Morgunblaðið - 02.12.2021, Page 60

Morgunblaðið - 02.12.2021, Page 60
KÖRFUBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Fjölniskonur sýndu að þær ætla sér stóra hluti í toppbaráttu úrvals- deildar kvenna í körfuknattleik í vet- ur með því að sigra Keflvíkinga á þeirra heimavelli í gærkvöld, 95:90. Fjölnir er þá með 14 stig eins og Valur í öðru til þriðja sæti deild- arinnar en allt stefnir í gríðarlega harða keppni fimm liða í vetur, hjá þessum þremur liðum ásamt Hauk- um og Njarðvík. Fjölnir var fjórtán stigum yfir fyrir síðasta leikhlutann og tíu stigum munaði á liðunum þegar fjórar mín- útur voru eftir en þá tóku Keflvík- ingar mikinn kipp og jöfnuðu, 84:84, þegar 90 sekúndur voru eftir. Sanja Orozovic kom Fjölni strax í 87:84 með þriggja stiga körfu og síðan í 91:86 með tveimur vítaskotum þegar hálf mínúta var eftir. Liðin fóru á vítalín- una til skiptis í lokin en Fjölnir hélt fengnum hlut og vann fimm stiga sig- ur. Dagný Lísa Davíðsdóttir átti stór- leik með Fjölni en hún skoraði 30 stig og tók 13 fráköst. Sanja Orozovic skoraði 24 stig og tók sjö fráköst og Aliyah Daija Mazyck var með 24 stig og níu fráköst. Daniela Wallen var atkvæðamest Keflvíkinga með 29 stig og 12 fráköst, Eygló Kristín Óskarsdóttir skoraði 15 stig og Ólöf Rún Óladóttir 14. _ Valskonur voru lengi að hrista Breiðablik af sér í Smáranum og leik- urinn var í járnum til loka þriðja leik- hluta þegar sex stigum munaði. Valur stakk hins vegar af í byrjun þess fjórða, skoraði 34 stig gegn 14 í hon- um og vann að lokum stórsigur, 98:72. Ameryst Alston skoraði 31 stig fyr- ir Val og tók 10 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir skoraði 21 stig og Hallveig Jónsdóttir 19. Michaela Lynn Kelly skoraði 31 stig fyrir Breiðablik, Iva Georgieva 12 og Birgit Ósk Snorradóttir 10. _ Leikur Njarðvíkur og Grinda- víkur stóð enn þá yfir þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld en Njarðvík gat þar náð tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar á nýjan leik. Sjá mbl.is/ sport/korfubolti. Fjölnir sýndi styrk í Keflavík - Dagný átti stórleik suður með sjó Morgunblaðið/Árni Sæberg Smárinn Sara Líf Boama úr Val og Birgit Ósk Snorradóttir úr Breiðabliki í hörðum slag í viðureign liðanna í Kópavogi í gærkvöld. 60 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 England Wolves – Burnley..................................... 0:0 - Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 72 mínúturnar hjá Burnley. West Ham – Brighton.............................. 1:1 Southampton – Leicester...................... (2:2) Watford – Chelsea ................................. (1:1) Aston Villa – Manchester City ............. (1:2) Everton – Liverpool .............................. (1:2) _ Í svigum eru stöður í leikjum sem var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gær- kvöld. Bandaríkin Undanúrslit Austurdeildar MLS: New England – New York City .... (2:2) 5:7 - Arnór Ingvi Traustason lék með New England frá byrjun framlengingar. - Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamaður á 11. mínútu framlengingar og lagði upp mark. _ New York City vann 5:3 í vítakeppni og mætir Philadelphia Union í úrslitaleik Austurdeildar. Belgía Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Westerlo – OH Leuven............................ 