Morgunblaðið - 02.12.2021, Side 61
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hlynur Andrésson, margfaldur Ís-
landsmethafi í hlaupum, er fluttur
til Ítalíu og æfir nú undir hand-
leiðslu fyrrverandi ólympíumeistara
í maraþoni. Ítalinn Stefano Baldini
þjálfar nú Hlyn og hófst samstarf
þeirra í október. „Er það ástæða
þess að ég er á Ítalíu,“ sagði Hlynur
þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til
hans í gær en hann býr í Emilia-
Romagna-héraðinu. Hlynur er strax
farinn að láta til sín taka á þessum
slóðum og sigraði í 5 km metra
götuhlaupi í Bologna um síðustu
helgi.
Hlynur hefur sett stefnuna á að
komast inn á Ólympíuleikana 2024
og keppa þar í maraþoni. Hann ætti
því að vera í góðum höndum hjá
Baldini en þeir hafa sett sér mark-
mið fyrir árið 2023. „Í byrjun árs
2023 verður hægt að reyna við lág-
mörk fyrir Ólympíuleikana 2024.
Við stefnum að því að ná lágmark-
inu í byrjun árs 2023 eða eins
snemma og hægt er,“ sagði Hlynur
en hann keppti í maraþoni í fyrsta
skipti á árinu og náði besta tíma Ís-
lendings frá upphafi þegar hann
kom í mark á 2:13:37 í Dresden í
Þýskalandi.
Spurður út í næsta ár segist
Hlynur reikna með því að hápunkt-
urinn verði Evrópumeistaramótið í
München næsta sumar.
Bætti sig mjög á árinu
„Sem íþróttamaður verður maður
að gera áætlanir fram í tímann og
vera með lengri og styttri markmið.
Á næsta ári verður Evrópumeist-
aramót í frjálsum í München og
stóra markmiðið er að vera í slagn-
um í 10 þúsund metra hlaupinu. Til
stóð að heimsmeistaramót í hálfu
maraþoni færi fram næsta vor en
því var frestað þar til í nóvember
vegna kórónuveirunnar. Ég þarf
eiginlega að finna mér nýtt mark-
mið fyrir vorið úr því að HM var
frestað. Ég tek stöðuna síðar varð-
andi það,“ sagði Hlynur en á árinu
sem senn er á enda bætti hann Ís-
landsmetið í nokkrum vegalengdum
og er handhafi sex Íslandsmeta.
„Það var margt sem gekk vel á
árinu. Það var gaman að hlaupa sitt
fyrsta maraþon þótt það væri leið-
inlegt að ná ekki ólympíulágmark-
inu. Tímabilið á brautinni gekk mjög
vel myndi ég segja. Ég setti Íslands-
met í þrjú þúsund, fimm þúsund og
tíu þúsund metrum á braut og í öll-
um tilfellum voru þetta rosa stórar
bætingar. Nú stefni ég einfaldlega á
að ná lengra á næsta tímabili.“
Vill komast undir 2:10,00
Blaðamaður veltir fyrir sér hvort
Hlynur ætli að snúa sér alfarið að
maraþoni en hann segist áfram ætla
að keppa í hlaupum í braut eins og
fimm og tíu þúsund metra hlaupum.
Það muni einfaldlega hjálpa honum
að ná betri árangri í maraþoni.
„Til að bæta sig í maraþoni þarf
grunnhraðinn að vera mjög góður
hjá manni. Ég vil ná að hlaupa
maraþon undir 2:10 [tveimur
klukkustundum og tíu mínútum] og
markmiðið er að ná því árið 2023. Til
að gera það þyrfti ég að hlaupa 10
km á 28 mínútum eða hraðar. Ef
maður keppir eingöngu í maraþoni
getur maður misst niður hraðann.
Ég vil ná að hlaupa styttri vega-
lengdirnar enn hraðar til þess að
bæta mig í maraþoni,“ sagði Hlynur
í samtali við Morgunblaðið.
