Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 72
Benedikt Krist- jánsson ten- órsöngvari hefur getið sér gott orð víða um lönd fyrir flutning á barokk- tónlist. Hann kemur fram með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands á að- ventutónleikum í Eldborgarsal Hörpu í kvöld og er það í fyrsta skipti sem hann syngur með hljómsveitinni. Á efnisskránni eru aríur úr kantötum og óratóríum eftir stórmeistarana Johann Sebastian Bach og Georg Friedrich Händel. Meðal ann- ars munu hljóma tvær aríur úr Messíasi og arían Waft her, angels. Þá leikur hljómsveitin þætti úr Water Music eftir Händel. Benedikt Kristjánsson flytur aríur eftir Bach og Händel með SÍ í kvöld FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Hlynur Andrésson, margfaldur Íslandsmethafi í hlaup- um, er fluttur til Ítalíu og æfir nú undir handleiðslu fyrrverandi ólympíumeistara í maraþoni. Ítalinn Stef- ano Baldini þjálfar nú Hlyn sem hefur sett stefnuna á að komast inn á Ólympíuleikana 2024 og keppa þar í maraþoni. »61 Ólympíumeistarinn þjálfar Hlyn ÍÞRÓTTIR MENNING BLACK FR IDAY 22 . NÓVEMBER - 2 . DESEMBER ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 Virkir dagar 11-18.30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 Virkir dagar 11-18ilva.is ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR CLEVELAND TUNGUSÓFI, EINNIG FÁANLEGURMEÐ TUNGU HÆGRAMEGIN ÁÐUR 119.900,- NÚ83.930,- 30% LAKE BORÐSTOFUBORÐ 100X200CM ÁÐUR 119.900,- NÚ83.930,- SKOÐAÐU ÖLL T I L BOÐ I N Á I LVA . I S COMBINO STÓLL ÁÐUR 69.995-, NÚ34.995,- FRÍ HEIMSENDING Þegar keyptar eru smávörur fyrir 9.900 kr. eða meira. 50% Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tannlæknirinn Guðmundur Árnason, sem verður 90 ára í apríl á næsta ári, er í fullu fjöri og þakkar það fyrst og fremst nær daglegu sundi í tæplega sextíu ár, en áður var hann virkur í boltaíþróttum í áratugi og gekk á hæstu fjöll landsins án þess að blása úr nös. „Ég er brattur, þakka sund- inu og góðum félagsskap mikið hvað ég er við góða heilsu auk þess sem fjallgöngurnar hafa haldið mér í góðu formi,“ segir hann. Sundiðkun tannlæknisins hófst í Vesturbæjarlaug 1965 og skömmu eftir að Seltjarnarneslaug var tekin í notkun fór Guðmundur að venja komur sínar þangað. Landsátaki í sundi er nýlokið en norræna sund- keppnin ýtti undir Guðmund á sínum tíma. „Fólk var hvatt til þess að synda 200 metra í einu og ég byrjaði á því en undanfarin ár hef ég heldur bætt í og syndi 400 til 500 metra á hverjum degi.“ Guðmundur mætir í laugina stund- víslega klukkan sjö á morgnana á virkum dögum og klukkutíma síðar um helgar. Að loknu eimbaði og slök- un í nuddpotti fær hann sér kaffi með öðrum sundgestum í anddyrinu. „Þetta hefur þróast í sundklúbb og við förum í ferðalög saman, en ég er ekki með í sundleikfiminni, hún er of róleg fyrir mig!“ Í fyrsta landsliðinu Sumarið 1939 byrjaði Guðmundur sjö ára í fótbolta hjá KR og voru æf- ingarnar á svonefndu Skálholtstúni á mótum Reynimels og Kaplaskjóls- vegar. „Þjálfarar voru Benedikt Jak- obsson og Benedikt Gröndal,“ rifjar Guðmundur upp. Hann var Íslands- meistari í 2. flokki en hætti fljótlega eftir það vegna sumarvinnu utan- bæjar. Hann tók síðar upp þráðinn innanhúss með nokkrum félögum og hélt áfram í boltanum fram á sex- tugsaldur. Hann æfði líka handbolta og var meðal annars Íslandsmeistari utanhúss með KR 1952. Lengi vel var hann einnig í körfubolta og var í fyrsta landsliði Íslands, sem spilaði á móti Dönum í Kaupmannahöfn í maí 1959. „Þegar ég var í Mennta- skólanum í Reykjavík kenndi Valdi- mar Sveinbjörnsson okkur að meta körfubolta og þá stofnuðum við nokkrir MR-ingar körfuboltafélagið Gosa 1951. Nafnið vísaði til sprelli- karls Walts Disneys en Gosi var tré- karl og við litum á okkur sem algera tréhesta í körfunni. Nokkrum árum síðar var nafninu breytt í Körfu- knattleiksfélag Reykjavíkur, KFR, og þegar við gáfumst upp á rekstr- inum tóku Valsmenn við keflinu með stofnun körfuknattleiksdeildar 1970.“ Guðmundur þótti efnilegur skák- maður og segir að hart hafi verið lagt að sér að leggja rækt við íþróttina á seinni árum, en þegar hann var í MR sigraði hann franska stórmeistarann Rossolimo í fjöltefli í skólanum. „Hann vann alla nema einn kennara og þrjá nemendur, og ég hætti eigin- lega á toppnum.“ Hann hefur líka lát- ið til sín taka í golfinu og verið félagi í Nesklúbbnum frá 1965. „Ég var mjög virkur í félagsskap í Tannlæknafélag- inu sem við kölluðum tanngolf en hef lítið spilað að undanförnu.“ Á háskólaárunum vann Guð- mundur hjá Landmælingum Íslands úti um allt land á sumrin. „Ég vann við að byggja upp vörður og þar til gerð merki á fjöllum og jöklum, fór til dæmis þrisvar á Eyjafjallajökul, var í toppformi og er enn.“ Morgunblaðið/Eggert Við Sundlaug Seltjarnarness Guðmundur Árnason tannlæknir hefur verið fastagestur í áratugi. Í toppformi á toppnum - Guðmundur Árnason óstöðvandi að nálgast nírætt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.