Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 45
Ráðstelna nm Jón
lærða í Eyjafírði
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
Laugardaginn 8 september var haldin
ráðstefna á Laugaborg, Hrafnagili í
Eyjafirði, um Jón lærða Jónsson frá
Möðrufelli. Heiti ráðstefnunnar var: Einvígi
milli sannleika og lygi eða „Sá guðlega
þenkjandi náttúruskoðari"
Ráðstefnan var um „eitthvað sem
skiptí máli úr fortíðinni fyrir framtíðina“ þar
sem kastljósinu var beint að Jóni Jónssyni
(1759-1846), presti í Grundarþingum,
fróðum manni með vakandi huga fyrir
náttúru og samfélagi, en einnig menningu
og trúarbrögðum. í Grundarkirkju var
bókasafn á kirkjuloftinu frá Jóni síðan
1839 sem nú hefur verið skráð og var
opnuð sýning á því í lok ráðstefnunnar á
bókasafninu á Hrafnagili.
Á ráðstefnunni var einnig greint frá
handritum sem Jón skrifaði, en hann
fékk viðurnefnið lærði. Þar á meðal eru
veðurdagbækur sem faðir hans Jón
Jónsson eldri byrjaði á og Jón yngri hélt
áfram með og spanna nær 100 ár.
Náttúruleg guðfræði var stunduð á
þessum árum þar sem sköpunarverkið
var skoðað til að skilja Guð og veröldina,
en það var fyrir daga Darwins. Jón þýddi
bók Shums nokkurs sem ber heitið Sá
guðlega þenkjandi náttúruskoðari, sem
fékk sérstaka athygli á ráðstefnunni. Jón
lærði hefur orðið að bókmenntapersónu
og sögur af honum vakið athygli,
mótsagnakenndar svo spurt var
um hans heittrúuðu harðneskju,
en einnig gamansemi, staðfestu
og þjónustulund. Leitast var við
að varpa Ijósi á staðbundna
sögu og menningu í Eyjafirði
og sett í samhengi þess þegar
lúterskur rétttrúnaður mætti
upplýsingastefnunni og skyn-
semishyggju.
Síðast, en ekki síst, var Jón
í sambandi við menn erlendis
þar sem kirkjur mótmælenda
voru að hefja umtalsvert
kristniboð sem gerði þær að
alþjóðlegri hreyfingu. Voru
kynntar til sögunnar heimildir
um það og sagt frá þátttöku Jóns varðandi
það hugðarefni sitt en hann er meðal fyrstu
talsmanna kristniboðs á alþjóðavettvangi
hér á landi. Hann skrifaðist á við menn
sem Ebeneser Henderson kom honum í
samband við eftir trúboðsferð sína hingað
til lands árin 1814-15 og sem varð m.a.
til þess að Hið íslenska biblíufélag var
stofnað. Bonne Falk Rönne formaður
danska trúboðsfélagsins var einn þeirra
sem Jón skrifaðist á við og styrkti sr. Jón
danska trúboðsfélagið um árabil. Smárit
hans, fyrsta kristilega og evangelíska
tímaritið á íslandi,
endurspeglar bókasafnið sem var lengi á
kirkjuloftinu á Grund.
Á næstu tveim blaðsíðum er prentað
veggspjald sem útbúið var í tilefni
sýningarinnar fyrir norðan með áherslu
hans á kristniboð.
Það voru þeir Guðmundur Guð-
mundsson héraðsprestur, Bjarni E.
Guðleifsson prófessor emeritus í nátt-
úrufræði og Hjalti Hugason prófessor í
kirkjusögu sem voru í undirbúningsnefnd
ráðstefnunnar.
bjarmi | apríl 2018 | 45