Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 4
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Alþingi Birgir Ármannsson, nýkjörinn forseti Alþingis, stýrir þingfundi.
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, var í gær kjörinn forseti
Alþingis mótatkvæðalaust.
Oddný G. Harðardóttir úr Sam-
fylkingu (S) verður 1. varaforseti
þingsins, Líneik Anna Sævarsdóttir
úr Framsókn (B) 2., Inga Sæland, for-
maður Flokks fólksins (F), 3., Diljá
Mist Einarsdóttir úr Sjálfstæðis-
flokki (D) 4., Björn Leví Gunnarsson
úr Pírötum (P) 5. og Jódís Skúladóttir
frá Vinstri grænum (V) verður 6.
varaforseti.
Formenn fastanefnda verða Bryn-
dís Haraldsdóttir (D) í allsherjar- og
menntamálanefnd, Stefán Vagn Stef-
ánsson (B) í atvinnuveganefnd, Guð-
rún Hafsteinsdóttir (D) í efnahags- og
viðskiptanefnd, Bjarkey Olsen Gunn-
arsdóttir (V) í fjárlaganefnd, Þórunn
Sveinbjarnardóttir (S) í stjórnskipun-
ar- og eftirlitsnefnd, Vilhjálmur
Árnason (D) í umhverfis- og sam-
göngunefnd, Bjarni Jónsson (V) í ut-
anríkismálanefnd, og Líneik Anna
Sævarsdóttir (B) í velferðarnefnd.
Birgir Ármannsson
forseti Alþingis
- Kosið í embætti og nefndir þingsins
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
JÓL OG ÁRAMÓT
Á TENERIFE EÐA ALICANTE
HÁTÍÐ SÓLAR OG FRIÐAR
23. DESEMEBER - 06. JANÚAR
22. DESEMEBER - 11. JANÚAR
TENERIFE
ALICANTE
Tryggðu þér sæti út í sól um jólin fyrir alla
fjölskylduna. Slappaðu af um hátíðarnar á hóteli
fjarri öllu jólaamstri. Um jólin er um það bil
20° - 21° hiti á Alicante og Tenerife.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti
stefnuræðu sína og nýrrar ríkisstjórnar á Al-
þingi í gærkvöldi og reifaði þar helstu stefnu-
mál hennar.
Að því leyti var ræðan endurómur hins ýt-
arlega stjórnarsáttmála, sem kynntur var lið-
inn sunnudag, en af henni mátti vel ráða hvað
forsætisráðherra þykir mikilvægast. „Verk-
efnið nú er að byggja upp hagkerfið og styrk
ríkisfjármálanna að nýju með stuðningi við
fjölbreyttara og sterkara atvinnulíf, aukinni
opinberri fjárfestingu í grænum verkefnum,
rannsóknum, nýsköpun og skapandi greinum.“
Meðal helstu breytinga sagði forsætisráð-
herra að húsnæðismál yrðu samþætt við skipu-
lags- og samgöngumál og nefndi að áfram yrði
unnið samkvæmt höfuðborgarsáttmálanum.
Frítekjumark vegna atvinnutekna eldri borg-
ara yrði tvöfaldað um næstu áramót og málefni
örorkulífeyrisþega tekin til endurskoðunar. Þá
varði hún nokkrum tíma til þess að fjalla um
loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar, sem
snertu ótal svið. Katrín sagði að áfram yrði
haldið endurskoðun laga um eignarhald á landi
og fasteignum; mikilvægir grundvallarinnviðir
væru best geymdir í almannaeigu og boðaði
frumvarp um rýni á fjárfestingum útlendinga
á þeim.
Breytingar á stjórn ríkisins
Ráðherrann sagði að haldið yrði áfram
vinnu við breytingar á stjórnarskrá, sem hún
kvað mikilvægt að Alþingi gerði, ekki síst um
auðlindir í þjóðareign og náttúruvernd. Hún
sagði eðlilegt að það tæki tíma að breyta
stjórnarskránni; mestu skipti „að við vöndum
okkur og náum niðurstöðu sem sátt ríkir um“.
Hún vék að breytingum á Stjórnarráðinu og
sagði æskilegt að það væri sveigjanlegt til þess
að stefna ríkisstjórnar og vilji þings gengi vel
fram. Kvaðst Katrín vilja endurskoða lög um
Stjórnarráðið og sagðist leita eftir góðu sam-
ráði við alla flokka á Alþingi þar um.
Loks vék forsætisráðherra að íslenskum
stjórnmálum og hvatti til aukins umburð-
arlyndis í opinberri umræðu. „Rökræða og
jafnvel stöku rifrildi eru mikilvæg forsenda
þess að við leiðum fram kosti og galla hvers
máls. Við þurfum því að sýna skoðunum ann-
arra meiri virðingu en stundum er gert í ha-
naslag netsins og hollt að muna að það er eng-
inn sem er handhafi alls hins rétta og góða í
samfélaginu.“
Stjórnarandstaðan óhress
Stjórnarandstæðingar voru ekki jafn-
ánægðir með stöðuna. Kristrún Frostadóttir í
Samfylkingu tók t.d. undir sjónarmið Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar í Miðflokki
um að eiginleg pólitík virtist vera á und-
anhaldi.
„Það er mynduð stjórn sem virðist ekki
standa fyrir neitt, vekur lítil viðbrögð – rýnik-
annanir og ráðgjafar sníða burtu pólitíska
sannfæringu úr setningum svo þær veki ekki
upp of miklar tilfinningar. Pólitík þykir orðið
skammaryrði.“
Björn Leví Gunnarsson frá Pírötum tók í
sama streng og sagði niðurstöðuna úr leyni-
makki leiðtoga stjórnarinnar hafa verið 11
blaðsíðna stjórnarsáttmála sem hafi verið
teygður á 60 síður til að fela hversu innihalds-
laus hann væri.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður
Viðreisnar, var sama sinnis og sagði stjórn-
arsáttmálann innantóman óskalista, ekki póli-
tík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stefnuræða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöld og gerði grein fyrir stjórnarsáttmálanum, helstu áskorunum, stjórnskipan og umræðuhefð.
Lög um Stjórnarráðið endurskoðuð
- Stefnuræða forsætisráðherra - Stjórnarskrárbreytingar á döfinni - Hvetur til bættrar umræðu
Ný ríkisstjórn tekur við