Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
Val di Fassa
5. febrúar í 7 næturSkíðaferð
Verð á mann frá
142.500
Verð á mann frá
165.700
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Óvissa ríkir meðal starfsmanna
Stjórnarráðsins vegna uppstokkun-
ar á ráðuneytum sem kynnt var um
helgina. Ljóst er að miklar breyting-
ar eru í vændum en þó liggur end-
anleg útfærsla ráðuneytanna ekki
fyrir með tilliti til húsnæðis- og
starfsmannamála, með tilheyrandi
óþægindum fyrir þá sem það varðar.
„Eins og staðan er núna vitum við
eiginlega bara ekki neitt,“ segir Þór-
veig Þormóðsdóttir, formaður Fé-
lags starfsmanna Stjórnarráðsins,
spurð út í þá stöðu er félagsmenn
standa frammi fyrir. Þórveig segir
félagsmenn ekki hafa fengið neinar
upplýsingar um uppstokkunina fyrir
fram en tilkynning um breytt fyr-
irkomulag barst fyrst um hádegi á
sunnudag, sem er um það leyti er
stjórnarsáttmálinn var kynntur.
„Við vitum ekkert hvernig þessu
verður stillt upp eða hversu margir
verða að vinna í hvaða ráðuneyti. [...]
Fyrirspurnirnar sem við höfum sent
koma til baka: „Við vitum það ekki.“
Það er bara svoleiðis. Við verðum
bara að vera þolinmóð á meðan,“
segir Þórveig og bætir við að líklega
berist svör ekki fyrr en eftir áramót.
Starfsgildum fjölgi jafnvel
En veit fólk hvert það er að fara?
„Auðvitað vita það sumir, þar sem
heilu fagskrifstofurnar flytjast milli
ráðuneyta eða fara í ný ráðuneyti.
En síðan er hluti af okkar fé-
lagsmönnum sem eru í stoðþjónustu-
skrifstofum sem vita ekki hvernig
þetta fer því það eru ekki komnar
neinar upplýsingar um mönnun í
nýjum ráðuneytum.“
Hún kveðst þó ekki eiga von á því
að starfsgildum fækki, frekar að
þeim fjölgi ef eitthvað er og óttast
því ekki margir um starf sitt. Enn sé
mörgum spurningum þó ósvarað.
Friðrik Jónsson, formaður Banda-
lag íslenskra háskólamanna, sem
Félag háskólamenntaðra starfs-
manna Stjórnarráðsins heyrir undir,
segir heldur engar upplýsingar hafa
borist félagsmönnum um uppstokk-
un ráðuneyta fyrir fram.
Friðrik hefur nú sent tölvupóst á
forsætisráðherra þar sem hann ósk-
ar eftir því að BHM verði upplýst um
með hvaða hætti stjórnvöld hafa
hugsað sér framkvæmd þessara
breytinga og hvaða samráð hefur
verið undirbúið eða áætlað af þeirra
hálfu við stéttarfélög starfsmanna.
hmr@mbl.is
Starfsfólk í óvissu vegna
uppstokkunar ráðuneyta
- Býst ekki við svörum fyrir áramót - BHM verði upplýst
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Félagbústaðir, Arkitektafélag Ís-
lands og Reykjavíkurborg ætla að
efna til arkitektasamkeppni snemma
á nýju ári. Hún mun snúast um að
byggja hæð ofan á nokkur lyftulaus
fjölbýlishús sem alfarið eru í eigu Fé-
lagsbústaða og jafnframt að setja
lyftur í húsin, að sögn Ævars Harð-
arsonar, arkitekts og deildarstjóra
hjá Hverfisskipulagi Reykjavíkur.
„Samkeppnin mun snúast um að
finna góðar og hagkvæmar lausnir,
bæði skipulagslega og tæknilega, og
vekja með því áhuga byggingariðn-
aðarins. Ef til vill finnast góðar og
hagkvæmar lausnir sem gætu þá
vakið áhuga húsfélaga,“ sagði Ævar.
Hann sagði að enn sem komið er hafi
engin umsókn borist um leyfi fyrir
framkvæmd af þessu tagi.
Nýtt hverfisskipulag, sem hefur
verið samþykkt fyrir Árbæjarhverfi
og er á lokametrunum fyrir Breið-
holtið, heimilar að byggja inndregna
hæð ofan á lyftulaus fjölbýlishús og
bæta við lyftu. Sömu áform eru í
vinnutillögum fyrir Hlíðahverfi, Há-
teigshverfi og Öskjuhlíð. Gróft áætl-
að má ætla að bygging ofan á fjöl-
býlishús í Arbæjarhverfi og
Breiðholti geti þýtt 2-3 íbúðir á hvert
húsnúmer eftir útfærslum. Það getur
geti þýtt 800-1.200 nýjar íbúðir ef
þessi möguleiki verður alls staðar
nýttur. Sigurður Helgi Guðjónsson,
lögfræðingur og formaður
Húseigendafélagsins, telur það ólík-
legt.
