Morgunblaðið - 30.12.2021, Side 8

Morgunblaðið - 30.12.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2021 ...algjör snilld! Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma • Klippir plastfilmur og ál • 35% sparnaður • Ódýrari áfyllingar • Má setja í uppþvottavél Engar flækjur Ekkert vesen Ómissandi í eldhúsið Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni og Húsasmiðjunni www.danco.is Heildsöludreifing Nú liggur fyrir fjárlagafrum- varp komandi árs og í gær var á vef Stjórnarráðsins greint frá skattabreytingum um áramót. Skattgreiðendur bjuggust ekki við mjög jákvæðum tíðindum við þær breytingar og að því leyti má segja að þær hafi staðið undir væntingum. Nefna má að þrepamörk í tekjuskattskerfi einstaklinga voru hækkuð, sem er vissulega jákvætt, en þó minna en sem nemur vísitölu launa, sem er síður gott. - - - Að fyrirtækjum snýr meðal ann- ars tryggingagjaldið, sem hef- ur enn ekki beðið þess bætur að hafa lent í hækkunarhrinu fyrstu (og vonandi einu) hreinu vinstri stjórnarinnar hér á landi. - - - Tryggingagjaldið hafði verið lækkað aðeins sem hluti af að- gerðum stjórnvalda vegna kórónu- veirunnar og er 6,10% í ár. Á næsta ári fer það aftur upp í 6,35% en lækkuninni í ár hefði að ósekju mátt halda inni. Þetta gjald er afar íþyngjandi fyrir atvinnulífið og dregur úr getu þess til að ráða starfsfólk, enda er þetta skattur á laun. - - - Eins og áður segir gerðu skatt- greiðendur sér litlar vonir um lækkun skatta á næsta ári. Farald- urinn hefur kallað á mikil útgjöld ríkisins og þá er sagt að ekkert „svigrúm“ sé til að lækka skatta. - - - Staðreyndin er þó sú að út frá slíku sjónarmiði er aldrei svig- rúm til að lækka skatta, því að báknið kallar sífellt á aukið fé. Eina leiðin til að lækka skatta er að lækka skatta og draga úr umsvifum ríkisins. Fátt til að gleðja skattgreiðendur STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti á þriðjudagskvöld þá ákvörðun sótt- varnalæknis að fimm einstaklingar sem greindust með Covid-19 skyldu sæta einangrun í 10 daga. Arnar Þór Jónsson, lögmaður ein- staklinganna, sagði á dögunum í við- tali við mbl.is að verið væri að láta reyna á hversu langt sóttvarnalækn- ir getur gengið gagnvart einkenna- lausu fólki. Verið væri að knýja fram efnislega úrlausn um þann vísinda- lega grunn sem aðgerðir stjórnvalda eru reistar á. Er þetta í þriðja sinn sem látið er reyna á lögmæti ákvörðunar sótt- varnalæknis um einangrun fyrir dómi en Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti einnig ákvörðun sóttvarna- læknis um einangrun einstaklings með úrskurði 22. október og sömu- leiðis í sambærilegu máli með úr- skurði 13. apríl síðastliðinn, sam- kvæmt upplýsingum frá heilbrigðis- ráðuneytinu. Dómstólar hafa einnig fjallað um mál einstaklinga sem mótmælt hafa ákvörðun sóttvarnalæknis um sótt- kví þeirra. Hafa tíu slík mál farið fyr- ir héraðsdóm og í öllum þeirra hafa ákvarðanir sóttvarnalæknis verið staðfestar. Arnar Þór segir í samtali við Morgunblaðið að einn úrskurðanna verði kærður en hinir fjórir séu ekki kæranlegir þar sem þeir varði ein- angrun sem rann út á miðnætti 28. desember en úrskurðurinn sem kærður verður varði sóttkví til 3. janúar. Arnar segist með þessu vilja sækja efnislega úrlausn á því sem borið var fram í málinu. Ákvörðun um einangrun staðfest Morgunblaðið/Eggert Sóttkví Starfsmaður á einu af sóttkvíarhótelunum í Reykjavík. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála hefur hafnað kæru um að ærslabelgur á Eyrartúni á Ísafirði verði færður. Tekist hefur verið á um staðsetningu belgsins í um þrjú ár. Með bréfi til úrskurðarnefndar- innar í sumar kærði eigandi Tún- götu 5 þá ákvörðun skipulags- og mannvirkjanefndar Ísafjarðarbæjar að verða ekki við beiðni hans um að færa ærslabelginn. Var þess krafist að ákvörðunin yrði felld úr gildi. Ekki hugað að öryggi Í málsrökum kæranda er m.a. bent á að með ákvörðun sinni um að staðsetja ærslabelg á Eyrartúni og færa hann nær Túngötu 5 hafi verið brotið gegn andmælarétti íbúa í nærumhverfi framkvæmdarinnar enda hafi ekki farið fram grenndar- kynning. Ekki hafi verið hugað að umferðaröryggi eða aðgengi. Þá hafi ekki verið fengið leyfi hjá Minja- stofnun fyrir framkvæmdinni á Eyrartúni, eins og beri að gera sam- kvæmt lögum um menningarminjar, en bæði sé Eyrartún friðhelgað svæði og njóti hverfisverndar. Gerði ekki athugasemdir Í málsrökum Ísafjarðarbæjar kemur fram að rétt sé að Eyrartún falli undir hverfisvernd, en í henni felist ekki lögformleg friðun heldur sé með hverfisvernd verið að leitast við að varðveita gömul hús sem hafi verndargildi. Það sé á hendi sveitar- stjórnar að taka ákvörðun um hverf- isvernd með skipulagsáætlunum og að henni sé ekki ætlað að koma í veg fyrir uppbyggingu og þróun í hverf- um. Minjastofnun hafi eftirlit með friðuðum húsum og minjum en Eyr- artún sé ekki friðað í heild sinni heldur einungis lóð safnahússins, húsið sjálft og friðlýstar minjar bæj- arhólsins. Þá hafi Minjastofnun ver- ið upplýst um breytingar á deili- skipulagi svæðisins í nóvember 2018 og engar athugasemdir hafi borist vegna þessa. Í samræmi við skipulag Í niðurstöðum úrskurðarnefndar- innar kemur m.a. fram að sam- kvæmt aðalskipulagi teljist Eyrar- tún opið svæði til sérstakra nota og falli túnið undir hverfisvernd. Í gild- andi deiliskipulagi Eyrarinnar á Ísafirði sé Eyrartún skilgreint sem leiksvæði og almenningsgarður og gert sé ráð fyrir sparkvelli næst gæsluvelli, þar sem ærslabelgurinn sé nú staðsettur. „Verður að telja að staðsetning ærslabelgsins sé í samræmi við gild- andi aðal- og deiliskipulag svæðis- ins,“ segir í úrskurðinum. Ekki þarf að færa ærslabelg á Ísafirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.