Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Faxafeni 14, 108 Reykjavík -www.z.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Krefjandi tímar eru í vændum fyrir
ríkisstjórnina ef hiti færist í kjara-
deilu sjómanna á ný, en það er háð
því hvernig nýjum ráðherrum sjáv-
arútvegs- og verkalýðsmála takist
að koma til móts við óskir stétta
sjómanna. Hins vegar er fátt sem
bendir til þess að
sjómenn hafi
raunverulegan
áhuga á átökum
um þessar mund-
ir þrátt fyrir hót-
anir þess efnis.
Í nýju fjár-
lagafrumvarpi
fyrir næsta ár er
gert ráð fyrir já-
kvæðum efna-
hagshorfum og
munu þær meðal annars leiða til
betri afkomu ríkissjóðs en á yfir-
standandi ári. Í greinargerð frum-
varpsins er spáð að vöruútflutn-
ingur vaxi lítillega á næsta ári og
megi meðal annars rekja það til
aukins útflutnings sjávarafurða.
„Stór loðnuvertíð spilar þar lyk-
ilhlutverk og vegur á móti minnk-
andi þorskútflutningi,“ segir í
greinargerðinni. Umfang loðnu-
vertíðarinnar er sú stærsta í nærri
tvo áratugi og er aflaverðmæti ver-
tíðarinnar talið nema um 50 millj-
örðum króna.
Það er því mikið undir og hafa
verkalýðsfélög sjómanna í lengri
tíma ýjað að því að það kunni að
koma til afmarkaðra verkfalls-
aðgerða beint að loðnuvertíðinni til
að koma á samningum, en sjómenn
hafa verið samningslausir um nokk-
urt skeið.
Ekki án átaka?
Í byrjun september svaraði Árni
Bjarnason, formaður Félags skip-
stjórnarmanna, spurningu blaða-
manns um hvort stefndi í verkfall
þar sem sjómenn hefðu verið samn-
ingslausir í tvö ár: „Það er ekkert
sem menn vilja gera, en ef allt
þrýtur þá verður það endirinn. Ég
væri ekki hissa – ef þeir eru á
svona stífum gormum eins og þeir
virðast vera – að það verður gerð
tilraun til þess að fá allar stéttir í
verkfall. Væntanlega á einhverjum
krítískum tíma eins og loðnuvertíð.“
Um tveimur mánuðum seinna, í
byrjun nóvember, sagði Valmundur
Valmundsson, formaður Sjómanna-
sambands Íslands, í samtali við
Morgunblaðið að tímasetning verk-
fallsaðgerða sem yrðu til umræðu á
þingi sambandsins gæti tengst
loðnuvertíð. Á þingi Sjómanna-
sambands Íslands var síðan sam-
þykkt ályktun þar sem skorað var á
aðildarfélög sambandsins að hefja
undirbúning aðgerða til að „knýja á
um alvörusamningaviðræður við út-
vegsmenn. […] Vegna þvergirð-
ingsháttar útgerðarinnar er ekki
útlit fyrir að samningar náist án
átaka.“
Binda vonir við ráðherra
Spurður hverjar horfunar séu nú
þegar mánuður er að verða síðan
þing sambandsins ályktaði að und-
irbúa þyrfti aðgerðir, svarar Val-
mundur: „Þetta er allt í farvegi.
Menn eru að skoða málin og velta
fyrir sér ýmsum hlutum. Manni
heyrist á mönnum að þeir séu ekki
tilbúnir í að fara í beinar aðgerðir.
Allsherjarverkfall held ég komi
ekki til greina.“ Þá segir hann fé-
lagsmenn almennt hafa það gott á
sjónum í dag og að við þær að-
stæður sé ekki mikill hvati til að
grípa til aðgerða. „Við eigum von á
því að fá fundarboð frá sáttasemj-
ara á næstu dögum og þá mun
koma í ljós hvort eitthvað sé hægt
að hreyfa málum,“ bætir hann við.
Valmundur segir einnig að kyrr-
staða hafi myndast á meðan var
beðið eftir niðurstöðum stjórnar-
myndunarviðræðna ríkisstjórn-
arflokkanna. „Við höfum talað um
að fara með beiðni til ríkisvaldsins
um ákveðnar leiðréttingar á okkar
málum. Meðal annars um Verðlags-
stofu skiptaverðs, að hún verði
styrkt.“ Bindur sambandið vonir við
að nýir ráðherrar geti liðkað fyrir
gerð nýrra samninga.
