Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 68
Eitt kunnasta tónskáld Breta, Thomas Adès, stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Hörpu í kvöld. Á efnisskránni er hans eigin píanókonsert, „In Seven Days“, sem staðarlistamaður hljómsveitarinnar, Vík- ingur Heiðar Ólafsson, flytur. Víkingur hefur flutt verk- ið nokkrum sinnum á tónleikum í Evrópu í haust. Á efn- isskránni verður líka annað verk eftir Adès, „Dawn“, og „Rakastava“ og svíta úr „Ofviðrinu“ eftir Jean Sibelius. Framvísa þarf neikvæðu Covid-hraðprófi fyrir tón- leikana og því mikilvægt að mæta tímanlega. Eldborg er skipt upp í þrjú sóttvarnahólf og er grímuskylda. Víkingur Heiðar flytur með SÍ kons- ert Adès sem stjórnar flutningnum FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 322. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Hulda Bjarnadóttir verður sjálfkörin nýr forseti Golf- sambands Íslands á Golfþingi 2021 sem fer fram á Fosshóteli í Reykjavík dagana 19. og 20. nóvember. Hulda hefur setið í stjórn GSÍ undanfarin fjögur ár og er því flestum hnútum kunnug innan sambandsins. „Þetta er fyrst og fremst rosalega mikill heiður að fá að leiða sambandið,“ sagði Hulda í samtali við Morgun- blaðið. „Ég er bara spennt og til í slaginn og líka auð- mjúk að fá að taka við svona embætti fyrir hönd sam- bandsins og hreyfingarinnar,“ sagði Hulda. »57 Auðmjúk og spennt að taka við embætti forseta Golfsambandsins ÍÞRÓTTIR MENNING FRÍ HEIMSENDING Þegar keyptar eru smávörur fyrir 9.900 kr. eða meira. frá 16. - 21. nóvember SAVONA Svefnsófi með legubekk áður 109.900 kr. - nú 82.425 kr. CORBY Borðstofustóll áður 15.900 kr. - nú 11.925 k SEAFORD Hilla m/zig zag hillum áður 23.900 kr. - nú 17.925 kr. 25% r. 25% 25% 20% RICHMOND Borðstofuborð áður 79.900 kr. - nú 63.920 kr. happy days 20-30% af völdum vörum 25% LUMINI Grjónapúðar áður 19.900 kr. - nú 14.925 kr. MARBLE Kertastjaki úr marmara áður 3.495 kr. - nú 2.795 kr. 20% ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 Virkir dagar 11-18.30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 Virkir dagar 11-18 ALLIR KERTASTJAKAR ilva.is Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bútasaumskonan Sigríður Jóhann- esdóttir lauk nýverið við stólu, sem hún byggði á draumi Kristínar, syst- ur sinnar, og saumaði til minningar um hana. „Verkið var tilbúið um tveimur og hálfu ári eftir að ég hófst handa fyrir alvöru með því að teikna söguna.“ Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sókn- arprestur í Grundarfjarðarkirkju og tengdasonur Kristínar, bað hana að gera stólu að eigin vali fyrir margt löngu, eins og fram kemur í frétt um málið á vef kirkjunnar (kirkjan.is). Hann segir að þar sem hann hafi aldrei hitt tengdamóður sína, því hún hafi dáið áður en hann kynntist Línu Hrönn Þorkelsdóttur, konu sinni, sé stólan sér einstaklega kær. „Hún [Sigríður] ákvað að fara þessa leið og fyrir vikið er stólan miklu persónulegri en ella, því frá því við konan mín kynntumst hefur Kristín verið stór hluti af lífi mínu.“ Draumurinn sat í henni Kristín dó úr krabbameini 1997, tæplega 44 ára að aldri. Sigríður segir að þær hafi verið mjög nánar og draumur sem Kristínu hafi dreymt og hún sagt sér frá um hálfu ári fyrir andlátið hafi setið í sér. „„Ég er viss um að ég á eftir að komast í gegnum þetta,“ sagði hún og sagði mér síðan drauminn.“ Samkvæmt draumnum var Krist- ín á gangi með tveimur konum í óþekktu umhverfi. Leiðin lá upp fjall eftir einstigi og gekk Kristín fremst. Þegar hún leit við sá hún að sú sem aftast gekk var horfin. Síðar frétti hún að konan væri dáin. Hinar héldu áfram í fjölbreyttu landslagi og þegar þær voru komnar ofarlega leit Kristín aftur til baka og þá var hin konan líka horfin. Þá vissi Krist- ín að hún hafði læknast. Kristín gekk á fjallstoppinn. Þar var lítill gróður en henni leið mjög vel í birt- unni sem þar var. „Þannig endaði draumurinn og hún sagðist vera viss um að fyrst hún komst upp á fjallið og sá svona mikla birtu hlyti hún að læknast. Það var hennar túlkun en því miður rættist hún ekki,“ segir Sigríður. Að fengnu samþykki prests- hjónanna Aðalsteins og Línu Hrannar Þorkelsdóttur, dóttur Kristínar, um að byggja verkið á draumnum kynnti Sigríður sér stól- ur, sem eru hluti af messuklæðum, og hófst handa. Hún segist lengi hafa velt fyrir sér hvernig stólan ætti að líta út. „Ég fór marga hringi og að lokum ákvað ég að hafa engin trúarleg tákn nema hvað ég setti daufar útlínur af dúfu á bakhliðina.“ Hún hafi valið mismunandi efni víðs vegar að og ákveðið að hafa kon- urnar í mismunandi litum. „Ég þurfti oft að rekja upp, snúa við og færa til,“ heldur Sigríður áfram. „Við erum sjómannsdætur og því hefst sagan í fjörunni og fikrast upp fjallið, en ég hafði stól- una hvíta svo nota mætti hana við flestar athafnir í kirkjunni.“ Sigríður segir að vinnan hafi verið skemmtileg og heillandi. „Það er sérstaklega gaman að sauma handa fjölskyldu sinni. Þegar saumað er fyrir einhvern koma aldrei neikvæð- ar hugsanir og því þjálfar sauma- skapurinn jákvætt hugarfar. Hann er því til góðs jafnt í sorg sem gleði.“ Saumaskapur þjálfar jákvætt hugarfar - Minningin lifir í stólu eftir Sigríði Jóhannesdóttur Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Í saumaherberginu Sigríður við verk sitt „Skyldi þetta verða harður vetur?“ Í Grundarfjarðarkirkju Sr. Aðal- steinn Þorvaldsson með stóluna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.