Morgunblaðið - 02.12.2021, Page 47

Morgunblaðið - 02.12.2021, Page 47
14 systkinum frá Bræðraminni á Bíldudal. Endalausar sögur eru til af systkinunum, Jóna móðir mín sagði mér oft sögur af heim- ilislífinu á Bræðraminni fyrir svefninn þegar ég var lítil og fannst mér mikill ævintýraljómi yfir þeim systkinum öllum. Björg var mikil fjölskyldumanneskja og hafði oft frumkvæði að við- burðum í stórfjölskyldunni. Björg var einstaklega hlý og gestrisin kona og alltaf gott að koma á heimili hennar og Stjána. Ég passaði oft Sigrúnu Hildi og Ólaf Þór þegar þau voru lítil. Ég hlakkaði alltaf til að passa hjá þeim, þau áttu skemmtilegar plötur og þríhyrnt prins póló beint frá Póllandi, Stjáni var þá í millilandasiglingum og kom með þessa dýrð með sér þaðan. Björg átti alltaf innanhússhönnunar- blöð sem kveiktu áhuga hjá mér á þeim málum, en heimili Bjarg- ar og Stjána hafa alltaf verið ein- staklega falleg og smekkleg og hafa þau verið samhent í því eins og öðru að gera heimili sitt og sumarhús að fallegri umgjörð um fjölskylduna. Ég leitaði oft til Bjargar þegar ég var unglingur og mamma og pabbi bjuggu tímabundið úti á landi. Hún átti alltaf tíma og tók manni alltaf opnum örmum. Björg vann í Landsbankanum fram að hruni. Þegar hún hætti að vinna byrjaði hún að blómstra í listsköpun en hún var einstak- lega listræn og var með vinnu- stofu í Garðabæ og starfaði með Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ, Björg tók þátt í nokkrum samsýningum með þeim. Það liggur eftir hana mikið af fallegum verkum, bæði mál- verkum og þrívíddarverkum. Það má kannski segja að það sé synd að þessir hæfileikar hafi ekki fengið að njóta sín fyrr og hún fengið að njóta ánægjunnar af því lengur. Björg var búin að kljást við krabbamein tvisvar, sem hún náði sér af. Einhvern veginn var maður viss um að hún mundi sigrast á krabbameininu í þetta skiptið líka. Hún var mikil bar- áttukona og ekkert á því að gef- ast upp. Hún hélt reisn sinni fram á síðustu stundu. Það er ekki svo langt síðan hún hringdi í mig og bað mig að koma við hjá sér á leið heim úr vinnu. Ég vissi þá að hún var orðin mjög veik og bjóst við að sjá veika og hrjáða konu en þegar ég kom til hennar var hún keik, vel snyrt og vel klædd eins og vanalega og þurfti bara að ræða ákveðin mál. Það var ekki að sjá að hún væri orðin alvarlega veik. Björg lét ekki bugast og fallega fíngerða frænka mín barðist fram á síð- ustu stundu. Ég veit þó að síð- ustu vikur og mánuðir hafa verið erfið fyrir Stjána, Sigrúnu Hildi og Ólaf Þór. Við fjölskyldan og mamma og pabbi sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Guðrún Sólonsdóttir og fjölskylda, Jóna Vest- fjörð Árnadóttir, Sólon Rúnar Sigurðsson. Nú er hún Björg mín flogin á brott, rétt eins og farfugl til fjar- lægra landa og sólríkra stranda. Hún barðist við illvígan sjúkdóm af miklu æðruleysi til hinstu stundar sem að lokum hafði yf- irhöndina. Kristján og börn hennar stóðu ávallt við hlið henn- ar og veittu henni ómældan styrk og dásamlega umhyggju þar til yfir lauk. Leiðir okkar lágu saman fyrir hartnær 40 árum. Ég var nýtek- in við sem formaður starfs- mannafélags LÍ og við auglýst- um eftir ritara og vorum svo lánsöm að Björg sótti um starfið og var ráðin. Hún hafði áður unnið á skrifstofu SÍB og var það mikill akkur fyrir okkur að fá hana til starfa. Björg var í senn skipulögð, vandvirk, nákvæm, úrræðagóð og frábær starfs- kraftur. Með okkur varð góð vin- átta sem hefur varað allt til dags- ins í dag og er mér ákaflega dýrmæt. Björg var mörgum kostum bú- in. Hún var listakona af Guðs náð, allt virtist leika í höndunum á henni. Hún saumaði, prjónaði, málaði, gerði einstaklega fallega hluti úr pappamassa og vann ýmsa hluti úr gleri og öðrum málmum. Hún naut liðsinnis Kristjáns eiginmanns síns sem er einnig mjög liðtækur hvað varðar ýmsa listsköpun. Björg og Kristján voru ein- staklega samrýnd hjón og bar heimili þeirra þess glöggt merki. Heimili þeirra í Garðabæ var