Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 28
28 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Þýðingar á Reisubók séra Ólafs Eg- ilssonar hafa gjörbreytt þeirri mynd sem fólk hefur af Tyrkjaránunum sumarið 1627. Þau voru aðskilin, annað í júní í Grindavík og hitt á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum í júlí. Ekki er alls kostar rétt að tengja Tyrki við ránin því sjóræn- ingjarnir komu frá Alsír og borginni Sale í Marokkó og voru af ýmsu þjóðerni. Ránin tengdust ófriði í Evrópu, 80 ára stríðinu milli Bene- luxlandanna, Hollands, Belgíu og Luxemborgar, og Spánar. Meðan þau geisuðu voru sjóræningjarnir með uppáskrifað leyfi til að ráðast á öll skip önnur en hollensk og herjuðu víða á lönd. Í bráðabirgðavopnahléi í stríðinu þrengdist um starfsemina sem leiddi þá m.a. til Íslands þar sem þeir rændu um 400 manns og drápu tugi. Athyglisverður er hlutur Hollend- inganna sem stýrðu herförinni. Tveir harðsvíraðir sjóræningjaforingjar lögðust á sveif með múslimum í að ræna hvítum kristnum Evrópubúum og hneppa þá í þrældóm. Hópur ribbalda Þetta er meðal þess sem fram kom á fjölþjóðlegri ráðstefnu um Tyrkja- ránin sem haldin var í Vest- mannaeyjum á dögunum á vegum Söguseturs 1627. Fyrirlesarar voru frá Íslandi, Svíþjóð, Hollandi og Bandaríkjunum. Kynntar voru nýjar fræðilegar útgáfur og skáldsögur byggðar á Tyrkjaráninu. Sögusetur 1627 hefur starfað frá árinu 2006 og beitir sér fyrir fræðslu um sögu Vestmannaeyja, rannsóknum, ráð- stefnum og viðburðum og útgáfu efnis sem tengist sögu Vest- mannaeyja, með áherslu á Tyrkja- ránið 1627. Gestirnir eru allir vel þekktir fræðimenn og rithöfundar. Karl Smári Hreinsson, rithöfundur og þýðandi, Mats Royter, rithöfundur frá Svíþjóð, Joris van Os, þýðandi og kvikmyndagerðarmaður frá Hol- landi, og hinn bandaríski prófessor Adam Nichols. Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahúss Vestmannaeyja, stýrði ráðstefnunni og gat þess í ávarpi sínu að Reisubók séra Ólafs Egils- sonar væri eitt mesta bókmennta- afrek Íslandssögunnar. Reisubókin er samtímasaga og frásögn manns sem var rænt ásamt fjölskyldu sinni. Í bókinni lýsir Ólafur ráninu og því hvernig hann missti allt sitt. Hann segir frá þrælahaldinu og leið sinni um Evrópu til Kaup- mannahafnar og Íslands. „Meira en helmingur íbúa Vestmannaeyja var hertekinn, eða 242 af um 400 til 450 íbúum. Menn, konur og börn voru seld í þrældóm og á fjórða tug íbúa drepnir. Er það ein af ráðgátum Tyrkjaránsins, hvernig hægt var að mynda samfélag í Vestmannaeyjum að nýju eftir þetta mikla áfall,“ sagði Kári. Reisubókin einstök heimild Kárin sagði bókina skyldulesn- ingu og mættu Vestmannaeyingar vera stoltir af. „Þegar rætt er um Reisubókina er aldrei ofmælt. Hún er einstök heimild um þá hörmulegu atburði sem sjórán og þrælasala var á sautjándu öld,“ sagði Kári sem ásamt Má Jónssyni sagnfræðingi sá á síðasta ári um myndarlega útgáfu á Reisubókinni og fleiri textum tengdum Tyrkjaráninu. Karl Smári er sannfærður um að séra Ólafur hafi skrifað bókina að beiðni Odds Einarssonar, biskups í Skálholti. Til eru um 30 handrit af Reisubókinni og var hún þýdd á dönsku árið 1741 þegar guðsorða- bækur voru allsráðandi. „Reisubókin var óþekkt erlendum fræðimönnum þar til við Adam þýddum hana á ensku árið 2008,“ sagði Karl Smári sem ásamt Adam Nichols hefur skrifað þrjár skáldsögur á ensku, byggðar á Tyrkjaránunum. Sú nýj- asta er Stolen Lives sem fjallar um árásina á Heimaey. Fleiri hafa fetað sama veg og nefndi hann fjölda rit- höfunda sem skrifað hafa bækur byggðar á Reisubókinni. „Ég efast um að nokkur íslensk bók, nema kannski Njála, hafi kveikt áhuga fleiri fræðimanna um allan heim og orðið kveikjan að jafn mörg- um greinum og sögum.