Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Bjarni Jónsson rafmagnsverk-
fræðingur skrifar á blog.is
um verð á orku á meginlandi Evr-
ópu og á Bretlandseyjum og
bendir á að það sé hátt. Þá segir
hann: „Þann 8.11.
2021 tilkynnti
Landsvirkjun um
hækkun raf-
orkuverðs skamm-
tímasamninga við
almenningsveit-
urnar og ber við
lágri miðlunarlóns-
stöðu, enda er vatnshæðin í Þóris-
vatni óbeysin í byrjun vetrar. Ef
orkumálum landsins væri al-
mennilega stjórnað, og ekki bara
látið reka á reiðanum, þá væri ný
virkjun á borð við Hvamms-
virkjun (95 MW) að taka til starfa
nú í haust, og engin hætta væri á
vatnsleysi í Þórisvatni (sama
vatnið og í virkjunum ofar), en
enginn er lagalega ábyrgur fyrir
því, að á hverjum tíma, nema í
náttúruhamförum, sé tiltæk næg
raforka.“
- - -
Bjarni segir einnig að með því
að hækka raforkuverðið sé
ætlunin að draga úr eftirspurn-
inni, en hefur efasemdir um að
fólk dragi úr raforkunotkun
vegna verhækkunar Landsvirkj-
unar.
- - -
Þá nefnir Bjarni að Landsnet
undirbúi nú uppboðskerfi
raforku, „og þá mun orkuskort-
urinn bitna á almenningi fyrir al-
vöru,“ segir hann og vísar til þess
að Noregur sé með svipað kerfi
og hátt orkuverð.
- - -
Og Bjarni spyr: „Munu innviða-
ráðherra og/eða orkuráð-
herra grípa í taumana, áður en
tjöldin verða dregin frá í þessu
leikhúsi fáránleikans, eða á að
skýla sér á bak við Orkupakka 3
frá ESB, sem jú er í gildi hér.“
Bjarni Jónsson
Óþarfur
orkuskortur?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Opnað hefur verið fyrir umsóknir
um skráningu í almannaheillaskrá
Skattsins. Skráningin er ætluð
óhagnaðardrifnum félögum.
Með lögum sem samþykkt voru á
Alþingi fyrr á þessu ári var heim-
ilaður frádráttur frá skattskyldum
tekjum vegna gjafa og framlaga til
lögaðila sem uppfylla tiltekin skil-
yrði og eru í almannaheillaskrá.
Hann getur numið samtals 350
þúsund krónum á almanaksári.
Meðal þeirra skilyrða sem lög-
aðilar þurfa að uppfylla til þess að
gjafir eða framlög til þeirra skapi
frádráttarrétt hjá gefanda eru:
Mannúðar- og líknarstarfsemi,
æskulýðs-, íþrótta- og menningar-
málastarfsemi, starfsemi björg-
unarsveita, vísindaleg rannsókn-
arstarfsemi, starfsemi sjálfstæðra
háskólasjóða og annarra mennta-
sjóða, neytenda- og forvarna-
starfsemi, starfsemi þjóðkirkjunnar,
þjóðkirkjusafnaða og annarra
skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga.
Viðkomandi móttakandi gjafar eða
framlags þarf að vera skráður í al-
mannaheillaskrá á því tímamarki
þegar gjöf er afhent eða framlag
veitt. Lögaðilar sem uppfylla skil-
yrði til að vera skráðir í almanna-
heillaskrá þurfa að sækja um það til
Skattsins. sisi@mbl.is
Búið að opna almannaheillaskrá
- Gjafir eða framlög til skráðra félaga
skapa skattafrádrátt hjá gefandanum
Morgunblaðið/sisi
Skatturinn Hefur umsjón með
skránni yfir félög til almannaheilla.
Jón Sigurbjörnsson leik-
ari lést á Hrafnistu í
Reykavík sl. þriðjudag,
30. nóvember, 99 ára að
aldri.
Jón fæddist á Ölvalds-
stöðum í Borgarfirði 1.
nóvember 1922. For-
eldrar hans voru Ingunn
Kristín Einarsdóttir
húsfreyja (1896-1986) og
Sigurbjörn Halldórsson
(1873-1948).
Jón ólst upp í Borg-
arnesi og hóf sinn starfs-
feril sem vega-
vinnumaður og
mjólkurbílstjóri. Hann lauk prófi frá
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1941.
Stundaði nám í Leiklistarskóla Lár-
usar Pálssonar 1944-45 – jafnhliða
tónlistarnámi hjá Páli Ísólfsssyni.
Síðan fór hann til leiklistarnáms við
The American Academy of Dramatic
Arts í New York. Einnig nam Jón óp-
erusöng, bæði á Ítalíu og á Íslandi.
Jón hóf leiklistarferil sinn hjá
Leikfélagi Reykjavikur vorið 1949.
Hann lék þar næstu ár og var for-
maður félagsins 1956-59. Jón var
fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið
1960-67, að undanskildum árunum
1964 og 1965 er hann var ráðinn til
konunglegu sænsku óperunnar í
Stokkhólmi. Óperuhlutverk hans
voru mörg, bæði erlendis og hér
heima.
Jón var fastráðinn
leikari Leikfélags
Reykjavikur árin 1967-
1992. Þar lék hann mörg
hlutverk, t.d. í Villiönd-
inni eftir Henrik Ibsen
og Pétri og Rúnu eftir
Birgi Sigurðsson. Jón
var jafnframt mikil-
virkur leikstjóri. Hann
var heiðursfélagi Leik-
félags Reykjavíkur.
Hann leikstýrði svo
töluvert hjá áhugaleik-
félögum, og þá helst á
Flúðum. Hann var mik-
ill áhugamaður um kvik-
myndir og lék í þeim nokkrum, t.d.
Landi og sonum eftir Ágúst Guð-
mundsson og Magnúsi eftir Þráin
Bertelsson.
Árið 1977 kom út hljómplatan
Fjórtán sönglög eftir íslenska höf-
unda með söng Jóns þar sem Ólafur
Vignir Albertsson lék með á píanó.
Árið 2003 gaf Ríkisútvarpið út veg-
legan geisladisk með söng Jóns undir
yfirskriftinni Útvarpsperlur.
Jón fluttist að Helgastöðum í Bisk-
upstungum árið 1992, þar sem hann
stundaði hestamennsku og hrossa-
rækt. Síðustu sex árin bjó Jón á
Hrafnistu í Reykjavík.
Jón kvæntist Þóru Friðriksdóttur
leikkonu (1933- 2019). Þau skildu
1981. Dætur Jóns og Þóru eru Lára
og Kristín.
Andlát
Jón SigurbjörnssonBaðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15