Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.06.2003, Page 13
Nýtt námsefni fyrir
grunnskóla um slys
og slysavarnir
G
eimálfurinn frá
arslys
- leikinn af Árna Salomonssyni, félaga í Sjálfsbjörg.
Um nokkurt skeið hafa íslendingar verið með hæstu
slysatíðni á börnum og unglingum af öllum Norður-
landaþjóðunum. Fyrir nokkrum misserum gaf heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið út heilbrigðisáætlun til
ársins 2010. Helstu markmið þeirrar áætlunar eru m.a. að
draga úr slysum og dauðaslysum á þessum aldurshópi um
25%. Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur því ráðist í gerð
námsefnis fyrir grunnskóla um slys og slysavarnir, sem ber
heitið Geimálfurinn frá Varslys. Höfundur efnisins er Unn-
ur María Sólmundardóttir, en hún er mörgum félögum
í Sjálfsbjörg vel kunn þar sem hún hefur starfað með Hala-
leikhópnum, leikfélagi fatlaðra og ófatlaðra. Unnur María
samdi m.a. handritið að leikritinu Á Fjölum félagsins sem
Halaleikhópurinn sýndi fyrir skömmu við góðar undirtektir.
Arni Salomonsson í hlutverki geimálfs-
insfrá Varslys. Mynd/Hreinn
Magnússon.
Unnur María var við nám í Kenn-
araháskóla Islands þegar Slysa-
varnafélagið Landsbjörg auglýsti
eftir nemanda til að gera handrit að
námsefni um slys og slysavarnir.
Unnur María hreppti hnossið og
notaði handritið sem lokaverkefni
sitt við skólann. Handritið hlaut
m.a. viðurkenningu úr Minningar-
sjóði Asgeirs S. Björnssonar, sem
árlega er veitt fyrir framúrskarandi
B.Ed. ritgerð við Kennaraháskóla
Islands.
Unnur María starfar nú hjá Slysa-
vamafélaginu Landsbjörg þar sem
hún vinnur að gerð námsefnisins, en
áætlað er að gefa það í alla grunn-
skóla landsins næsta haust. Náms-
efnið, sem er lífsleikniverkefni,
fjallar um geimálf frá plánetunni
Varslys, sem brotlendir á Islandi.
Unnur María leitaði til vinar síns
Árna Salomonssonar, sem einnig
hefur starfað með Halaleikhópnum,
til að leika geimálfinn. „Ámi var
strax til í þetta. Við höfum þegar
heimsótt grunnskólaböm þar sem
hann hefur hreinlega brillerað sem
geimálfur,“ segir Unnur María.
„Hann lifir sig alveg inn í hlutverkið
og gefur geimálfinum bæði líf og
kraft. Hann hefur spáð mikið í hlut-
verkið og hefur þróað sérstakt
13