Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 30
30 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
S. 555 3100 · donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Góð jólagjöf
Verð kr.
39.420
handapabba ogmömmu
og afa og ömmu
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Jarðvinna vegna rannsóknahúss
Nýs Landspítala er í fullum gangi og
hefur gengið vel, að því er fram
kemur í Framkvæmdafréttum
NSLH. Enn er unnið að uppgreftri á
lausu jarðefni og mun sú vinna
standa yfir á næstunni. Undirbún-
ingsvinna hjá NLSH ohf. og verk-
takanum Háfelli ehf. vegna spreng-
inga er hafin, en áætlað er að þær
hefjist innan tíðar. Jarðvinnu á að
ljúka seinni hluta árs 2022.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá NLSH sótt-
ist Reykjavíkurborg eftir að fá allt
sprengt klapparefni í landfyllingu og
grjótvarnargarða annars vegar við
Ánanaust og hins vegar við Bryggju-
hverfið við Sævarhöfða.
Laus jarðvegur fer í Bolöldur
Fallist var á ósk Reykjavíkur-
borgar enda samræmist nálægð los-
unarstaðanna við upptökustað vel
þeim markmiðum sem Nýr Land-
spítali hefur sett sér um takmörkun
á umhverfisáhrifum. Magn klapp-
arlosunar er um 11.000 rúmmetrar.
Nýting á lausum uppgreftri er
eðlilega ekki jafn eftirsóknarverð
eins og klappargrjóts, segir í svari
NLSH. Heimilaður losunarstaður
fyrir lausan jarðveg er við Bolöldur
ofan Sandskeiðs og þangað var laus-
um jarðvegi frá rannsóknahúsi ekið.
Magn af lausum jarðvegi var um
16.000 rúmmetrar.
Eins og menn rekur minni til var
jarðefni úr grunni hins nýja með-
ferðarkjarna Landspítalans flutt í
Sundahöfn og notað í gerð landfyll-
ingar við Laugarnes. Úr grunninum
fengust allt að 280 þúsund rúmmetr-
ar af jarðefni, nokkru meira en áætl-
að hafði verið.
Nýtt rannsóknahús, sem mun rísa
vestan Læknagarðs HÍ, er ein af
byggingum í heildaruppbyggingu
Nýs Landspítala við Hringbraut og
verður um 17.400 fermetrar að
stærð, fjórar hæðir ásamt kjallara.
Tæknisvæði verður á fimmtu hæð og
hugmyndir eru um þyrlupall. Í rann-
sóknarhúsi hins nýja spítala samein-
ast öll rannsóknarstarfsemi spít-
alans á einn stað.
Starfseiningar í rannsóknahúsi
verða lífsýnasafn, meinafræði, rann-
sóknarkjarni, klínísk lífefnafræði og
blóðmeinafræði, frumuræktunar-
kjarni, frumumeðhöndlun, erfða- og
sameindalæknisfræði, ónæmisfræði
og sýkla- og veirufræði. Starfsemi
Blóðbanka mun einnig flytjast í
bygginguna. Í tengslum við meina-
fræðieiningu verður líkhús og krufn-
ing og aðstaða fyrir réttarmeina-
fræði. Rannsóknahúsið tengist
meðferðarkjarna og öðrum bygg-
ingum spítalans með rörpóstkerfi og
göngum neðanjarðar. Með því munu
deildir spítalans geta sent sýni til
rannsókna í rannsóknarhús á örfá-
um mínútum.
Hönnunarhópurinn Corpus er
aðalhönnuður hússins en að honum
standa níu innlend og erlend hönn-
unarfyrirtæki. Stefnt er að því að
nýtt þjóðarsjúkrahús verði tekið í
notkun árið 2026.
Fyrsta skóflustungan var tekin í
byrjun september sl. Háfell ehf. átti
lægsta tilboðið í jarðvinnuna eða
164,4 milljónir króna.