2:3 - Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Leu- ven í leiknum. Lommel – Gent......................................... 0:2 - Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn með Lommel. Grikkland Bikarinn, 16-liða úrslit, fyrri leikir: Larissa – PAOK ....................................... 1:1 - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Levadiakos – Olympiacos....................... 3:2 - Ögmundur Kristinsson varði mark Olympiacos í leiknum. Undankeppni HM kvenna F-RIÐILL: Armenía – Noregur................................ 0:10 _ Noregur 16, Belgía 13, Pólland 11, Alb- anía 7, Kósóvó 4, Armenía 0. 4.$--3795.$ Olísdeild karla FH – Haukar ........................................ 28:24 Staðan: FH 11 8 1 2 312:277 17 Haukar 11 7 2 2 325:292 16 Valur 9 6 2 1 261:228 14 ÍBV 10 7 0 3 301:293 14 Stjarnan 10 6 1 3 299:293 13 Afturelding 10 4 2 4 289:282 10 Selfoss 10 5 0 5 258:254 10 Fram 9 4 1 4 253:255 9 Grótta 9 3 1 5 240:245 7 KA 10 3 0 7 272:294 6 Víkingur 10 1 0 9 218:280 2 HK 9 0 0 9 220:255 0 Grill 66-deild karla ÍR – Selfoss U....................................... 32:29 Staða efstu liða: Hörður 7 7 0 0 241:194 14 ÍR 7 6 0 1 245:208 12 Fjölnir 7 5 0 2 215:196 10 Þór 7 4 0 3 204:192 8 Selfoss U 6 4 0 2 180:174 8 Meistaradeild karla A-RIÐILL: Aalborg – Pick Szeged ....................... 34:30 - Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð- arþjálfari liðsins. Elverum – Meshkov Brest .................. 32:33 - Orri Freyr Þorkelsson skoraði ekki fyrir Elverum. Montpellier – Zagreb.......................... 24:23 - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 2 mörk fyrir Montpellier. _ Montpellier 15, Aalborg 12, Pick Szeged 12, Kiel 11, Elverum 8, Vardar Skopje 5, Zagreb 4, Meshkov Brest 3. B-RIÐILL: Motor Zaporozhye – Flensburg......... 31:22 - Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark fyrir Flensburg. _ Kielce 14, Veszprém 10, París SG 9, Barcelona 9, Motor Zaporozhye 8, Flens- burg 7, Porto 5, Dinamo Búkarest 4. Þýskaland B-deild: Gummersbach – Bietigheim .............. 32:25 - Elliði Snær Viðarsson skoraði 4 mörk fyrir Gummersbach og Hákon Daði Styrm- isson 3. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. Grosswallstadt – Aue.......................... 26:22 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 12 skot (34%) í marki liðsins. Emsdetten – Rostock .......................... 28:19 - Anton Rúnarsson skoraði eitt mark fyrir Emsdetten. Noregur Drammen – Kolstad ............................ 32:26 - Óskar Ólafsson skoraði ekki fyrir Dram- men sem er í öðru sæti deildarinnar. Svíþjóð Skövde – Ystad IF ............................... 31:29 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 3 mörk fyrir Skövde. %$.62)0-# Sverrir Ingi Ingason, landsliðs- maður í knattspyrnu, spilaði lang- þráðan leik í gærkvöld þegar lið hans, PAOK, sótti heim Larissa í fyrri leik liðanna í sextán liða úr- slitum grísku bikarkeppninnar. Sverrir lék síðast með aðalliði PA- OK í lok apríl en hann þurfti síðan að fara í aðgerð á hné og hefur ver- ið frá keppni í rúma sjö mánuði. Þá lék Ögmundur Kristinsson sinn fyrsta leik með Olympiacos á þessu tímabili en hann varði mark liðsins í 3:2 ósigri gegn B-deild- arliðinu Levadiakos á útivelli. Langþráður leikur Sverris Inga