Skýr markmið fyrir árið 2023
- Hlynur Andrésson æfir undir hand-
leiðslu ólympíumeistarans frá 2004
Ljósmynd/FRÍ
Methafi Hlynur Andrésson á sex Íslandsmet í langhlaupum og ætlar sér að
ná langt í maraþonhlaupi þar sem hann náði metinu í fyrstu tilraun.
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Kvennaknattspyrnan er á
stöðugri uppleið og þá sérstak-
lega undanfarin ár. Fjöldi lands-
liða hefur bætt sig mikið, þar á
meðal Tékkland, sem hefur í tví-
gang gert jafntefli við ríkjandi
Evrópumeistara Hollands í riðli
Íslands í undankeppni HM 2023.
Auk þess hafa þjóðir á borð við
Norður-Írland, Finnland, Austur-
ríki og Skotland tekið miklum
framförum.
Á sama tíma er þó bilið á
milli góðra liða og þeirra sem
teljast lakari að breikka enn
frekar, því á meðan áðurnefnd
lið hafa bætt sig mikið hafa
bestu liðin sömuleiðis verið að
gera það, sem má glöggt sjá á
úrslitum síðasta lands-
leikjaglugga.
England sló þar met í
undankeppni HM með því að
vinna Lettland 20:0. Belgía
hafði nokkrum dögum fyrr sett
metið með því að vinna Armeníu
19:0. Fjöldi svona úrslita leit
dagsins ljós í glugganum þar
sem Spánn vann Færeyjar 12:0,
Norður-Írland vann Norður-
Makedóníu 11:0 og Noregur
vann Armeníu 10:0 svo nokkur
dæmi séu tekin.
Það hefur enginn gaman af
of miklum fjölda svona leikja
þar sem styrkleikamunurinn á
liðunum er þetta mikill. Því er
spurning hvort það sé tímabært
að lægst skrifuðu þjóðirnar byrji
á því að taka þátt í forkeppni
áður en hin eiginlega undan-
keppni hefst.
Slíkt fyrirkomulag hefur
verið rætt í karlaboltanum en
hugmyndin iðulega skotin niður.
Svona risasigrar eru hins vegar
ekki jafn algengir í landsleikjum
karlanna og því mögulegt að
þessi útfærsla fengi meiri hljóm-
grunn innan kvennaknattspyrn-
unnar með það fyrir augum að
jafna leika sem framast er unnt.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Hveragerði: Hamar – Álftanes ........... 19.15
Í KVÖLD!
Subway-deild kvenna
Breiðablik – Valur ................................ 72:98
Keflavík – Fjölnir ................................. 90:95
Njarðvík – Grindavík......................... (32:27)
_ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun.
Staðan fyrir leik Njarðvíkur-Grindavíkur:
Njarðvík 9 7 2 628:530 14
Valur 9 7 2 745:617 14
Fjölnir 10 7 3 808:740 14
Keflavík 9 6 3 755:656 12
Haukar 6 4 2 440:341 8
Grindavík 9 3 6 668:739 6
Breiðablik 9 1 8 617:721 2
Skallagrímur 9 0 9 474:791 0
Evrópubikar kvenna
L-RIÐILL:
Brno – Haukar...................................... 60:53
Villeneuve – Tarbes.............................. 86:51
Lokastaðan:
Villeneuve 6 5 1 474:290 10
Tarbes 6 5 1 402:354 10
Brno 6 2 4 332:395 4
Haukar 6 0 6 282:451 0
_ Tarbes og Villeneuve komast áfram.
NBA-deildin
Brooklyn – New York ...................... 112:110
Toronto – Memphis .............................. 91:98
Phoenix – Golden State...................... 104:96
Portland – Detroit .............................. 110:92
Sacramento – LA Lakers .................. 92:117
_ Efst í Austurdeild: Brooklyn 15/6, Chi-
cago 14/8, Miami 13/8, Washington 13/8,
Milwaukee 13/8, Charlotte 13/10.
_ Efst í Vesturdeild: Phoenix 18/3, Golden
State 18/3, Utah 14/7, Dallas 10/9, Memphis
11/10, LA Lakers 11/10, Minnesota 11/10.
