Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Þýðingar á Reisubók séra Ólafs Eg-
ilssonar hafa gjörbreytt þeirri mynd
sem fólk hefur af Tyrkjaránunum
sumarið 1627. Þau voru aðskilin,
annað í júní í Grindavík og hitt á
Austfjörðum og í Vestmannaeyjum í
júlí. Ekki er alls kostar rétt að
tengja Tyrki við ránin því sjóræn-
ingjarnir komu frá Alsír og borginni
Sale í Marokkó og voru af ýmsu
þjóðerni. Ránin tengdust ófriði í
Evrópu, 80 ára stríðinu milli Bene-
luxlandanna, Hollands, Belgíu og
Luxemborgar, og Spánar. Meðan
þau geisuðu voru sjóræningjarnir
með uppáskrifað leyfi til að ráðast á
öll skip önnur en hollensk og herjuðu
víða á lönd.
Í bráðabirgðavopnahléi í stríðinu
þrengdist um starfsemina sem leiddi
þá m.a. til Íslands þar sem þeir
rændu um 400 manns og drápu tugi.
Athyglisverður er hlutur Hollend-
inganna sem stýrðu herförinni. Tveir
harðsvíraðir sjóræningjaforingjar
lögðust á sveif með múslimum í að
ræna hvítum kristnum Evrópubúum
og hneppa þá í þrældóm.
Hópur ribbalda
Þetta er meðal þess sem fram kom
á fjölþjóðlegri ráðstefnu um Tyrkja-
ránin sem haldin var í Vest-
mannaeyjum á dögunum á vegum
Söguseturs 1627. Fyrirlesarar voru
frá Íslandi, Svíþjóð, Hollandi og
Bandaríkjunum. Kynntar voru nýjar
fræðilegar útgáfur og skáldsögur
byggðar á Tyrkjaráninu. Sögusetur
1627 hefur starfað frá árinu 2006 og
beitir sér fyrir fræðslu um sögu
Vestmannaeyja, rannsóknum, ráð-
stefnum og viðburðum og útgáfu
efnis sem tengist sögu Vest-
mannaeyja, með áherslu á Tyrkja-
ránið 1627.
Gestirnir eru allir vel þekktir
fræðimenn og rithöfundar. Karl
Smári Hreinsson, rithöfundur og
þýðandi, Mats Royter, rithöfundur
frá Svíþjóð, Joris van Os, þýðandi og
kvikmyndagerðarmaður frá Hol-
landi, og hinn bandaríski prófessor
Adam Nichols.
Kári Bjarnason, forstöðumaður
Safnahúss Vestmannaeyja, stýrði
ráðstefnunni og gat þess í ávarpi
sínu að Reisubók séra Ólafs Egils-
sonar væri eitt mesta bókmennta-
afrek Íslandssögunnar. Reisubókin
er samtímasaga og frásögn manns
sem var rænt ásamt fjölskyldu
sinni. Í bókinni lýsir Ólafur ráninu
og því hvernig hann missti allt sitt.
Hann segir frá þrælahaldinu og leið
sinni um Evrópu til Kaup-
mannahafnar og Íslands. „Meira en
helmingur íbúa Vestmannaeyja var
hertekinn, eða 242 af um 400 til 450
íbúum. Menn, konur og börn voru
seld í þrældóm og á fjórða tug íbúa
drepnir. Er það ein af ráðgátum
Tyrkjaránsins, hvernig hægt var að
mynda samfélag í Vestmannaeyjum
að nýju eftir þetta mikla áfall,“ sagði
Kári.
Reisubókin einstök heimild
Kárin sagði bókina skyldulesn-
ingu og mættu Vestmannaeyingar
vera stoltir af. „Þegar rætt er um
Reisubókina er aldrei ofmælt. Hún
er einstök heimild um þá hörmulegu
atburði sem sjórán og þrælasala var
á sautjándu öld,“ sagði Kári sem
ásamt Má Jónssyni sagnfræðingi sá
á síðasta ári um myndarlega útgáfu
á Reisubókinni og fleiri textum
tengdum Tyrkjaráninu.
Karl Smári er sannfærður um að
séra Ólafur hafi skrifað bókina að
beiðni Odds Einarssonar, biskups í
Skálholti. Til eru um 30 handrit af
Reisubókinni og var hún þýdd á
dönsku árið 1741 þegar guðsorða-
bækur voru allsráðandi. „Reisubókin
var óþekkt erlendum fræðimönnum
þar til við Adam þýddum hana á
ensku árið 2008,“ sagði Karl Smári
sem ásamt Adam Nichols hefur
skrifað þrjár skáldsögur á ensku,
byggðar á Tyrkjaránunum. Sú nýj-
asta er Stolen Lives sem fjallar um
árásina á Heimaey. Fleiri hafa fetað
sama veg og nefndi hann fjölda rit-
höfunda sem skrifað hafa bækur
byggðar á Reisubókinni.