einstaklega fallegt sem og sum- arbústaður þeirra. Þar var nostr- að við hvern einasta hlut. Þarna sköpuðu þau paradís fyrir sig og fjölskylduna. Kristján gerði sér lítið fyrir og smíðaði lítið hús fyr- ir Björgu sína þar sem hún gat sinnt áhugamálum sínum. Þau hjón voru miklir gestgjafar og buðu oft til veislu. Að vera gestur á þeirra fallega heimili var sann- kallað ævintýri. Björg var mikill matreiðslumeistari og kunni auk þess að reiða matinn fram á listi- legan hátt. Við matarborð henn- ar má segja að hugtökin list og lyst hafi haldist í hendur. Ég er innilega þakklát fyrir að leiðir okkar Bjargar lágu saman og ég hafi átt hana sem vinkonu. Samverustundir okkar voru margar, bæði í gleði og sorg, og þakka ég henni fyrir allt sem hún veitti mér með list sinni, vináttu og mannkostum. Ég sendi Kristjáni, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabarni mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert ein af þeim sem mér þótti gott að kynnast. Þín vinkona, Hrafnhildur Björk. Þar sem ég sit hér til að setja niður á blað örfá orð um hana Björgu vinkonu þá er það þakk- læti sem er mér efst í huga í þeim söknuði og sorg sem ég finn. Þakklæti fyrir að hafa orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynn- ast þessari einstöku konu og fá að vera hennar vinur og fá henn- ar einlægu vináttu. Það er ekki oft sem maður eignast náinn vin kominn yfir miðjan aldur, en það öðlaðist okkur tveimur. Ég man enn þeg- ar ég sá þessa fallegu, hæglátu og listrænu konu fyrst í Mynd- listarskóla Kópavogs og strax var það eitthvað sem færði okkur saman. Eins og við vorum ólíkar og með ólíka sögu þá vorum við samt svo ótrúlega líkar og áttum svo margt sameiginlegt. Ég ætla ekki að fara að rifja upp hér neitt af þeim ótalmörgu dásamlegu stundum sem við höfum átt sam- an á þeim tíma sem við fengum, það eru dýrmætir demantar í minningaskríni mínu. Á milli okkar ríkti alger trúnaður, traust, hlýja og virðing, við gát- um hlegið saman, þagað saman og við gátum líka grátið saman, það var ekkert sem við ekki gát- um deilt og notið saman. Við hjónin áttum líka margar stundir saman með henni og Kristjáni, bæði heima og að heiman og var hver stund með þeim ómetanleg gæðastund. Ást og umhyggja hennar fyrir fjölskyldunni og þeim sem henni þótti vænt um var takmarkalaus og ekkert sem hún ekki var tilbúin að gera eða fórna fyrir þá. Nýjasti fjöl- skyldumeðlimurinn, litli lang- ömmu- og langafaprinsinn, veitti henni mikla hamingju og það var einstakt augnablik þegar ég fékk að sjá hana hjala við þann litla á sinn ljúfa og ástríka hátt og hann horfði á langömmu sína alveg heillaður. Það var svo margt sem var eftir að gera og njóta og gefa, en lífið getur verið grimmt. Hún spurði mig hvað ég héldi að yrði um okkur þegar við förum héðan og ég sagði við hana, ætli við verðum ekki bara yfir og allt um kring. Við vorum sammála um að það væri gott ef svo væri og þannig ætla ég að hugsa mér það enda var hún ávallt sínum nán- ustu yfir og allt um kring og verður ávallt áfram hjá okkur sem vorum svo lánsöm að vera henni náin. Ég veit hún lifir í ljósinu. Elsku Kristján, Sigrún, Óli og fjölskyldur, við Friðbert sendum ykkur okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Fanney. Í dag kveðjum við yndislega vinkona og nágranna til margra ára. Við kynntumst Björgu og Stjána 1977 þegar við fluttum í Hlíðarbyggðina. Garðarnir okk- ar lágu saman og gerði Stjáni oft grín að því að garðarnir báru þess merki að við styttum okkur leið í kaffispjall hvor hjá annarri. Björg var með sérlega græna fingur og listræn, garðurinn þeirra bar þess merki enda alltaf sá fallegasti í götunni. Þegar Björg og Stjáni fluttu á Strandveginn fylgdum við í kjöl- farið, stutt var alltaf á milli okk- ar og nutum við þessa fé- lagsskapar. Í Hlíðarbyggðinni mynduðum við gönguhóp fjórar saman og er ég nú ein eftir en held áfram göngunni og hugsa hlýtt til þess- ara góðu vinkvenna minna. Við vorum ekki bara nágrann- ar