>73G,&:=/D
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, sendi frá sér tilkynningu í
gær þar sem vísað var á bug kenn-
ingum um að aukinn fjöldi knatt-
spyrnumanna hafi farið í hjarta-
stopp þar sem þeir hafi verið
bólusettir fyrir kórónuveirunni.
Bent var á atvikið með Christian
Eriksen í leik Dana og Finna á EM í
sumar og þrjú önnur dæmi frá Eng-
landi og úr Meistaradeildinni. Í ljós
hefur komið að Eriksen og einn
annar voru ekki bólusettir og FIFA
segir að ekkert tilvikanna tengist
bólusetningu fyrir veirunni.
Engin tengsl við
bólusetningar
AFP
Hjartastopp Christian Eriksen
hafði ekki verið bólusettur.
Guðmundur Þórarinsson landsliðs-
maður í knattspyrnu er kominn
með New York City í úrslitaleik
Austurdeildar MLS í Bandaríkj-
unum eftir sigur á Arnóri Ingva
Traustasyni og félögum í New Eng-
land Revolution í undanúrslitum í
fyrrinótt. Leikurinn endaði 2:2 eftir
framlengingu þar sem Guðmundur
lagði upp seinna markið en lið hans
vann 5:3 í vítakeppni. New York
mætir Philadelphia Union í úrslita-
leik en sigurliðið leikur um banda-
ríska meistaratitilinn við Portland
Timbers eða Real Salt Lake.
Guðmundur á
leið í úrslitaleik
Morgunblaðið/Eggert
New York Guðmundur Þórarinsson
og félagar mæta Philadelphia.
Heimsmeistaramót kvenna í hand-
knattleik hófst á Spáni í gærkvöld
þegar gestgjafarnir tóku á móti
Argentínu í Torrevieja.
Eftir jafnan fyrri hálfleik náði
spænska liðið að hrista það argent-
ínska af sér, valtaði hreinlega yfir
það í þeim síðari, skoraði 18 mörk
gegn þremur og vann stórsigur,
29:13. Carmen Campos og Alex-
andrina Cabral voru atkvæðamest-
ar Spánverja með fimm mörk hvor.
Þetta er stærsta heimsmeist-
aramót kvenna frá upphafi en í
fyrsta skipti leika 32 lið á HM og
þeim er skipt í átta riðla. Með Spáni
og Argentínu í H-riðli eru Aust-
urríki og Kína.
Þórir Hergeirsson er með norska
landsliðið í C-riðli ásamt Rúmeníu,
Kasakstan og Íran og á fyrsta leik
gegn Kasakstan annað kvöld.
Ljósmynd/Spænska handknattleikssambandið
Heimaliðið Spánverjar hófu heimsmeistaramótið á stórsigri í gærkvöld.
Stórsigur Spánverja
í upphafsleik HM
Íslenska stúlknalandsliðið í hópfim-
leikum komst örugglega í úrslit á
EM sem hófst í Guimares í Portúgal í
gær. Keppt var í undankeppni og
komust sex lið áfram í úrslitin. Ís-
land fer inn í úrslitin með þriðja
besta árangurinn í undankeppninni.
Svíþjóð, Bretland, Ísland, Finn-
land, Tékkland og Lúxemborg kom-
ust áfram en Slóvenía, Eistland og
Þýskaland sitja eftir.
Ísland fékk 21.075 stig á gólfi,
14.400 stig á dýnu og 14.800 á tram-
pólíni. Samtals gerir það 50.275 stig.
Blandað lið í unglingaflokki
keppti einnig í gær en niðurstaðan
lá ekki fyrir áður en blaðið fór í
prentun. Úrslitin í unglingaflokki
fara fram á morgun. Keppni í full-
orðinsflokki hefst í dag en keppt
verður til úrslita í fullorðinsflokki á
laugardaginn.
Stúlknaliðið komst
örugglega í úrslit
Ljósmynd/Fimleikasambandið
Öruggt Stúlknalandsliðið í keppninni í Portúgal í gær.