Morgunblaðið - 02.12.2021, Page 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Höfum opnað á Selfossi
komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar
GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ
www.tengi.is
Kópavogur – Smiðjuvegur 76
Akureyri – Baldursnes 6a
Selfoss – Austurvegur 69
414 1000
414 1050
414 1040
„OG SVO EF ÞÚ TEKUR AUKAPAKKANN
MEÐ SANDPAPPÍRSBELTUNUM VERÐUR
ÞÚ ENGA STUND AÐ STANDSETJA GAMLA,
SLITNA PARKETIÐ. “
„FLJÓTUR. LOSAÐU MIG, MARGEIR.
MAMMA ÞÍN ER GREIÐSLUKORTIN MÍN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að rölta heim saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GUTLI
GUTLI
GUTLI
GUTLI
GUTLI
GUTLI
HVERNIG VAR
Á OSTAHÁTÍÐ-
INNI?
ROOP!
SYSTIR MÍN ER AÐ
KOMA Í MAT!
ÉG SKIL! ÞÚ VILT
EKKI AÐ ÉG GERI
ÞÉR HNEISU MEÐ
ÝKJUSÖGUNUM MÍNUM!
EN HELST VIL ÉG AÐ
ÞÚ LEIÐRÉTTIR EKKI
ÝKJUSÖGURNAR MÍNAR!
Ármann er stórtækur í ritstörf-
unum og hefur gefið út 21 bók og
sögurnar orðnar 903 samtals. Hann
hefur aldrei auglýst, en sér um allt
ferlið, uppsetningu og sölu og dreif-
ingu. „Joseph V. Fioretta, prófessor í
Hofstra University í New York, er
mikill málamaður og talar 22 tungu-
mál. Hann kennir íslensku í háskól-
anum og notar vinjettubækur mínar
í kennslu fyrir nemendur sem lengra
eru komnir. Það er einn mesti heiður
sem rithöfundi getur hlotnast.“
Helstu áhugamál Ármanns eru
listir í víðasta skilningi og hann hefur
haldið ófáar listasýningar heima hjá
sér, enda annálaður listverkasafnari.
Síðan stundar hann náttúruskoðun
og líkamsrækt svo jafnvægi sé milli
anda og efnis. „Ég var lengi að verða
unglingur, ég var lengi að verða full-
orðinn og ég ætla mér að verða lengi
að verða gamall. Enda skynjar mað-
ur ekki aldurinn þegar maður er í
toppformi bæði andlega og lík-
amlega.“ Hann segir að á þessum
tímamótum líti hann glaður um öxl
og með tilhlökkun til framtíðar.
„Núna fljúga vinjetturnar mínar út
um heiminn og geri aðrir betur!“
Fjölskylda
Alsystkini Ármanns eru Ásta, f.
1949, handavinnukennari; Bergþóra,
f. 1950, geðhjúkrunarfræðingur, og
séra Halldór, f. 1953, fyrrv. forseta-
ritari og prestur. Hálfsystir Ár-
manns var Sigrún Reynisdóttir, bar-
áttukona fyrir öryrkja og fátæka, f.
1947, d. 2011.
Foreldrar Ármanns voru hjónin
Reynir Ármannsson, Reykvíkingur
og póstmeistari í Reykjavík, f. 11.8.
1922, d. 4.12. 2002, og Stefanía Guð-
mundsdóttir frá Syðra-Lóni, Langa-
nesi, húsmóðir og síðar smurbrauðs-
dama og ráðskona hjá Veðurstofu
Íslands, f. 23.11. 1922, d. 25.5. 1999.
Ármann
Reynisson
Guðmunda Jónsdóttir
húsfreyja í Svínadal frá
Víðihóli, Hólsfjöllum
Friðrik Erlendsson
smiður af Gottskálksætt og
bóndi í Svínadal frá Víðihóli,
HólsfjöllumHerborg Friðriksdóttir
húsfreyja á Syðra-Lóni á
Langanesi
Guðmundur Vilhjálmsson
stórbóndi, kaupfélagsstjóri
og oddviti á Syðra-Lóni á
Langanesi
Stefanía Guðmundsdóttir
húsmóðir í Reykjavík,
smurbrauðsdama og
ráðskona á Veðurstofu
Íslands
Sigríður Davíðsdóttir
hómópati af Skútustaðaætt
og húsfreyja á Ytri-Brekkum
á Langanesi
Vilhjálmur Guðmundsson
bóndi og smiður á Ytri-
Brekkum á Langanesi
Anika Magnúsdóttir
húsfreyja á Kaldá
Reinald Kristjánsson
frá Tálknafirði bóndi, á
Kaldá og landpóstur milli
Ísafjarðar og Bíldudals
Guðrún Reinaldsdóttir
frá Kaldá í Önundarfirði,
verkakona í Reykjavík
Ármann Eyjólfsson
konunglegur skósmiður við
Laugaveg, síðar trúboði
Guðrún Bergþórsdóttir
húsfreyja í Straumfirði og
síðar í Reykjavík
Eyjólfur Þorvaldsson
bóndi í Straumfirði, Mýrum í Borgarfirði og síðar
steinsmiður og byggingameistari í Reykjavík
Ætt Ármanns Reynissonar
Reynir Ármannsson
póstfulltrúi í Reykjavík
Helgi R. Einarsson sendi mér
póst á mánudag: „Ég er í
íþróttum með hressum Mosfell-
ingum. Þá varð þessi hamingju-
limra til“:
Gamlir kallar og kellingar
með kúlumaga og fellingar,
sem unglömb nú hoppa
og hlæjandi skoppa.
Hamingjusamir Mos-fellingar.
Enn skrifar Helgi: „Umhverf-
ismálin eru efst á baugi þessa dag-
ana og það er vel“:
Gerir sitt gagn
Reis upp til hæstu hæða
er holtið tókst að græða.
Ei óttast neitt
svona’ yfirleitt
því hún er fuglahræða.
Magnús Halldórsson yrkir í
Boðnarmjöð, – „Náttúrufræði“:
Í vatnsketti var hún að spá,
Vilborg, en brunnklukkur sá.
Eftir það hún,
yggld var brún
og meinvill í mýrinni lá.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
Það mynd’ekki hald’onum hörvaður
þótt hann yrði bundinn og njörvaður
og sýktur af veiru
og vörtum og fleiru
því Þórólfur okkar var örvaður.
Kristján H. Theódórsson skrifar
og yrkir út frá því: „Sendiherra
Breta svaraði aðspurð hvort hún
hefði alltaf stefnt á slíkt embætti
sem starf! „Nei … mig langaði nú
eiginlega til að verða sérfræðingur
í öpum.““
Hún atvinnu var enn á snöpum,
til Íslandsveru ráðin frúin.
Sérfræðingur sögð í öpum,
sigldi hingað fróðleik búin.
Jón Þorsteinsson Arnarvatni
kvað:
Þú ert himinn bólginn, blár;
brá þér nú við eitthvert fár,
hefirðu þú líka sorg og sár?
Sá ég aldrei stærri tár.
Þótt þau séu beisk og brýn,
billióna tárin þín
þornar á steini þegar skín. –
Það er ekki um tárin mín.
Enn yrkir Jón:
Það er gott að ganga í kring,
gæfa og hjartans friður,
sífellt minni og minni hring
og mjakast loksins niður.
Gömul vísa að lokum:
Innan sleikti ég askinn minn,
ekki er saddur maginn,
kannast ég við kreistinginn
kóngs- á bænadaginn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Flosa og fleiri góðum