í bænum, heldur líka í sveit- inni en stutt er á milli sumarbú- staða okkar. Björg sagði alltaf að hennar hamingja var að kynnast Stjána sínum. Eins og Sigrún dóttir þeirra sagði í ræðu í 60 ára af- mæli pabba síns: „Pabbi getur allt“ og það er alveg rétt. Björg var lífsglöð kona og skemmtileg, ég mun sakna henn- ar mikils. Minning hennar mun lifa í hjörtum okkar sem hana þekkt- um og elskuðum. Innileg samúð til ykkar, elsku Stjáni, Sigrún, Óli og fjölskyldur. Gulli og perlum að safna sér, sumir endalaust reyna, vita ekki að vináttan er, verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Norma og Kristmundur. Árið 1975 fluttu þau hjónin Björg Júlíana Árnadóttir og Kristján Ólafsson í Hlíðarbyggð í Garðabæ. Tveimur árum fyrr höfðum við Elín Ingibjörg flutt þangað og vorum þar meðal frumbyggja. Hlíðarbyggðin var í byggingu á þessum árum og fljótlega voru komin ung börn í flest ef ekki öll hús í götunni. Báðar voru þær Björg og Inga (eins og hún var alltaf kölluð) heimavinnandi fyrstu árin eftir að þær fluttu í Garðabæ og urðu jafnaldra dætur þeirra fljótlega heimagangar hvor hjá annarri og fylgdu mæðurnar fljótlega með. Urðu þær mæður góðar vinkon- ur og þegar Björg fór í barneign- arleyfi tók Inga að sér að vera dagmóðir hálfan daginn fyrir son þeirra hjóna. Þær mæðgur fylgd- ust vel með hvor hjá annarri, hvernig gekk að innrétta og ljúka við upptimbruð hús þeirra í Hlíðarbyggð. Fljótlega bættist Nanna ná- grannakona þeirra í hópinn og saman gengu þær þrjár um Garðabæinn og Heiðmörk í fjöldamörg ár. Stundum var hjól- að, jafnvel hlaupið og sundferðir voru ekki sjaldgæfar. Einn góður siður komst á áður en þær vin- konurnar Björg og Nanna fluttu burt úr byggðinni, en þá var tek- ið upp á því að hittast í heima- húsum á aðventunni og borða saman góðan mat. Árum saman sauð Björg vel kæsta skötu rétt fyrir jólin og bauð okkur, og þar mættust m.a. huggulegar banka- stýrur og ég lét mig þá hvergi vanta. Mikil eftirsjá var að missa þær vinkonurnar úr byggðinni, því ekki var þorandi að sjóða mikið kæsta skötu í nýtískuíbúð- um í Sjálandshverfi. Kæru vinir Kristján, Sigrún Hildur, Ólafur Þór, tengdabörn og barnabörn, mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Leifur A. Símonarson. Við vorum svo lánsöm að kynnast Björgu og Kristjáni er við fluttum í Sjálandið í Garðabæ fyrir rúmum áratug. Það er ekki sjálfgefið á efri árum að kunn- ingsskapur leiði til vináttu, en góðvild og tillitssemi þeirra hjóna í okkar garð varð til þess að samverustundir okkar urðu margar. Margs er að minnast. Ferð- anna í fallega sumarbústaðinn þeirra fyrir austan fjall þar sem Björg þekkti hverja plöntu og stein og í framhaldinu rúntað um Suðurlandið, heimsóknar þeirra til okkar á Spáni, þar sem keyrt var til Malaga og kíkt á Picasso- safnið. Eftir að þau fluttu í ein- býlið í Akrahverfi kom vel í ljós smekkvísi Bjargar og listfengi og var upplifun að heimsækja þau hjónin þangað. Björg var listamaður, málaði og gerði skúlptúra og tók þátt í fjölda sýninga, en það sem gerði hana svo stóra í okkar huga var hve jákvæð og bjartsýn á lífið hún var þrátt fyrir að hafa í tví- gang þurft að berjast við þann vágest sem að lokum hafði yf- irhöndina. Hugrekkið og lífsvilj- inn var aðdáunarverður. Björg var lífskúnstner og hetja. Völundurinn Kristján og lífs- förunautur Bjargar, kletturinn í lífi hennar, okkar innilegustu samúðarkveðjur til þín og þinna nánustu. Marta og Þórarinn. Systir okkar Björg Júlíana Árnadóttir err horfin til hins ei- lífa austurs. Fyrir nokkrum ár- um gekk Björg til liðs við alþjóð- lega frímúrarareglu karla og kvenna, Le Droit Humain, stúk- una Baldur nr. 1381. Hún naut þess að sækja fundi og læra og skoða allt það sem í boði er í starfinu innan reglunn- ar. Björg lét þau orð falla að „ég vildi að ég hefði komið miklu fyrr“ en reglufestan sem viðhöfð er í starfinu féll vel að hennar lífsgildum. Hún gegndi einnig trúnaðarstörfum fyrir regluna. Hún var skipulögð, vinnusöm