Morgunblaðið - 30.12.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.12.2021, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN Messur um áramót MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 2021 STUÐIÐ ER Í VINNUNNI NÝR RAFMAGNS SENDIBÍLL Vivaro-e er einn fullkomnasti atvinnu– rafmagnsbílinn á markaðnum. Með honum velur þú að marka grænt fótspor með þínum atvinnurekstri. 100% RAFMAGN RAFHLAÐA, HLEÐSLA OG DRÆGNI Nú kemur ekkert í veg fyrir að það sé hægt að nota rafmagnsbíla í atvinnurekstri. Vivaro-e hefur svipaða burðagetu og vörurými og hefðbundinn sendibíll en er mikið hagkvæmari í rekstri. Mótor: 100 kW Rafhlaða: 50/75 kWh Drægni: 231/330 km. (WLTP) BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: 480 8080 BB, betri bílar Akureyri Njarðarnesi 12 Sími: 534 7200 Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 VIVARO-E VERÐ FRÁ AÐEINS: 5.290.000 KR. LANGTÍMALEIGA FRÁ: 129.600 KR. Á MÁNUÐI. B irt m e ð fy rirv a ra u m m y n d - o g t e x ta b re n g l. B íll á m y n d e r m e ð a u k a b ú n a ð i. TILBÚIN TIL AFHENDINGAR STRAX! NÝTTU ÞÉR SKATTALEGT HAGRÆÐI ÁRSINS SEM ER AÐ LÍÐA! ÁRBÆJARKIRKJA | Vegna samkomutak- markana falla áramóta- og nýársguðsþjónustur niður. BESSASTAÐASÓKN | Sameiginlegar guðs- þjónustur Bessastaða- og Garðasókna um ára- mótin. Einungis í streymi m.a. á facebooksíðu Bessastaðakirkju. Gamlársdagur. Aftansöngur Bessastaðakirkju kl. 17. Sr. Sveinbjörn Einarsson og Vilborg Ólöf Sigurðardóttir djákni þjóna. Álftaneskórinn syngur, stjórnandi er Ástvaldur Traustason, Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta á nýju ári í Ví- dalínskirkju kl. 14, sjá nánar Vídalínskirkja. DÓMKIRKJAN | Allt helgihald fellur niður um áramót og á meðan núgildandi sóttvarnareglur eiga við, þ.e. til 12. janúar. Á nýársdag, klukk- an 11, verður útvarpað hátíðarguðsþjónustu í Dómkirkjunni á Rás 1. GRAFARVOGSKIRKJA | Nýársdagur. Áramótakveðja frá kirkjunni. Ein- söngur Diddú. Píanóleikari er Gísli Magna. Vox Populi. Prestar eru Arna Ýrr Sigurðardóttir og Guðrún Karls Helgudóttir. HAUKADALSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á gamlársdag kl. 14. Andlitsgrímur og aðrar sóttvarnareglur. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson biskup. HÁTEIGSKIRKJA | Áður auglýstum guðsþjón- ustum á gamlársdag og nýársdag er aflýst vegna sóttvarnasjónarmiða. NESKIRKJA | Allt helgihald um áramót fellur niður í Neskirkju í ljósi tilmæla biskups og smit- varna. Hugvekjur verða sendar út á facebook- síðu kirkjunnar. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Messuhald um ára- mót í Óháða söfnuðinum verður því miður að- eins í streymi vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Aftansöngur á gamlársdag kl. 18. Sent verður út á Facebook. Séra Pétur þjónar og Kristján Hrannar sér um tónlistina. SELJAKIRKJA | Helgistund í beinu streymi á seljakirkja.is kl. 17. Sr. Bryndís Malla Elídóttir leiðir stundina og Kór Seljakirkju syngur. Org- anisti er Tómas Guðni Eggertsson. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Aftansöngur á gamlársdag kl. 17. Andlitsgrímur og aðrar sótt- varnareglur. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson biskup. SÓLHEIMAKIRKJA | Aftansöngur á gamlárs- dag kl. 17. Organisti er Ester Ólafsdóttir. Sr. Hannes Örn Blandon, pastor emeritus. TORFASTAÐAKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag kl. 14. Munið andlitsgrímur og aðr- ar sóttvarnareglur. Organisti er Jón Bjarnason. Sr. Kristján Björnsson biskup. VÍDALÍNSKIRKJA | Nýársdagur. Sameiginleg hátíðarmessa Garðaprestakalls í Vídalínskirkju kl. 14. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari. Guðmundur Felix Grétarsson flytur ára- mótaávarp. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Hlöðver Sigurðsson óperusöngvari syngur ein- söng. Streymt verður beint frá athöfninni á fa- cebook.com/vidalinskirkja Kirkjugestir verða að sýna neikvætt hraðpróf, ekki eldra en 48 klst. Sjálfspróf gilda því miður ekki. ÞINGVALLAKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag kl. 14. Munið andlitsgrímur og aðrar sóttvarnareglur. Organisti er Ester Ólafsdóttir. Prestur er Sighvatur Karlsson. Morgunblaðið/Ómar Skrúðhúsið í Árbæjarsafni. Nú stendur til að bólusetja börn frá 5-11 ára. Ætlunin er að nota sama bóluefni og full- orðnir hafa verið bólu- settir með undanfarið ár – einu sinni, tvisvar og þrisvar o.s.frv. Vernd bóluefnanna hefur verið klén ef nokkur eins og öllum ætti að vera orðið ljóst. Rannsóknir á millj- ónum barna í Evrópu