Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 37
Hún ætlaði ekki að fylgja honum á slíkri
vegferð. Hjónin settust að í Montreat í
Norður-Karólínu og eignuðust fimm börn.
Fyrsta fasta starfið sem Billy tók að sér
var boðunarstarf fyrir samtökin Youth for
Christ (Æskan fyrir Krist). Ferðir hans um
Ameríku og Evrópu gáfu honum innsæi
sem síðar nýttist í samkomuherferðum
á hans vegum en árið 1947 tók Billy að
skipuleggja eigið starf. í fyrstu herferðinni í
Los Angeles árið 1949 komst til trúar bæði
frægt fóik og fyrrum félagi glæpagengis og
það vakti vissulega athygli.
Fyrsta alþjóðlega herferð Billys Graham
var í Lundúnum árið 1954, þar sem hann
náði til þúsunda í Harringay íþróttahöllinni
í norðurhluta Lundúna. Alla sunnudaga í
þrjá mánuði var hann að. Hann heimsótti
á þeim tíma m.a. Winston Churchill og átti
síðar fund með Elísabetu drottningu.
LYKILL AÐ VELGENGNI
Ýmsir hafa velt fyrir sér hver hafi verið lykillinn
að því að samkomuherferðir hans báru
svo mikinn árangur. Margir benda á ein-
faldan og skýran boðskap með ákveðinni
hvatningu um að stíga skrefið. Prédikunin
var byggð á vel völdum biblíutextum. Á
námskeiði á vegum boðunarsamtaka Billys
Graham sem undirritaður og fleiri héðan
sóttu í Hollandi á 10. áratugnum benti
framkvæmdastjóri samtakanna á að ræður
eða prédikanir Billys væru að stofni til sjö
talsins. Hins vegar breyttist eitt og annað
í innihaldinu og eftir aðstæðum. Sjálfur
sagðist hann hafa flutt ræður hans án þess
að fá nein viðbrögð en Billy Graham hefði
sérstaka náðargjöf, að kalla fólk til að taka
skrefið og gera það bókstaflega.
Aðrir töldu Billy spila á tilfinningasemi,
sumir töluðu um hann sem góðan
sölumann sem kynni að nýta sér
auglýsingar og nýjustu tækni til að skapa
áhuga á samkomunum. Sjálfur varði hann
aðferðirnar eitthvað á þessa leið: Á sérhverju
sviði lífsins finnst okkur sjálfsagt að vekja
athygli, hugsa stórt og nota tæknina -
hvers vegna á kirkjan ekki að nýta sér það
eins og aðrir? Sumum úr íhaldssömustu
geirum kirkjunnar þótti hann of frjálslyndur
og nútímalegur. Sjálfur leit Billy á sig sem
íhaldssaman ef það þýddi rétttrúnað sem
byggði á trú á Ritningunni, friðþægjandi
verki Krists og líkamlegri upprisu hans.
Hann hafnaði hins vegar stimplinum
„íhaldssamur" eða „bókstafstrúar" ef það
var alfarið gert á grundvelli neikvæðrar
afstöðu til frjálslyndis.
BÆN OG STJÓRNMÁL
Á sviði stjórnmálanna forðaðist Billy
Graham deilur og umdeild efni og sá
síðar meir eftir að hafa látið dragast inn í
pólitískar deilur. Hann hafði á yngri árum
talað gegn kommúnisma og félagshyggju.
Stefna hans varð sú að kristilegt starf
væri öflugast þegar það væri hvorki tengt
til hægri né vinstri í stjórnmálum. Og
þó svo hann væri traustur vinur forseta
repúblikana, þeirra Richards Nixon og
beggja Bush-feðganna, var hann í reynd
skráður í demókrataflokkinn. Hann hitti
alla forseta Bandaríkjanna frá Harry
Truman 1945-1953) til Barack Obama
(2009-2017). Sjálfum fannst honum
bjarmi | apríl 2018 | 37