Morgunblaðið - 18.11.2021, Qupperneq 68
Eitt kunnasta tónskáld Breta, Thomas Adès, stjórnar
Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu í kvöld.
Á efnisskránni er hans eigin píanókonsert, „In Seven
Days“, sem staðarlistamaður hljómsveitarinnar, Vík-
ingur Heiðar Ólafsson, flytur. Víkingur hefur flutt verk-
ið nokkrum sinnum á tónleikum í Evrópu í haust. Á efn-
isskránni verður líka annað verk eftir Adès, „Dawn“, og
„Rakastava“ og svíta úr „Ofviðrinu“ eftir Jean Sibelius.
Framvísa þarf neikvæðu Covid-hraðprófi fyrir tón-
leikana og því mikilvægt að mæta tímanlega. Eldborg
er skipt upp í þrjú sóttvarnahólf og er grímuskylda.
Víkingur Heiðar flytur með SÍ kons-
ert Adès sem stjórnar flutningnum
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 322. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Hulda Bjarnadóttir verður sjálfkörin nýr forseti Golf-
sambands Íslands á Golfþingi 2021 sem fer fram á
Fosshóteli í Reykjavík dagana 19. og 20. nóvember.
Hulda hefur setið í stjórn GSÍ undanfarin fjögur ár og
er því flestum hnútum kunnug innan sambandsins.
„Þetta er fyrst og fremst rosalega mikill heiður að fá
að leiða sambandið,“ sagði Hulda í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég er bara spennt og til í slaginn og líka auð-
mjúk að fá að taka við svona embætti fyrir hönd sam-
bandsins og hreyfingarinnar,“ sagði Hulda. »57
Auðmjúk og spennt að taka við
embætti forseta Golfsambandsins
ÍÞRÓTTIR MENNING
FRÍ HEIMSENDING
Þegar keyptar eru smávörur
fyrir 9.900 kr. eða meira.
frá 16. - 21. nóvember
SAVONA Svefnsófi með legubekk
áður 109.900 kr. - nú 82.425 kr.
CORBY Borðstofustóll
áður 15.900 kr. - nú 11.925 k
SEAFORD
Hilla m/zig zag hillum
áður 23.900 kr. - nú 17.925 kr.
25%
r.
25%
25%
20%
RICHMOND
Borðstofuborð
áður 79.900 kr.
- nú 63.920 kr.
happy days
20-30%
af völdum vörum
25%
LUMINI Grjónapúðar
áður 19.900 kr.
- nú 14.925 kr.
MARBLE
Kertastjaki úr marmara
áður 3.495 kr.
- nú 2.795 kr.
20%
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
Virkir dagar 11-18.30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
Virkir dagar 11-18
ALLIR
KERTASTJAKAR
ilva.is
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bútasaumskonan Sigríður Jóhann-
esdóttir lauk nýverið við stólu, sem
hún byggði á draumi Kristínar, syst-
ur sinnar, og saumaði til minningar
um hana. „Verkið var tilbúið um
tveimur og hálfu ári eftir að ég hófst
handa fyrir alvöru með því að teikna
söguna.“
Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sókn-
arprestur í Grundarfjarðarkirkju og
tengdasonur Kristínar, bað hana að
gera stólu að eigin vali fyrir margt
löngu, eins og fram kemur í frétt um
málið á vef kirkjunnar (kirkjan.is).
Hann segir að þar sem hann hafi
aldrei hitt tengdamóður sína, því
hún hafi dáið áður en hann kynntist
Línu Hrönn Þorkelsdóttur, konu
sinni, sé stólan sér einstaklega kær.
„Hún [Sigríður] ákvað að fara þessa
leið og fyrir vikið er stólan miklu
persónulegri en ella, því frá því við
konan mín kynntumst hefur Kristín
verið stór hluti af lífi mínu.“
Draumurinn sat í henni
Kristín dó úr krabbameini 1997,
tæplega 44 ára að aldri. Sigríður
segir að þær hafi verið mjög nánar
og draumur sem Kristínu hafi
dreymt og hún sagt sér frá um hálfu
ári fyrir andlátið hafi setið í sér.
„„Ég er viss um að ég á eftir að
komast í gegnum þetta,“ sagði hún
og sagði mér síðan drauminn.“
Samkvæmt draumnum var Krist-
ín á gangi með tveimur konum í
óþekktu umhverfi. Leiðin lá upp
fjall eftir einstigi og gekk Kristín
fremst. Þegar hún leit við sá hún að
sú sem aftast gekk var horfin. Síðar
frétti hún að konan væri dáin. Hinar
héldu áfram í fjölbreyttu landslagi
og þegar þær voru komnar ofarlega
leit Kristín aftur til baka og þá var
hin konan líka horfin. Þá vissi Krist-
ín að hún hafði læknast. Kristín
gekk á fjallstoppinn. Þar var lítill
gróður en henni leið mjög vel í birt-
unni sem þar var. „Þannig endaði
draumurinn og hún sagðist vera viss
um að fyrst hún komst upp á fjallið
og sá svona mikla birtu hlyti hún að
læknast. Það var hennar túlkun en
því miður rættist hún ekki,“ segir
Sigríður.
Að fengnu samþykki prests-
hjónanna Aðalsteins og Línu
Hrannar Þorkelsdóttur, dóttur
Kristínar, um að byggja verkið á
draumnum kynnti Sigríður sér stól-
ur, sem eru hluti af messuklæðum,
og hófst handa. Hún segist lengi
hafa velt fyrir sér hvernig stólan
ætti að líta út. „Ég fór marga hringi
og að lokum ákvað ég að hafa engin
trúarleg tákn nema hvað ég setti
daufar útlínur af dúfu á bakhliðina.“
Hún hafi valið mismunandi efni víðs
vegar að og ákveðið að hafa kon-
urnar í mismunandi litum.
„Ég þurfti oft að rekja upp, snúa
við og færa til,“ heldur Sigríður
áfram. „Við erum sjómannsdætur
og því hefst sagan í fjörunni og
fikrast upp fjallið, en ég hafði stól-
una hvíta svo nota mætti hana við
flestar athafnir í kirkjunni.“
Sigríður segir að vinnan hafi verið
skemmtileg og heillandi. „Það er
sérstaklega gaman að sauma handa
fjölskyldu sinni. Þegar saumað er
fyrir einhvern koma aldrei neikvæð-
ar hugsanir og því þjálfar sauma-
skapurinn jákvætt hugarfar. Hann
er því til góðs jafnt í sorg sem gleði.“
Saumaskapur þjálfar
jákvætt hugarfar
- Minningin lifir í stólu eftir Sigríði Jóhannesdóttur
Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir
Í saumaherberginu Sigríður við verk sitt „Skyldi þetta verða harður vetur?“
Í Grundarfjarðarkirkju Sr. Aðal-
steinn Þorvaldsson með stóluna.