Morgunblaðið/Eggert Endurkoma Sverrir Ingi Ingason var frá keppni síðan í apríl. Alþjóðatennissambandið, WTA, til- kynnti í gærkvöld að það væri hætt við öll alþjóðleg mót í Kína og Hong Kong vegna máls kínversku tennis- konunnar Peng Shuai. Hún sakaði fyrrverandi varaforseta landsins, Zhang Gaoli, um kynferðislega mis- beitingu í skrifum á samfélags- miðlum 2. nóvember en í kjölfarið hvarf hún af sjónarsviðinu um skeið. Steve Simon formaður WTA segir að þótt vitað sé hvar Shuai er niðurkomin sé óásættanlegt að hún hafi verið svipt málfrelsi og sjálf- sögðum mannréttindum. Hætta við öll tennismót í Kína AFP Kína Ekkert spurðist til Peng Shuai fyrst eftir að hún birti frásögn sína. FH-ingar komu sér í gær fyrir í toppsæti Olísdeildar karla í hand- knattleik eftir sigur gegn Haukum 28:24 í grannslagnum í Hafnarfirði. FH tók toppsætið af Haukum en FH er með 17 stig og Haukar 16. Valur er með 14 stig en á tvo leiki inni. Leikurinn var í járnum lengi vel eins og svo oft þegar þessi lið mæt- ast í deildaleikjum.Um miðjan síð- ari hálfleik var staðan 19:19. Hauk- ar voru þá manni fleiri og fengu tækifæri til að komast yfir. Þá tók þýski markvörðurinn Phil Döhler til sinna ráða og varði hvað eftir annað. Fyrir vikið náði FH fimm marka forskoti og lagði grunninn að sigrinum. Döhler varði alls 20 skot en Ásbjörn Friðriksson var markahæstur hjá FH með 10 mörk. Brynjólfur Snær Brynjólfsson skor- aði 5 fyrir Hauka. Samkomutakmarkanir komu í veg fyrir að hægt væri að fylla Kaplakrika af fólki en 500 manns máttu sækja leikinn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markahæstur Ásbjörn Friðriksson reyndist Haukum erfiður. Tvöföld ástæða til að gleðjast hjá FH Haukar luku keppni á ágætum nót- um í riðlakeppni Evrópubikars kvenna í körfuknattleik í gær í hörkuleik gegn KP Brno í Tékk- landi. Brno hafði þó betur 60:53 en Haukar voru án Helenu Sverr- isdóttur eins og í flestum leikjum í keppninni. Hafnfirðingarnir byrjuðu geysi- lega vel og voru yfir 25:15 að lokn- um fyrsta leikhluta. Að loknum fyrri hálfleik var staðan 29:25 fyrir Hauka en lágt skor í öðrum leik- hluta reyndist dýrt þegar uppi var staðið. Fyrir síðasta leikhlutann var tékkneska liðið þremur stigum yfir og jók muninn í síðasta leik- hlutanum. Bríet Sif Hinriksdóttir var mjög atkvæðamikil og skoraði 18 stig. Var hún stigahæst en næst kom Lovísa Henningsdóttir með 8 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar. Tinna Guðrún Alexandersdóttir skoraði 7 stig. Haiden Palmer lék vel fyrir liðið þótt hún hafi oft skorað meira. Tók 11 fráköst, gaf 6 stoðsend- ingar, stal boltanum fjórum sinnum og skoraði 5 stig. Haukar töpuðu öllum sex leikj- unum í riðlakeppninni. Andstæð- ingarnir eru atvinnumannalið og þar að auki tvö þeirra frá Frakk- landi sem er sterk körfuboltaþjóð. Fyrir lá að lið Hauka væri ekki eins hátt skrifað og lið andstæðinganna í riðlakeppninni en þar að auki varð Helena fyrir hnémeiðslum um miðj- an október. Haukar slógu út Uniao Sportiva frá Portúgal og komust þannig inn í riðlakeppnina. Haukar eru fyrsta íslenska kvennaliðið sem kemst í riðlakeppni í Evrópukeppnunum í körfuknattleik. Bríet Sif skoraði 18 stig í Tékklandi Morgunblaðið/Eggert Stigahæst Bríet Sif Hinriksdóttir var mjög atkvæðamikil í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.