og gamansöm, ákveðin en samt svo hógvær og hafði einstaklega góða nærveru. Björg Júlíana var mikil lista- kona, má nefna að árið 2017 var Björg valin listamaður aprílmán- aðar í Garðabæ. Eftir hana liggja málverk og skúlptúrar úr pappa- massa svo fátt eitt sé nefnt. Hún nam m.a. í Myndlistaskóla Kópa- vogs og Iðnskólanum í Hafnar- firði auk þess að sækja ýmis námskeið bæði hér heima og er- lendis. Ég var svo lánsöm að kynnast Björgu utan reglustarfs- ins og fá innsýn í hennar lista- heim. Sjá listaverk hennar í mót- un og sækja listsýningar sem hún tók þátt í. Reglustarfið lá svo til alveg niðri frá vordögum 2020 til sept- ember 2021, á þeim tíma hafa samverustundirnar verið fáar en við náðum að hittast nokkrum sinnum og fylgjast með henni í hennar veikindum. Björgu var mjög umhugað um að hlúa að fjölskyldu sinni og vildi þeirra hag sem mestan. Við systkinin í stúkunni Baldri nr. 1381 þökkum elskulegri syst- ur, Björgu Júlíönu Árnadóttur, samfylgdina og biðjum henni Guðs blessunar inn í ljósið. Kristjáni, Sigrúnu, Ólafi, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabarni sendum við innilegar samúðarkveðjur. Fh. systkina í st. Baldri nr. 1381, Elísabet Sigurðardóttir. MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 Okkar ástkæri GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON RAGNARS, Reno, Nevada, BNA, lést þriðjudaginn 16. nóvember á heimili sínu ytra. Útför fer fram í kyrrþey í Reno Nevada mánudaginn 6. desember Aðstandendur Elsku pabbi okkar, sambýlismaður, sonur og mágur, ÍSLEIFUR BIRGISSON hljóðtæknifræðingur, Grandavegi 3, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 3. desember og hefst athöfnin klukkan 15. Allir sem vilja fylgja honum eru velkomnir en þurfa að framvísa neikvæðu Covid-hraðprófi við innganginn, það má ekki vera eldra en 48 klst. Heimapróf eru ekki tekin gild. Streymt verður frá útförinni í sal Oddfellowa í Vonarstræti 10. Streymi má finna á: www.sonik.is/isleifur Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljónshjartað. Birgir Kjartan Ísleifsson Ólafur Ernir Ísleifsson Úlfar Alex Evuson Ylfa Sóley Evudóttir Ísleifsdóttir Eva Björk Úlfarsdóttir Birgir Ottósson Elsa Dóra Ísleifsdóttir Helga Fanney Jónasdóttir Rúnar Berg Eðvarðsson Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Sigga á Skeggjastöðum, lést föstudaginn 26. nóvember. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og systir, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést sunnudaginn 21. nóvember á Landspítala. Útför fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 7. desember klukkan 13. Vegna sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna fram á neikvætt Covid-hraðpróf eða PCR-próf sem er ekki eldra en 48 klst. við komu í kirkju. Aðstandendur afþakka vinsamlegast blóm og kransa en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarreikning krabbameinsdeildar Landspítala. Jón Steingrímsson Hjördís Jónsdóttir Ólafur Friðrik Bjarnason Steingrímur Karl Jónsson Hinrik Gústaf Ólafsson Ólafur Steinn Jónsson Gunnar Bjarni Ólafsson Elsku besti pabbi okkar, tengdapabbi, afi og æskuvinur, GYLFI ÞÓR GÍSLASON, íþróttakennari, knattspyrnuþjálfari og lífskúnstner, Selfossi, lést í faðmi fjölskyldunnar laugardaginn 27. nóvember á Fossheimum, Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Útförin fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 6. desember klukkan 14. Allir sem vilja fylgja honum eru velkomnir, en vegna sóttvarna þarf að framvísa neikvæðu Covid-hraðprófi, ekki eldra en 48 klst., við innganginn í kirkjuna. Heimapróf eru ekki tekin gild. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fossheima fyrir hlýja og góða umönnun síðustu fimm árin. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni selfosskirkja.is. Gísli Rafn Gylfason Ívar Örn Gylfason Elva Björg Þráinsdóttir Ólöf María Gylfadóttir Bjarni Kristinsson barnabörn Sigurlína Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.