eiga hund. Dýravinur Dýrahjúkrunarfræðingurinn Theodóra ásamt tíkinni sinni Sigur- björgu, sem er svartur labrador. Vinir Thelma Dögg er mikill hundanörd en hún á tíkina Birnu. Þær stunda saman hlýðninámskeið og hundasýningar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.