Morgunblaðið - 02.12.2021, Síða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
NeauviaOrganic
Gelísprautun
30%
afsláttur af
GELÍSPRAUTUN
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ
Fullkomin meðferð fyrir hátíðarnar
Gelísprautun er náttúruleg húðmeðferð
sem fyllir upp í hrukkur og línur,
mótar varir og andlitsdrætti.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilnefningar til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna 2021 voru kynntar í 33.
sinn við hátíðlega athöfn á Kjarvals-
stöðum í gær. Tilnefnt er í flokki
fræðibóka og rita almenns efnis,
barna- og ungmennabóka og fagur-
bókmennta, en fimm bækur eru til-
nefndar í hverjum flokki. Formenn
dómnefndanna þriggja munu koma
saman ásamt Gísla Sigurðssyni, sem
er forsetaskipaður formaður, og
velja einn verðlaunahafa úr hverjum
flokki. Verðlaunin verða afhent af
Guðna Th. Jóhannessyni, forseta
Íslands, á Bessastöðum á nýju ári.
Verðlaunaupphæðin er ein milljón
króna fyrir hvert verðlaunaverk, sem
Félag íslenskra bókaútgefenda kost-
ar. Verðlaununum er ætlað að draga
fram athyglisverðustu útgáfubækur
hvers árs. Umsagnir dómnefndanna
má lesa í heild sinni á mbl.is.
Tilnefningar í flokki fræðibóka
og rita almenns efnis
Eftirfarandi höfundar eru til-
nefndir í flokki fræðibóka og rita
almenns efnis:
- Guðrún Ása Grímsdóttir fyrir
Sturlunga saga eða Íslendinga sagan
mikla I-III sem Hið íslenzka forn-
ritafélag gefur út.
„Sturlunga er samtímaheimild um
örlagaríka ófriðartíma í sögu Íslands
(1117-1264). Skinnhandritin tvö frá
14. öld eru skert og því er til viðbótar
stuðst við yngri eftirrit í nýrri útgáfu
Sturlungu sem Guðrún Ása Gríms-
dóttir hefur séð um. Vandvirkni og
fræðileg úttekt hennar gerir les-
endum nútímans unnt að njóta hins
forna rits í hvívetna. […] Fróðleg og
spennandi lesning.“
- Kristjana Vigdís Ingvadóttir fyrir
Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar
tungu – Um notkun dönsku og erlend
áhrif á íslensku sem Sögufélag gefur
út.
„Höfundur leitar svara við nokkr-
um spurningum, m.a. hversu víðtæk
var notkun dönskunnar á 18. og 19.
öld á Íslandi, hvar bar hana helst nið-
ur og hvers vegna ekki var skipt yfir
í dönsku eins og rektor einn lagði til.
Höfundur setur frumrannsókn sína í
samhengi við fyrri rannsóknir fræði-
manna á einstaklega skipulegan og
ferskan hátt. Virðing Dana fyrir
menningararfi Íslendinga kemur ef
til vill einna helst á óvart. Í lok bókar
spyrðir höfundur áhyggjur fyrri alda
varðandi íslenskt mál saman við þær
sem tilheyra deginum í dag […]“
- Sigrún Helgadóttir fyrir Sigurður
Þórarinsson – Mynd af manni I-II
sem Náttúruminjasafn Íslands gefur
út.
„Allt við þetta mikla ritverk hrífur,
efnistök við ritun sögu Sigurðar Þór-
arinssonar og sjálft bókverkið, sem
er markvisst og fagurlega mynd-
skreytt. Rannsóknir vítt og breitt um
landið, eldgos, jöklar, jarðlög, nátt-
úruvernd, söngtextar og önnur
áhugamál vísindamannsins sindra á
hverri blaðsíðu.“
- Snorri Baldursson fyrir Vatnajök-
ulsþjóðgarður – Gersemi á heimsvísu
sem JPV útgáfa gefur út.
„Lesandinn verður margs fróðari
um jökla- og jarðfræði, lífríki og
mikilfenglegar náttúruminjar svæð-
isins og verndun þess. […] Höfundur
leiðir lesandann í gegnum sérstöðu
Vatnajökulsþjóðgarðs á skýran og
fróðlegan hátt með fallegu myndefni.
Hrífandi falleg bók.“
- Þórunn Jarla Valdimarsdóttir fyr-
ir Bærinn brennur – Síðasta aftakan
á Íslandi sem JPV útgáfa gefur út.
„Leiftrandi nærgætin frásögn upp
úr bestu heimildum varpar nýju ljósi
á aðdraganda og eftirmál hryllilegra
atburða er gerðust í byrjun 19. aldar.
[…] Lesandinn fær að fylgja höfundi
um heimildir og finnur sig fljótt ugg-
andi við túnfótinn.“
Dómnefnd skipuðu Ingi Bogi
Bogason, Katrín Ólöf Einarsdóttir
og Hanna Steinunn Þorleifsdóttir,
sem var formaður nefndarinnar.
Tilnefningar í flokki
barna- og ungmennabóka
Eftirfarandi höfundar eru til-
nefndir í flokki barna- og ungmenna-
bóka:
- Arndís Þórarinsdóttir fyrir Bál
tímans – Örlagasaga Möðruvalla-
bókar í sjö hundruð ár sem Mál og
menning gefur út.