Engar ákvarðanir
„Það hafa ekki verið teknar
ákvarðanir um að fara í verkfalls-
aðgerðir, en menn eru ósáttir við að
vera samningslausir árum saman.
Þó svo að menn hafi góð laun og
allt það þá er bara óþolandi að
menn geta ekki samið við okkur um
nokkrar krónur af gróðanum sem
kemur af sjávarútvegi í stað þess
að krefja okkur um að borga með
þeim gjöldin sem lögð eru á fyrir-
tækin – sem kemur ekki til greina.
Við erum bara launþegar hjá þeim,“
segir Valmundur, en meðal helstu
krafna sjómanna hefur verið að út-
gerðir greiði sama mótframlag í líf-
eyrissjóð og annar atvinnurekstur.
Verkfallsaðgerðir ekki í sjónmáli
- Sjómenn óþolinmóðir - Hafa hótað loðnuvertíð - Lítill áhugi á verkfalli
Morgunblaðið/Eggert
Verkfall Sjómenn lögðu síðast niður störf 2017 eftir að hafa verið samningslausir um árabil.
Valmundur
Valmundsson
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála hefur úrskurðað að Ís-
lenski náttúruverndarsjóðurinn (e.
Icelandic Wildlife Fund), Náttúru-
verndarsamtök Íslands og náttúru-
verndarfélagið Laxinn lifi hafi ekki
grundvöll til að flokkast sem aðili
máls samkvæmt skilgreiningu laga í
tengslum við breytt rekstrarleyfi
Fiskeldis Austfjarða hf. vegna sjó-
kvíaeldis í Berufirði og Fáskrúðs-
firði. Vísaði nefndin kærum þeirra
því frá.
Kærðu samtökin annars vegar
ákvörðun Matvælastofnunar frá 5.
maí 2021 um að heimila Fiskeldi
Austfjarða hf. aukinn hámarks-
lífmassa frjós lax í sjókvíaeldi fyrir-
tækisins í Berufirði og hins vegar
ákvörðun sama efnis vegna eldis í
Fáskrúðsfirði. Kröfðust samtökin
ógildingar ákvarðananna.
Í síðasta mánuði felldi úrskurðar-
nefndin einnig úr gildi ákvörðun
Matvælastofnunar um að hafna end-
urnýjun á rekstrarleyfi Arctic Sea
Farm hf. vegna sjókvíaeldis á regn-
bogasilungi og bleikju í Önundar-
firði. Í úrskurði segir að stofnunin
hafi ekki lagt mat á hvort hægt yrði
að vinna úr umsókn fyrirtækisins, en
hún barst eftir að tímamörk runnu
út. gso@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fiskeldi Sjókvíar í Berufirði.
IWF ekki
aðili máls
í eldismáli
- Tveimur kærum
vegna eldis vísað frá
Afurðaverð á markaði
1. desember 2021,meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 421,96
Þorskur, slægður 511,54
Ýsa, óslægð 360,49
Ýsa, slægð 366,23
Ufsi, óslægður 218,46
Ufsi, slægður 287,37
Gullkarfi 216,97
Blálanga, óslægð 49,00
Blálanga, slægð 171,77
Langa, óslægð 273,64
Langa, slægð 313,15
Keila, óslægð 79,29
Keila, slægð 43,14
Steinbítur, óslægður 209,69
Steinbítur, slægður 279,65
Skötuselur, slægður 772,35
Grálúða, slægð 397,28
Skarkoli, slægður 561,34
Þykkvalúra, slægð 784,62
Langlúra, óslægð 10,00
Langlúra, slægð 183,00
Bleikja, flök 1.790,00
Regnbogasilungur, flög 3.176,00
Gellur 1.675,00
Hlýri, óslægður 29,00
Hlýri, slægður 195,61
Lúða, slægð 529,62
Lýr, óslægður 33,00
Lýsa, óslægð 64,18
Stórkjafta, slægð 144,00
Undirmálsýsa, óslægð 104,62
Undirmálsýsa, slægð 86,08
Undirmálsþorskur, óslægður 230,55
Undirmálsþorskur, slægður 225,73