Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 2
I iimróíi hugmjnda og breytílegs gildismats íslenskt samfélag, eins og flest samfélög Vesturlanda, er á miklu breytingaskeiði. Markvisst er unnið að því að breyta grundvallarviðmiðum og gildum. Alls kyns menningarstraumar flæða yfir landið með ferðamönnum, nýbúum og hnattvæðingu þar sem ekkert er lengur of fjarlægt til að nálgast það. Lykilorð til að lýsa ástandinu eru fjölhyggja og fjölmenning, andstæður hins einsleita samfélags. Fjölmenningin leiðir af sér að fleiri spyrja um sannleiksgildi og erindi kristinnar trúar við manninn í nútímasamfélagi. Með allt þetta framboð virðist sem trúverðugleiki hins gamla sé minni en var og sumt fólk lítur svo á að kirkja og kristin trú séu úr leik. Og víst er það að ekki er reiknað með eða hugsað markvisst út frá kristnum gildum í sama mæli og var. Hvert það leiðir okkur á eftir að koma í Ijós. Við aðstæður sem þessar getur verið freistandi að draga sig í hlé, gefast upp eða fyllast vonleysi. En Biblían hvetur okkur til hins andstæða. Sannleikur fagnaðarerindisins hefur ekki breyst. Þess vegna er hvorki í boði að þegja eða draga rí^lNGI HÓPFERÐIR 5544466 úr sannleiksgildi hans með málamiðlun. Aðeins Jesús hefur sýnt okkur hver Guð er í raun og veru. Aðeins hann er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir hann. Það hefur ekkert breyst með fjölmenningu og breytist ekki þó svo fjöldinn snúi baki við Jesú. Ekkert annað nafn er til um víða veröld sem getur frelsað manninn og leyst hann frá sekt, skömm og ótta. Allt stefndi til hans og frá honum - að það verður hann, ekkert og enginn annar, sem kemur að dæma lifendur og dauða. Okkur er trúað fyrir fagnaðarerindinu og þurfum bæði að sjá og nýta tækifærin. Margir eru innst inni trúarlega leitandi, ekki síst þegar fólk stendur andspænis dauðanum og spurningunni um tilgang lífsins. Við þurfum kjark, kraft heilags anda og auðmýkt kærleikans sem hann vill einnig veita okkur, til þess að fólk sjái Jesú og snúi sér til hans. Með Bjarma viljum við beina sjónum okkar og annarra að hinum krossfesta og upprisna, vera til hvatningar og uppörvunar, efla trú okkar og þjónustu í Guðs ríki með bæn um að Drottinn leiði okkur um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. í þessu tölublaði tengjumst við áfram séra Friðriki í tilefni þess að 150 ár voru frá fæðingu hans í maí sl. Viðtal er við Helga Gíslason, formann KFUM og KFUK á íslandi, og grein um ást og stríð í söngvum séra Friðriks. Einnig er horft til annars stórmennis í Guðs ríki, Billys Graham sem lést fyrr á árinu en í nóvember verða 100 ár liðin frá fæðingu hans. Framundan er GLS ráðstefnan í tíunda sinn hér á landi og rætt við frumkvöðla og lykilmenn á þeim vettvangi. Sigurjón Árni Eyjólfsson skrifar um kirkjuklukkurnar, Vigfús Ingvar Ingvarsson um miskunnsama Samverjann og systurnar í Betaníu og um nýtt hugsanlegt hagkerfi. Þá birtist einnig yfirlýsing Alkirkjuráðsins um sköpunina og sjálfbær samfélög ásamt inngangi Gunnþórs Þ. Ingasonar. Uppáhaldsversið, Bjarmabrosin, hug- vekju og fleira er einnig að finna í þessu tölublaði. Við biðjumst afsökunar á nokkrum töfum við útgáfu þess og horfum fram til þess næsta í desember. Ragnar Gunnarsson S. Waage ehf. Garðabæ ____ Hjáiparstarf \V[J kirkjunnar GA SMÍÐAJÁRN WAMIS Bjarmi 2. tbl. 112. árgangur, október 2018. ISSN1026-5244 Útgefandi: Salt ehf í samstarfi við Samband íslenskra kristniboðsfélaga Ritstjórn: Ragnar Gunnarsson, Vigfiís Ingvar Ingvarsson, Haraldur Jóhannsson og Böðvar Björgvinsson Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson og Vigfus Ingvar ingvarsson. Afgreiðsla: Háaleitisbraut 58-60,108 Reykjavik, sími 533 4900, fax 533 4909. Kennitala Salts: 600678 0789, reikningsnúmer 0117 26 017476, IBAN: IS18 0117 2601 7476 6006 7807 89, SWIFT: NBIIISRE Vefslóðir: www.bjarmi.is,www.sik.is og www.saItforlag.is. Netpóstur: ragnar@sik.is Argjald kr.4.950 (þrjú tölublöð), kr. 5.950 til útlanda. Gjalddagi 1. júní. Verð í lausasölu kr. 1.750. Forsíðumynd: Lightstock Umbrot og hönnun: Emil Hreiðar Björnsson Prentun: Litróf bjarmi.is

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.