„Óvæntur sögumaður tekur les-
anda með í fróðlegt ferðalag. Myndir
gæða bókina miklu lífi og auka lestr-
aránægjuna. Bókin segir frá helsta
fjársjóði íslenskra bókmennta á
nýstárlegan hátt og kynnir handritin
fyrir ungum lesendum.“
- Guðlaug Jónsdóttir og Hlíf Una
Bárudóttir myndhöfundur fyrir Í
huganum heim sem Guðlaug Jóns-
dóttir og Karl K. Ásgeirsson gefa út.
„Hugljúf, raunsæ og hversdagsleg
frásögn af sveitalífi fyrri tíma. Gull-
fallegar myndir prýða frumraun höf-
undar og gera söguna ljóslifandi
[…].“
- Jakob Ómarsson fyrir Ferðalagið
– styrkleikabók sem Af öllu hjarta
gefur úr.
„Bókin er skemmtileg lesning og
hvetur til aukins tilfinningaþroska.
Aukaefni fylgir bókinni sem útskýrir
efni hennar og nýtist við lesturinn.
Framsetning bókarinnar gerir hana
að einstakri frumraun.“
- Margrét Tryggvadóttir og Linda
Ólafsdóttir myndhöfundur fyrir
Reykjavík barnanna sem Iðunn gef-
ur út.
„Bókin fetar troðnar slóðir, sögu-
sviðið er stórt og mikið og spannar
fjölda ára. Fallegar myndskreyt-
ingar gera bókina aðgengilega les-
endum á öllum aldri svo úr verður
fræðandi og skemmtileg heimild um
höfuðborgina okkar.“
- Þórunn Rakel Gylfadóttir fyrir
Akam, ég og Annika sem Angústúra
gefur út.
„Bókin er margræð þroskasaga
um margbreytileika mannlífsins og
erfiðleika sem fylgja því að vaxa úr
grasi. […] Frábær frumraun höf-
undar sem verður spennandi að
fylgjast með í framtíðinni.“
Dómnefnd skipuðu Stefán Rafn
Stefánsson, Vignir Árnason og
Ragna Gestsdóttir, sem var formað-
ur nefndarinnar.
Tilnefningar í flokki
fagurbókmennta
Eftirfarandi höfundar eru til-
nefndir í flokki skáldverka:
- Arnaldur Indriðason fyrir Sigur-
verkið sem Vaka-Helgafell gefur út.
„Höfundur slær hér nýjan tón frá
fyrri verkum með sögulegri skáld-
sögu […] Harmræn örlagasaga,
skrifuð af viðkvæmni og virðingu fyr-
ir sögupersónunum, í fallegum og
grípandi texta sem vekur samkennd
og sterkar tilfinningar lesenda.“
- Guðni Elísson fyrir Ljósgildran
sem Lesstofan gefur út.
„Marglaga og margslungið skáld-
verk sem er allt í senn, sársaukafullt
tregaljóð, skúrkasaga, samtímasaga,
ádeila á verðmætamat samfélagsins
og karnivalísk afbygging þar sem
furðuverur varpa ljósi á valdakerfi
samtímans. Úthugsuð uppbygging
sem er reglulega sprengd upp – þeg-
ar textinn flæðir yfir mörk alls þess
sem hingað til hefur skilgreint skáld-
sögur. Tímamótaverk þar sem bók-
staflega allt er undir.“
- Hallgrímur Helgason fyrir Sextíu
kíló af kjaftshöggum sem JPV útgáfa
gefur út.
„Styrkleikar höfundar mætast í
glitrandi og kjarnyrtri veröld síldar-
plansins, þar sem fyrstu skref þjóðar
úr torfkofunum speglast í þrá aðal-
söguhetjunnar eftir betra lífi og sjálf-
stæði. Síldarvals þar sem húmor og
harmur koma saman í miskunnar-
lausri framrás tímans. […]“
- Kamilla Einarsdóttir fyrir Tilfinn-
ingar eru fyrir aumingja sem Veröld
gefur út.
„Leit hinnar femínísku andhetju
að sjálfsmynd […] Sterk samtíma-
saga þar sem ískaldri kaldhæðni og
depurð er fléttað saman í hressileg-
um texta, sem er skrifaður af við-
kvæmni og væntumþykju.“
- Svikaskáld: Fríða Ísberg,
Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður
Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Más-
dóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís
Helgadóttir fyrir Olía sem Mál og
menning gefur út.
„Hressandi frásögn af uppreisn
sex kvenna gegn hefðbundnum kyn-
hlutverkum. Grípandi ádeila á viðjar
vanans og tilraunir til að brjótast
undan hlekkjum hugarfars feðra-
veldisins. […]“
Dómnefnd skipuðu Jóhanna
Vigdís Guðmundsdóttir, Jón Svanur
Jóhannsson og Andri Yrkill Valsson,
sem var formaður nefndarinnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfundar Gleði ríkti í hópi fræðimanna, rithöfunda og skálda á Kjarvalsstöðum þegar upplýst var um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Fimmtán bækur tilnefndar
- Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021 í þremur flokkum - Verðlaunaféð ein
milljón í hverjum flokki - Verðlaununum ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur ársins