“ Klettarnir í sögunni Mats Royter fékk Reisubókina í hendur árið 2014 og nýjasta bók hans fjallar um örlög fjölskyldu í Vestmannaeyjum sem Tyrkir rændu og seldu í þrælahald 1627. „Ég kom til Vestmannaeyja í september 2014 til að sjá hvar ræningjarnir komu á land, skoða landslagið og klettana sem skipta svo miklu í sögunni,“ sagði Mats en bók hans heitir Turkräden. – Mats baðst afsökunar á hlut landa sinna. Joris van Os, rithöfundur, þýðandi og kvikmyndagerðarmaður, sem þýddi Reisubókina á hollensku, fjallaði um þátt landa sinna í Tyrkja- ráninu. Sagði hann miskunnarleysi þeirra og grimmd hafa komið bæði sjálfum sér og Hollendingum á óvart. „Þeir voru með leyfi frá hol- lenskum stjórnvöldum til að ræna, nauðga og drepa að vild svo lengi sem það var óvinurinn. Saga fólksins í Vestmannaeyjum sem mátti þola dauða, grimmd og eyðileggingu snart fólk,“ sagði Joris van Os. „Það kom okkur í opna skjöldu að for- ingjar þeirra voru hollenskir. Þið getið því kennt okkur um Tyrkjarán- ið 1627 og vil ég biðja Íslendinga op- inberlegrar afsökunar,“ sagði Joris við góðar undirtektir gesta. Miskunnarlausir menn Adam Nichols, sem er flestum fróðari um sögu sjórána, fjallaði sér- staklega um foringja sjóræningj- anna og forsendur fyrir Tyrkjarán- inu. Mórat Reis kom frá Sale og fór fyrir ræningjunum sem réðust á Grindavík en Mórat Flamengo stýrði ræningjunum sem réðust á Austfirði og Vestmannaeyjar. „Fyrri árásin var í lok júní þegar skip réðst á Grindavík, gerði mis- heppnaða árás á Bessastaði og rændi ensk fiskiskip á Vestfjörðum. Hélt héðan með 50 til 60 fanga, Ís- lendinga, Dani og Englendinga. Sú seinni var í júlí og byrjaði með því að tvö og seinna þrjú skip réðust á Austfirði, Djúpavog og firði þar í kring. Til Vestmannaeyja komu þeir 16. júlí og lýsingar af grimmd þeirra eru hreint ótrúlegar. Hertóku um 250 manns og seldu í þrældóm.“ Mikið er vitað um Mórat Reis og Mórat Flamengo. Báðir efnuðust vel og komust til mikilla áhrifa. „Þetta voru framtakssamir menn en líka miskunnarlausir en fyrst og síðast viðskiptamenn sem nýttu tækifærin sem sjórán og þrælasala bauð upp á,“ sagði Adam um þessi varmenni sem hann þekkir vel eftir rannsóknir sínar og heimildaleit um langa hríð. Hollendingar frömdu Tyrkjaránin - Ráðstefna í Eyjum um atburðina 1627 - Vil ég biðja Íslendinga afsökunar sagði hollenskur fyrir- lesari - Hluti af 80 ára stríðinu - Reisubók séra Ólafs fer víða um heiminn - Gengur næst Njálu Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Spilverk Tríó Ásgeirs Ásgeirssonar flutti íslensk þjóðlög í austrænum stíl. Adam Grimmdin var ótrúleg. Kári Ránið var mikið áfall.Mats Royter Skoða landslagið. Joris van Os Drápu með leyfi. Karl Smári Áhugi fræðimanna. N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftibú Komið og skoðið úrvalið ÓLUM naði OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is SUZUKI - SX4 S-CROSS GL – RN. 331607 Nýskráður 5/2019, ekinn 57 þ.km., bensín, brúnn, sjálfskiptur, hraðastillir, litað gler, bakkmyndavél, kastarar, hiti í framsætum. Verð 3.980.000 kr. DACIA - DUSTER – RN. 191965 Nýskráður 6/2019, ekinn 71 þ.km., bensín, ljós- grár, beinskiptur, aksturstölva, hiti í framsætum, loftþrýstingsskynjarar, hraðastillir, bluetooth. Verð 2.590.000 kr. SUBARU - LEGACY – RN. 191975 Nýskráður 1/2012, ekinn 204 þ.km., bensín, hvítur, sjálfskiptur, aðgerðarhnappar í stýri, álfelgur, AUX hljóðtengi, armpúði, hiti í sætum. Verð 1.190.000 kr. TOYOTA - RAV4 HYBRID – RN. 331504 Nýskráður 10/2018, ekinn 126 þ.km., bensín/ rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, stöðugleikakerfi, bluetooth, umferðarskiltanemi, bakkmyndavél. Verð 3.690.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.