„Ég efast um að nokkur íslensk
bók, nema kannski Njála, hafi kveikt
áhuga fleiri fræðimanna um allan
heim og orðið kveikjan að jafn mörg-
um greinum og sögum.“
Klettarnir í sögunni
Mats Royter fékk Reisubókina í
hendur árið 2014 og nýjasta bók
hans fjallar um örlög fjölskyldu í
Vestmannaeyjum sem Tyrkir rændu
og seldu í þrælahald 1627. „Ég kom
til Vestmannaeyja í september 2014
til að sjá hvar ræningjarnir komu á
land, skoða landslagið og klettana
sem skipta svo miklu í sögunni,“
sagði Mats en bók hans heitir
Turkräden. – Mats baðst afsökunar
á hlut landa sinna.
Joris van Os, rithöfundur, þýðandi
og kvikmyndagerðarmaður, sem
þýddi Reisubókina á hollensku,
fjallaði um þátt landa sinna í Tyrkja-
ráninu. Sagði hann miskunnarleysi
þeirra og grimmd hafa komið bæði
sjálfum sér og Hollendingum á
óvart. „Þeir voru með leyfi frá hol-
lenskum stjórnvöldum til að ræna,
nauðga og drepa að vild svo lengi
sem það var óvinurinn. Saga fólksins
í Vestmannaeyjum sem mátti þola
dauða, grimmd og eyðileggingu
snart fólk,“ sagði Joris van Os. „Það
kom okkur í opna skjöldu að for-
ingjar þeirra voru hollenskir. Þið
getið því kennt okkur um Tyrkjarán-
ið 1627 og vil ég biðja Íslendinga op-
inberlegrar afsökunar,“ sagði Joris
við góðar undirtektir gesta.
Miskunnarlausir menn
Adam Nichols, sem er flestum
fróðari um sögu sjórána, fjallaði sér-
staklega um foringja sjóræningj-
anna og forsendur fyrir Tyrkjarán-
inu. Mórat Reis kom frá Sale og fór
fyrir ræningjunum sem réðust á
Grindavík en Mórat Flamengo stýrði
ræningjunum sem réðust á Austfirði
og Vestmannaeyjar.
„Fyrri árásin var í lok júní þegar
skip réðst á Grindavík, gerði mis-
heppnaða árás á Bessastaði og
rændi ensk fiskiskip á Vestfjörðum.
Hélt héðan með 50 til 60 fanga, Ís-
lendinga, Dani og Englendinga.
Sú seinni var í júlí og byrjaði með
því að tvö og seinna þrjú skip réðust
á Austfirði, Djúpavog og firði þar í
kring. Til Vestmannaeyja komu þeir
16. júlí og lýsingar af grimmd þeirra
eru hreint ótrúlegar. Hertóku um
250 manns og seldu í þrældóm.“
Mikið er vitað um Mórat Reis og
Mórat Flamengo. Báðir efnuðust vel
og komust til mikilla áhrifa.
„Þetta voru framtakssamir menn
en líka miskunnarlausir en fyrst og
síðast viðskiptamenn sem nýttu
tækifærin sem sjórán og þrælasala
bauð upp á,“ sagði Adam um þessi
varmenni sem hann þekkir vel eftir
rannsóknir sínar og heimildaleit um
langa hríð.
Hollendingar frömdu Tyrkjaránin
- Ráðstefna í Eyjum um atburðina 1627 - Vil ég biðja Íslendinga afsökunar sagði hollenskur fyrir-
lesari - Hluti af 80 ára stríðinu - Reisubók séra Ólafs fer víða um heiminn - Gengur næst Njálu
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Spilverk Tríó Ásgeirs Ásgeirssonar flutti íslensk þjóðlög í austrænum stíl.
Adam Grimmdin var ótrúleg. Kári Ránið var mikið áfall.Mats Royter Skoða landslagið. Joris van Os Drápu með leyfi. Karl Smári Áhugi fræðimanna.
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
SUZUKI - SX4 S-CROSS GL – RN. 331607
Nýskráður 5/2019, ekinn 57 þ.km., bensín, brúnn,
sjálfskiptur, hraðastillir, litað gler, bakkmyndavél,
kastarar, hiti í framsætum.
Verð 3.980.000 kr.
DACIA - DUSTER – RN. 191965
Nýskráður 6/2019, ekinn 71 þ.km., bensín, ljós-
grár, beinskiptur, aksturstölva, hiti í framsætum,
loftþrýstingsskynjarar, hraðastillir, bluetooth.
Verð 2.590.000 kr.
SUBARU - LEGACY – RN. 191975
Nýskráður 1/2012, ekinn 204 þ.km., bensín,
hvítur, sjálfskiptur, aðgerðarhnappar í stýri,
álfelgur, AUX hljóðtengi, armpúði, hiti í sætum.
Verð 1.190.000 kr.
TOYOTA - RAV4 HYBRID – RN. 331504
Nýskráður 10/2018, ekinn 126 þ.km., bensín/
rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, stöðugleikakerfi,
bluetooth, umferðarskiltanemi, bakkmyndavél.
Verð 3.690.000 kr.