Morgunblaðið - 02.12.2021, Page 62

Morgunblaðið - 02.12.2021, Page 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 NeauviaOrganic Gelísprautun 30% afsláttur af GELÍSPRAUTUN NÝTTU TÆKIFÆRIÐ Fullkomin meðferð fyrir hátíðarnar Gelísprautun er náttúruleg húðmeðferð sem fyllir upp í hrukkur og línur, mótar varir og andlitsdrætti. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tilnefningar til Íslensku bókmennta- verðlaunanna 2021 voru kynntar í 33. sinn við hátíðlega athöfn á Kjarvals- stöðum í gær. Tilnefnt er í flokki fræðibóka og rita almenns efnis, barna- og ungmennabóka og fagur- bókmennta, en fimm bækur eru til- nefndar í hverjum flokki. Formenn dómnefndanna þriggja munu koma saman ásamt Gísla Sigurðssyni, sem er forsetaskipaður formaður, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunin verða afhent af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, á Bessastöðum á nýju ári. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk, sem Félag íslenskra bókaútgefenda kost- ar. Verðlaununum er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Umsagnir dómnefndanna má lesa í heild sinni á mbl.is. Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis Eftirfarandi höfundar eru til- nefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis: - Guðrún Ása Grímsdóttir fyrir Sturlunga saga eða Íslendinga sagan mikla I-III sem Hið íslenzka forn- ritafélag gefur út. „Sturlunga er samtímaheimild um örlagaríka ófriðartíma í sögu Íslands (1117-1264). Skinnhandritin tvö frá 14. öld eru skert og því er til viðbótar stuðst við yngri eftirrit í nýrri útgáfu Sturlungu sem Guðrún Ása Gríms- dóttir hefur séð um. Vandvirkni og fræðileg úttekt hennar gerir les- endum nútímans unnt að njóta hins forna rits í hvívetna. […] Fróðleg og spennandi lesning.“ - Kristjana Vigdís Ingvadóttir fyrir Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu – Um notkun dönsku og erlend áhrif á íslensku sem Sögufélag gefur út. „Höfundur leitar svara við nokkr- um spurningum, m.a. hversu víðtæk var notkun dönskunnar á 18. og 19. öld á Íslandi, hvar bar hana helst nið- ur og hvers vegna ekki var skipt yfir í dönsku eins og rektor einn lagði til. Höfundur setur frumrannsókn sína í samhengi við fyrri rannsóknir fræði- manna á einstaklega skipulegan og ferskan hátt. Virðing Dana fyrir menningararfi Íslendinga kemur ef til vill einna helst á óvart. Í lok bókar spyrðir höfundur áhyggjur fyrri alda varðandi íslenskt mál saman við þær sem tilheyra deginum í dag […]“ - Sigrún Helgadóttir fyrir Sigurður Þórarinsson – Mynd af manni I-II sem Náttúruminjasafn Íslands gefur út. „Allt við þetta mikla ritverk hrífur, efnistök við ritun sögu Sigurðar Þór- arinssonar og sjálft bókverkið, sem er markvisst og fagurlega mynd- skreytt. Rannsóknir vítt og breitt um landið, eldgos, jöklar, jarðlög, nátt- úruvernd, söngtextar og önnur áhugamál vísindamannsins sindra á hverri blaðsíðu.“ - Snorri Baldursson fyrir Vatnajök- ulsþjóðgarður – Gersemi á heimsvísu sem JPV útgáfa gefur út. „Lesandinn verður margs fróðari um jökla- og jarðfræði, lífríki og mikilfenglegar náttúruminjar svæð- isins og verndun þess. […] Höfundur leiðir lesandann í gegnum sérstöðu Vatnajökulsþjóðgarðs á skýran og fróðlegan hátt með fallegu myndefni. Hrífandi falleg bók.“ - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir fyr- ir Bærinn brennur – Síðasta aftakan á Íslandi sem JPV útgáfa gefur út. „Leiftrandi nærgætin frásögn upp úr bestu heimildum varpar nýju ljósi á aðdraganda og eftirmál hryllilegra atburða er gerðust í byrjun 19. aldar. […] Lesandinn fær að fylgja höfundi um heimildir og finnur sig fljótt ugg- andi við túnfótinn.“ Dómnefnd skipuðu Ingi Bogi Bogason, Katrín Ólöf Einarsdóttir og Hanna Steinunn Þorleifsdóttir, sem var formaður nefndarinnar. Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka Eftirfarandi höfundar eru til- nefndir í flokki barna- og ungmenna- bóka: - Arndís Þórarinsdóttir fyrir Bál tímans – Örlagasaga Möðruvalla- bókar í sjö hundruð ár sem Mál og menning gefur út. „Óvæntur sögumaður tekur les- anda með í fróðlegt ferðalag. Myndir gæða bókina miklu lífi og auka lestr- aránægjuna. Bókin segir frá helsta fjársjóði íslenskra bókmennta á nýstárlegan hátt og kynnir handritin fyrir ungum lesendum.