Mögulegt ef einn eigandi er
„Þetta er tálsýn. Það þarf að liggja
fyrir samþykki allra íbúðareigenda í
fjöleignahúsi fyrir svona framkvæmd
og það næst aldrei,“ sagði Sigurður.
„Þeir sem búa á neðstu hæðinni
munu ekki sjá ástæðu til að hafa lyftu
og munu aldrei gera þetta. Þetta get-
ur ef til vill orðið í húsum sem eru í
eigu eins aðila, eins og Félagsbú-
staða. Eða ef verktaki kaupir allar
íbúðirnar og ákveður að byggja ofan
á.“ Sigurður sagði ljóst að mikið
ónæði og röskun muni fylgja svona
framkvæmdum fyrir íbúa fjöleign-
arhússins. „Þetta er óframkvæm-
anlegt nema einn aðili eigi allt.“
Hann kvaðst hafa skrifað frumvarp
til laga um fjöleignarhús og vera
prófdómari við lagadeild Háskóla Ís-
lands í þeim efnum. „Ég myndi fella
alla nemendur sem skildu þetta öðru
vísi en svo að það þyrfti samþykki
allra íbúðaeigenda,“ sagði Sigurður.
Mun auka verðmæti íbúða
Pawel Bartoszek, formaður skipu-
lags- og samgönguráðs Reykjavíkur,
skrifaði í aðsendri grein í Morg-
unblaðinu 29. nóvember sl. að þús-
undir Reykvíkinga búi í lyftulausum
fjögurra hæða fjölbýlishúsum. Hann
segir að verðmæti íbúðanna aukist
við að setja lyftu. Verðmæti íbúðar á
2. hæð aukist um 7% með lyftu, um
15% á 3. hæð og 23% á 4. hæð.
Lyftulaus fjögurrahæðaeðahærri fjölbýlishús
Fjöldi húsa* Fjöldi lóða** Núverandi fjöldi íbúða
Breiðholt
Seljahverfi 60 15 403
Efra-Breiðholt 193 40 1.689
Neðra-Breiðholt*** – – –
Samtals í Breiðholti 253 55 2.092
Árbær
Ártúnsholt – – –
Árbær 110 8 904
Seláshverfi 52 13 418
Samtals í Árbæ 162 21 1.322
Samtals í Breiðholti og Árbæ 415 76 3.414
*Með hús er átt við húsnúmer en víða eru nokkur húsnúmer samtengd innan sömu lóðar. **Víða standa tvö eða
fleiri fjölbýlishús á einni lóð. *** Ekki eru veittar heimildir til þess að setja lyftur við fjölbýlishúsin í Bökkum í Neðra-
Breiðholti vegna tillögu um að hverfisvernd á fjölbýlishúsabyggðina. Þar eru 152 fjölbýlishús með 1.161 íbúð.
Breiðholt og Árbær
Samkeppni um aukahæð og lyftu
- Byggja má hæð ofan á lyftulausar fjögurra hæða blokkir í Árbæ og Breiðholti og setja um leið
lyftu - Formaður Húseigendafélagsins segir að samþykki allra eigenda íbúða í blokkinni sé skilyrði
Starfsfólk í Bláfjöllum fagnaði snjó-
komunni í vikubyrjun meðan marg-
ir aðrir á höfuðborgarsvæðinu pirr-
uðu sig á umferðarteppu samfara
ofankomunni. Magnús Árnason,
framkvæmdastjóri skíðasvæða höf-
uðborgarsvæðisins, segir að nú sé
unnið að hefðbundnum undirbún-
ingi fyrir vetrarvertíðina.
Enn vantar snjó í skíðabrekk-
urnar svo hægt sé að renna sér af
öryggi á skíðum og brettum. Ein-
hverjir hafa notað síðustu daga til
skíðagöngu, en Magnús segir að til
þessa hafi aðeins verið hægt að
troða gönguspor með vélsleða en
ekki troðara.
Samkvæmt veðurspá er líklegt
að rigni nokkuð fram á morgun-
daginn á láglendi á höfuðborgar-
svæðinu, en Magnús gerir sér vonir
um að á sama tíma fenni duglega í
Bláfjöllum. Hann gerir sér vonir
um að fyrr en seinna verði hægt að
opna þar, en oft hafi verið hægt að
skíða í Bláfjöllum i desember. Morgunblaðið/Eggert
Vonast
eftir góðum
desember
Snjókomu fagnað í Bláfjöllum þar sem unnið er að undirbúningi vertíðarinnar