Við uppbyggingu á nýjum Land-
spítala er þess ávallt gætt að draga
eins og mögulegt er úr neikvæðum
umhverfislegum áhrifum, segir
NSLH. Meðal annars er leitað eftir
hæstu mögulegu BREEAM-
umhverfisvottun fyrir allar nýbygg-
ingar svæðisins. Til að öðlast slíka
vottun er þess m.a. gætt, bæði með
kröfum sem settar eru fram í hönn-
un, sem og kröfum sem gerðar eru
til verkframkvæmdarinnar, að hug-
að sé að nýtingu jarðefna með eins
umhverfisvænum hætti og unnt
reynist. Jarðvinna fyrir byggingu
innifelur bæði uppgröft á lausum
jarðvegi, sem og losun og uppgröft
klapparefnis. Val á losunarstöðum
nýtanlegs efnis byggist annars veg-
ar á eftirspurn eftir efninu og hins
vegar á nálægð losunarstaðar.
Spítalagrjótið mun nýtast vel
- Jarðvinna vegna rannsóknahúss Nýs Landspítala er í fullum gangi - Klapparefni fer í landfyll-
ingu og grjótvarnargarða við Ánanaust og Bryggjuhverfi - Rannsóknahúsið 17.400 fermetrar
Rannsóknahúsið Þetta verður mikil bygging, fjórar hæðir og kjallari.
Myndir/NSLH
Grunnurinn Unnið við jarðvinnu vestan við Læknagarð Háskóla Íslands.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framkvæmdir eru að hefjast við tvö-
földun Suðurlandsvegar frá Foss-
völlum vestur fyrir Lögbergsbrekku
skammt ofan Reykjavíkur, með hlið-
arvegum og undirgöngum fyrir reið-
vegi.
Árni Geir Eyþórsson frá Jarðvali
sf. og Árni Snær Kristjánsson frá
Bjössa ehf. skrifuðu undir verksamn-
ing ásamt forstjóra Vegagerðarinnar,
Bergþóru Þorkelsdóttur, síðastliðinn
mánudag. Bergþóra sagði af því til-
efni óvenjulangan tíma hafa tekið að
fá framkvæmdaleyfi vegna stöðu á
skipulagsmálum á svæðinu.
Tilboð í verkið voru opnuð um
miðjan júlí sl. Fjögur tilboð bárust og
var það lægsta krónur 791.459.500,
sem var tekið.Var það 84,5% af áætl-
uðum verktakakostnaði, sem var
tæpar 937 milljónir.
Samkvæmt verklýsingu verða
byggðar tvær nýjar akreinar norðan
við núverandi Suðurlandsveg með 11
metra miðdeili. Lengd útboðskaflans
er um 3,3 kílómetrar.
Umferðaröryggi eykst
Tengingum inn á veginn verður
fækkað í því skyni að auka öryggi og
bæta umferðarflæði. Útbúin verða
undirgöng (undir tvöfaldan Suður-
landsveg) fyrir ríðandi umferð neð-
arlega í Lögbergsbrekkunni.Verklok
eru áætluð á næsta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni er hér um að ræða fyrri
áfanga af tveimur í tvöföldun Suður-
landsvegar á milli Hólmsár og Foss-
valla, samtals um 5,3 kílómetra leið.
Seinni áfanginn er í undirbúningi og
Vegagerðin vonast til að geta boðið
hann út fljótlega.Verkefnið er á sam-
gönguáætlun.
Unnið hefur verið af krafti við
breikkun Suðurlandsvegar undan-
farin ár og Alþingi hefur veitt umtals-
verða fjármuni til þeirra verkefna.
Framkvæmdir við breikkun Suður-
landsvegar á milli Hveragerðis og
Selfoss standa yfir. Íslenskir aðal-
verktakar vinna verkið.
Því verður fagnað á næsta ári að 50
ár eru liðin síðan hægt var að aka á
bundnu slitlagi frá Reykjavík til Sel-
foss. Um var að ræða tvíbreiðan veg,
alls 58,2 kílómetra, frá Lækjartorgi
til Selfoss. Vegagerðin hófst 1966 og
vegurinn vígður seint í nóvember
1972.
Breikkun Suðurlandsvegar
að Lögbergsbrekku hafin
- Vegagerðin samdi við Jarðval og Bjössa um að vinna
verkið fyrir tæpar 800 milljónir - Kaflinn 3,3 kílómetrar
Tölvumynd/Vegagerðin
Suðurlandsvegur Hinn nýi tvöfaldi vegur mun liggja norðan við núverandi veg og því verður umferðin í vesturátt.