“ - Guðlaug Jónsdóttir og Hlíf Una Bárudóttir myndhöfundur fyrir Í huganum heim sem Guðlaug Jóns- dóttir og Karl K. Ásgeirsson gefa út. „Hugljúf, raunsæ og hversdagsleg frásögn af sveitalífi fyrri tíma. Gull- fallegar myndir prýða frumraun höf- undar og gera söguna ljóslifandi […].“ - Jakob Ómarsson fyrir Ferðalagið – styrkleikabók sem Af öllu hjarta gefur úr. „Bókin er skemmtileg lesning og hvetur til aukins tilfinningaþroska. Aukaefni fylgir bókinni sem útskýrir efni hennar og nýtist við lesturinn. Framsetning bókarinnar gerir hana að einstakri frumraun.“ - Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir myndhöfundur fyrir Reykjavík barnanna sem Iðunn gef- ur út. „Bókin fetar troðnar slóðir, sögu- sviðið er stórt og mikið og spannar fjölda ára. Fallegar myndskreyt- ingar gera bókina aðgengilega les- endum á öllum aldri svo úr verður fræðandi og skemmtileg heimild um höfuðborgina okkar.“ - Þórunn Rakel Gylfadóttir fyrir Akam, ég og Annika sem Angústúra gefur út. „Bókin er margræð þroskasaga um margbreytileika mannlífsins og erfiðleika sem fylgja því að vaxa úr grasi. […] Frábær frumraun höf- undar sem verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni.“ Dómnefnd skipuðu Stefán Rafn Stefánsson, Vignir Árnason og Ragna Gestsdóttir, sem var formað- ur nefndarinnar. Tilnefningar í flokki fagurbókmennta Eftirfarandi höfundar eru til- nefndir í flokki skáldverka: - Arnaldur Indriðason fyrir Sigur- verkið sem Vaka-Helgafell gefur út. „Höfundur slær hér nýjan tón frá fyrri verkum með sögulegri skáld- sögu […] Harmræn örlagasaga, skrifuð af viðkvæmni og virðingu fyr- ir sögupersónunum, í fallegum og grípandi texta sem vekur samkennd og sterkar tilfinningar lesenda.“ - Guðni Elísson fyrir Ljósgildran sem Lesstofan gefur út. „Marglaga og margslungið skáld- verk sem er allt í senn, sársaukafullt tregaljóð, skúrkasaga, samtímasaga, ádeila á verðmætamat samfélagsins og karnivalísk afbygging þar sem furðuverur varpa ljósi á valdakerfi samtímans. Úthugsuð uppbygging sem er reglulega sprengd upp – þeg- ar textinn flæðir yfir mörk alls þess sem hingað til hefur skilgreint skáld- sögur. Tímamótaverk þar sem bók- staflega allt er undir.“ - Hallgrímur Helgason fyrir Sextíu kíló af kjaftshöggum sem JPV útgáfa gefur út. „Styrkleikar höfundar mætast í glitrandi og kjarnyrtri veröld síldar- plansins, þar sem fyrstu skref þjóðar úr torfkofunum speglast í þrá aðal- söguhetjunnar eftir betra lífi og sjálf- stæði. Síldarvals þar sem húmor og harmur koma saman í miskunnar- lausri framrás tímans. […]“ - Kamilla Einarsdóttir fyrir Tilfinn- ingar eru fyrir aumingja sem Veröld gefur út. „Leit hinnar femínísku andhetju að sjálfsmynd […] Sterk samtíma- saga þar sem ískaldri kaldhæðni og depurð er fléttað saman í hressileg- um texta, sem er skrifaður af við- kvæmni og væntumþykju.“ - Svikaskáld: Fríða Ísberg, Melkorka Ólafsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Sunna Dís Más- dóttir, Þóra Hjörleifsdóttir og Þórdís Helgadóttir fyrir Olía sem Mál og menning gefur út. „Hressandi frásögn af uppreisn sex kvenna gegn hefðbundnum kyn- hlutverkum. Grípandi ádeila á viðjar vanans og tilraunir til að brjótast undan hlekkjum hugarfars feðra- veldisins. […]“ Dómnefnd skipuðu Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, Jón Svanur Jóhannsson og Andri Yrkill Valsson, sem var formaður nefndarinnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundar Gleði ríkti í hópi fræðimanna, rithöfunda og skálda á Kjarvalsstöðum þegar upplýst var um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Fimmtán bækur tilnefndar - Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2021 í þremur flokkum - Verðlaunaféð ein milljón í hverjum flokki - Verðlaununum ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur ársins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.