Morgunblaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.12.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Píratinn Björn Leví Gunnarsson hefur tekið forystuna í keppninni um ræðukóng Alþingis eftir fyrstu lotu nýs þings, 152. löggjafarþings. Alþingi var sett 23. nóvember að loknum alþingiskosningum 25. sept- ember og því var frestað 28. desem- ber. Þing mun koma saman á ný mánudaginn 17. janúar nk. Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur sett sitt mark á þingstörfin og margir varamenn hafa verið kallaðir inn vegna veikinda og sóttkvíar þingmanna. Samkvæmt yfirliti á vef Alþingis hafa 89 alþingismenn og varamenn þeirra tekið til máls á þinginu það sem af er 152. löggjaf- arþinginu, en þingmenn eru sem kunnugt er 63 talsins. Björn Leví Gunnarsson hefur flutt 25 ræður og gert 96 athugasemdir. Hann hefur talað í samtals 374 mínútur, eða rúmar sex klukkustundir. Björn Leví vék af þingi fyrir varamanni milli jóla og nýárs. Næstur á eftir Birni kemur annar Pírati, Andrés Ingi Jónsson. Hann flutti 90 ræður/ athugasemdir og talaði í 312 mín- útur. Í þriðja sæti er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem flutti 88 ræður/ athugasemdir og talaði í 253 mín- útur. Þorgerður greindist með Covid og vék af þingi 20. desember. Í fjórða sæti er Bergþór Ólason, Mið- flokki (87/250), og í fimmta sæti kemur Jóhann Páll Jóhannsson, Samfylkingu (75/216). Ræðukóngur þriggja síðustu þinga, Birgir Þórarinsson, hafði fremur hægt um sig að þessu sinni. Hann flutti 13 ræður/athugasemdir og talaði í 59 mínútur. Birgir var kosinn á Alþingi fyrir Miðflokkinn en gekk í Sjálfstæðisflokkinn fljót- lega eftir kosningar. Á vef Alþingis kemur fram að það sem af er 152. löggjafarþinginu voru fluttar 581 þingræða í 3.315 mínútur (55,25 klst.) og 1.256 athugasemdir í 1.834 mín. (30,57 klst.). Meðallengd þingræðu var 5,7 mínútur og aths. 1,5 mínútur. Björn Leví hefur tekið forystuna - Hefur talað í rúm- ar sex klukkustundir í fyrstu lotu Alþingis Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Björn Leví hefur komið í 121 skipti í ræðustólinn í vetur. Netverslun www.curvy.is // Fellsmúli 26, 18 RVK // Sími 581-1552 NÝ SENDING AF JÓLAKJÓLUM Stærðir 14-30 eða 42-58 Satin kjóll Stærðir 14-24 5.990 kr Síð skyrta Stærðir 14-30 9.990 kr Glimmer kjóll Stærðir 14-24 8.990 kr Túnika Stærðir 14-30 11.990 kr Síður toppur Stærðir 16-26 8,990 kr Velúr kjóll Stærðir 14-24 9.990 kr veg * Frí heimsending hvert á land sem er ef verslað er fyrir 5.000 kr eða meira Með úrskurði Héraðsdóms Reykja- víkur uppkveðnum 15. desember 2021 var bú Knoll og Tott ehf. tekið til gjaldþrotaskipta Í tilkynningu í Lögbirtinga- blaðinu er skorað á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráð- um þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra innan tveggja mánaða. Kröfulýsingar skulu sendar Alex- ander Erni Júlíussyni lögmanni f.h. skiptastjórans, Birgis Tjörva Pét- urssonar, Lækjargötu 2, Reykjavík. Knoll og Tott ehf. var stofnað ár- ið 2017. Tilgangur félagsins er húsasmíði og önnur verktaka- starfsemi, eignarhald og útleiga fasteigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur. Knoll og Tott til gjaldþrotaskipta Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Að loknum kosningum 2013 var VG orðinn breyttur flokkur og skal fús- lega viðurkennt að hjarta mitt var dapurt. Gleðin var horfin.