Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2021, Page 19

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2021, Page 19
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2021 http://www.ætt.is aett@aett.is19 sem mjög vel gefinn maður. Þetta vakti undrun allra. Pólastrákurinn og systir málfræðingsins, sem í hverri viku uppfræddi landslýð, voru orðin par. Hvernig gat það farið saman??? Á þessari stundu hvarf hugur Guðrúnar greinilega aftur um nær heilan mannsaldur og hún sá fyrir sér, eitt augnablik í fyrsta sinn, stúlkuna hans Ragga, hans Ragga úr Pólunum, gáfuðu stúlkuna að vestan.... Pólastrákurinn hann pabbi minn og móðir mín, „gáfaða stúlkan að vestan“. Munum að skrá sögu gömlu hlutanna Hún er svo oft okkar saga Snældustokkur og halasnælda ásamt snældum Þessir gripir voru í eigu Ingveldar Rutar Ásbjörnsdóttur föðurömmu minnar. Hún var fædd að Ási í Hafnarfirði 12. des. 1872 og lést í Reykjavík 14. jan. 1964. Ingveldur var 6. lið- ur frá Bergi í Brattholti, sem Bergsætt er við kennd. Langalangafi hennar var Guðni Jónsson í Reykjakoti í Ölfusi sem Reykjakotsætt er frá tal- in. Ingveldur var alla tíð mjög fátæk. Hún var ein- stæð móðir með þrjú börn. Faðir Ingveldar var Ásbjörn b. á Leiðólfsstöðum í Flóa Ólafsson b. Hvoli í Ölfusi. Móðir Ásbjörns var Inghildur Þórðardóttir sterka b. í Bakkarholti í Ölfusi Jónssonar. Inghildur var langalangamma Ragnars Kjartanssonar myndhöggvara, föð- ur Kjartans Ragnarssonar leikara og langamma Meivants Sigurðssonar á Eiði. Móðir Inghildar var Ingveldur Guðnadóttir b. í Reykjakoti Ölfusi Jónssonar. Ingveldur var langalangamma Halldórs Laxness. Guðni Jónsson í Reykjakoti er ættfaðir Reykjakotsættarinnar. Móðir Ingveldar Rutar ömmu minnar var Svanhildur Illugadóttir b. Svalbarða og Skógtjörn á Álftanesi Árnasonar. Svanhildur var dóttir Halldóru Gamalíelsdóttur Jónssonar b. Dysjum á Álftanesi Þorgrímssonar Bergssonar Sturlaugssonar ættföður Bergs- ættarinnar. (Guðfinna Ragnarsdóttir) Smælki Mannlýsing Margar sögur eru sagðar af Sigmundi Magnússyni í Akureyjum. Hann var sonur Magnúsar Ketilssonar sýslumanns. Hann var hæfileikamaður, en mikill drykkjumaður. Sagt var að hann drykki þó aldrei svo mikið að hann slagaði eða í honum drafaði. Þvert á móti óx honum við drykkjuskapinn fjör, áræði og stórkostleg ógætni. Séra Eggert, faðir Friðriks Eggerz, lýsir Sigmundi svo: Hann var stærri en í meðallagi á vöxt, flatvaxinn, hálslang- ur og herðabreiður, útlimaþrekinn, lágur á niður- vöxt, en manna hæstur í sessi og manna best á fót kominn, með fallega hönd, flata og breiða, vöðvamikla, tilþrifaharða og óslysna. Höfuð og andlit í stærra lagi, andlitið vel fallið, mik- il brúnabein, móeygður og hýrlegt augnatillitið, þá hann var í góðu skapi, fast og óskeikult, og líktist um það, að sögn, móður sinni. Fremur var hann digurrómaður og mikill yfirmáli, og sem væri nokkuð skipandi í rómnum, heldur sein, en fljótmæltur og gaf málhvíld öllum þeim sem við hann ræddu. Stundum var hann hljóður og gjörðist með aldrinum tortryggur, og má því hafa valdið, að oft þóttist hann narraður og svikinn af öðrum. Á hár og skegg var hann rauðbirkinn, en dökknaði með aldrinum og var hvorttveggja þykkt og mikið... Sigmundur lést 1837. (Sögur af Snæfellsnesi 1. Oskar Clausen)

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.