hafa verið gerð- ar, á um tveimur milljónum í Svíþjóð og enn fleirum í Þýskalandi. Í þeim öllum kemur skýrt fram að mjög fá börn urðu alvarlega veik af Covid og engin dauðsföll. Fjöldi rannsókna sýnir ótvírætt fram á að afar sjald- gæft er að börn veikist alvarlega af Covid og segja má að andlát meðal þeirra séu engin (faraldsfræðilega séð). Sænsk rannsókn Ludvigssons á 1.951.905 börnum í Svíþjóð á aldr- inum 1-16 ára, sem sóttu skóla að mestu án nándartakmarkana eða notkunar andlitsgríma, sýndi engin dauðsföll hjá börnunum. Þrátt fyrir að Svíþjóð hafi haldið leik- skólum og grunnskólum sínum opnum kom í ljós mjög lág tíðni alvarlegra Covid-19-einkenna hjá þessum börnum. Nýleg þýsk rannsókn, SARSCoV-2 KIDS, varð- andi börn og unglinga sem lagst hafa inn á sjúkrahús í Þýskalandi með annaðhvort SARS- CoV-2 eða PIMS-TS (Pediatric Inflammatory Multisystem Syndrome), sýndi að ekkert barn á aldrinum 5-18 ára lést. Ómíkron tók yfir smitin Ómíkron er með 50 stökkbreyting- um – þ.e. nýr stofn veiru. Allar þessar rannsóknir voru gerðar fyrir tíð hins nýja stofns sem núna herjar á okkur. Varla er hægt að kalla þetta afbrigði kórónuveiru lengur, svo frábrugðin er SARS-CoV-2 þróunarlega séð. Alls hafa fundist um 50 stökkbreytingar í ómíkron og a.m.k. 36 á sjálfum teng- isprota (spike) hennar. Hvaða þýðingu hafa allar þessar stökkbreytingar? Hvaða áhrif hafa þær á árangur bóluefnanna sem fólk hefur verið bólusett með síðasta árið í eitt, tvö og jafnvel þrjú skipti eða oft- ar, örvun, og virðast ekki duga til lengdar og hjarðónæmið fjarri, þetta sem átti að stöðva faraldurinn? Notað er sama bóluefnið aftur og aftur og nú er ætlunin að sprauta börnin með þessum sömu bóluefnum sem verja hvorki þau né aðra gegn Ómíkron. Er hægt að búast við að þessi bólulyf verndi börnin eitthvað betur en þá eldri? Verndin er engin en óvissa aukaverkana nokkur. Hver er ávinn- ingurinn ef aukaverkanirnar eru bara eftir? Hjarðónæmið bíður enn síns tíma þótt 90% þjóðarinnar séu að fullu tví- eða þrísprautuð, en vitað er núna að bóluefnið virkar ekki gegn Ómíkron. Ekki frekar en það gagnast Dönum frændum okkar þar sem flest Ómík- ronsmitin virðast borin uppi af tví- og þrísprautuðum einstaklingum undir fertugu. Nú er ekki verið að ræða skaðsemi bólulyfjanna til lengri eða skemmri tíma, sem eðlilega hefur ekkert verið rannsakað, það bíður ennþá niðurstaðna rannsókna. Börnin með 99,99% vernd Er hægt að bæta það sem þegar er ekki aðeins betra heldur best? Því ekki að leyfa börnum að njóta vafans og fara að að ráði vísinda varðandi fyrirhugaðar bólusetningar á þeim? Taka tillit til þess hve vel börnin eru vernduð af eigin ónæmiskerfi, hve væg einkenni veikinda eru, alvarleg einkenni covid eru sjaldgæf og dauðs- föll ekki þekkt í rannsóknum milljóna barna. Hvers vegna ætti þá að bólu- setja börn? Í alvöru, hvers vegna? Svo miklar hafa stökkbreyting- arnar orðið að nýju bóluefnin virka ekki lengur, né virðast þau vernda þá sem hafa fengið Covid áður eða verið meðhöndlaðir með einstofna mót- efnum (monoclonal antibodies). Á ég að láta bólusetja barnið? Ef barnið mitt hefur litla sem enga áhættu af Covid; enga áhættu alvar- legra afleiðinga sjúkdóms eða dauða; engan ávinning af bólusetningu en mögulegan skaða til skamms tíma, til lengri tíma hugsanlegan skaða vegna óþekktra skaðlegra afleiðinga af bólusetningunni? Hvers vegna ætti ég þá að vera að útsetja barnið mitt fyrir óþarfa áhættu með þessari bólu- setningu? Bretar mæla ekki með bólusetn- ingu barna 5-11 ára, af hverju við? Höfum við yfir betri þekkingu að ráða en þeir? Læt kollega, dr. Robert Malone, þann sem uppgötvaði mRNA-tækn- ina sem bólulyfin eru byggð á, hafa síðasta orðið varðandi börnin þegar hann varar við og hvetur foreldra til að að hugleiða alvarlega hvað þau eru að gera. Hlýddu á eða lestu ákall Mal- ones til foreldra í þessum tenglum: https://www.bitchute.com/video/- KxW1zjIitK8B/?fbclid=IwAR3C- N22m5v1vZStGpWkM7crgG0faz52- ShZ3hCkZ9U_-19RxvsE64PC0JmII ( http://mbl.is/go/vteqj ) https://globalcovidsummit-org.- translate.goog/news/live-stream- event-physicians-alerting-parents? fbclid=IwAR1wJHiypkJTQSRyi- BU8IaslG4IIz1_o2FMY2bSwOfW- LiStlXFoVIwLby9c&_x_tr_sl=sv &_x_tr_tl=is&_x_tr_hl=is (http://mbl.is/go/nwzr8) Hvernig getum við gert það besta fyrir börnin? Eftir Guðmund Karl Snæbjörnsson » Bretar mæla ekki með bólusetningu barna 5-11 ára, af hverju við? Guðmundur Karl Snæbjörnsson Höfundur er sérfræðingur í heim- ilislækningum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.