“ Þetta segir Ögmundur Jónasson, fyrrver- andi alþingismaður, í niðurlagi bók- ar sinnar, Rauði þráðurinn. Í Morgunblaðinu í gær sagði frá bók- inni sem kemur formlega út á nýárs- dag. Þar fer höfundurinn yfir póli- tíska vegferð sína sem spannar áratugi. Vegferð þessi hófst þegar Ögmundur var í forystu félags starfsmanna sjónvarpsins, sem létu mjög til sín taka í verkfalli BSRB haustið 1984. Fjórum árum seinna var Ögmundur kjörinn formaður BSRB og gegndi því embætti allt til 2009, þá fjórtán árum áður orðinn þingmaður, fyrst Alþýðubandalags- ins og óháðra og síðar Vinstri hreyf- ingarinnar – græns framboðs. Andstaðan þyngdi andrúmsloftið Ögmundur var – með hléi – einn af ráðherrum VG í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem var við völd 2009-2013. Var fyrst heilbrigðis- en síðar innanríkisráðherra. Í síðar- nefnda embættinu lagðist hann gegn boðuðum kaupum Kínverjans Huans Nubos á Grímsstöðum á Fjöllum, en sú afstaða hans þyngdi mjög and- rúmsloftið í ríkisstjórninni, svo hún riðaði til falls. „Að skrifa söguna sjálfa tók ekki ýkja langan tíma. Þó lagði ég mikla vinnu í að skrifa suma kaflana af sagnfræðilegri nákvæmni. Þar nefni ég Icesave-samningana og aðildar- umsókn að Evrópusambandinu sem voru stórmál í tíð ríkisstjórnarinnar 2009-2013. Aðildarumsókn að ESB var Vinstri grænum raunar afar erf- ið,“ segir Ögmundur í samtali við Morgunblaðið. „Á þessum tíma voru mikil átök í stjórnmálunum og sýn fólks á hlut- ina ólík. Ýmsir hafa skrifað um þennan tíma og mál sem þá voru í deiglunni. Mitt innlegg þarna verður þá sem flísar í stóra mósaíkmynd. Árin fyrst eftir hrunið og atburðir þá eru þó sennilega of nálægt okkur í tíma þannig að heildarmyndin verði hlutlæg í hugum fólks. Móðurinn er enn að renna af mönnum.“ Atli átti nafnið Í bók sinni gagnrýnir Ögmundur stefnu og störf VG á líðandi stundu. Afsláttur hafi verið gefinn í afstöðu til markaðshyggju og utanríkismála. Þá þykir honum afstaða flokksins til markaðsvæðingar Evrópusam- bandsins, sem birtist meðal annars í afstöðu til orkumála, fullkomið frá- hvarf frá fyrri stefnu. Svo margt hafi raunar breyst að rétt sé að skoða hvort ekki sé rétt að stytta nafn flokksins og sleppa tilvísun í vinstri og grænt svo eftir standi Hreyfingin framboð og þá skammstöfunin skv. því HF. Upplýst er í bókinni að hug- myndin að nafninu Vinstri hreyf- ingin sé komin frá Atla Rúnari Hall- dórssyni fjölmiðlamanni, sem hafi verið til ráðgjafar við flokksstofnun sumarið 1998. Skilaboð Atla þar hafi verið að hreyfing væri stærra hug- tak en flokkur og niðurstaðan hafi því orðið sem fyrr greinir. Í samtali við Morgunblaðið í gær staðfesti Atli Rúnar að hér væri rétt farið með. Vinstri hreyfingin hefði verið sín til- laga, en grænt framboð væri frá öðr- um komið. Skrá söguna á eigin forsendum Í bókinni Rauði þráðurinn segir frá ætt og uppruna Ögmundar og hefur hún að geyma líflegar frásagn- ir af samferðamönnum hans úr Sjón- varpinu, BSRB og pólitíkinni. Bókin er þannig í senn persónusaga og þó fyrst og fremst söguleg sýn á stjórn- mál og verkalýðsbaráttu síðustu áratuga. „Mér var í mun að skrá sjálfur og á eigin forsendum sögu atburða og framvindu sem ég þekki vel og átti þátt í að móta. Að því leyti er frá- sögnin mín sýn á málefnin, verka- lýðsbaráttuna og pólitíska þróun á síðustu árum. Í atburðum í fortíð og samtíð má greina rauðan þráð sem nú teygir sig inn í framtíðina,“ segir Ögmundur Jónasson um bókina sem forlagið Sæmundur gefur út. Nubo felldi næstum ríkisstjórnina - Icesave og ESB voru erfið mál VG í Jóhönnustjórninni, segir Ögmundur í nýrri bók - Flokkurinn gaf eftir í markaðshyggju - Fullkomið fráhvarf frá fyrri stefnumálum - Vinstrihreyfingin verði HF Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sögumaður Frásögnin er mín sýn á málefnin, verkalýðsbaráttuna og póli- tíska þróun síðustu ár, segir Ögmundur Jónasson um bókina Rauði þráðurinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.