Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 23

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 23
Uppáhalds bibliuversið miii VILBORG R. SCHRAM Þegar ég var beðin um að skrifa nokkur orð um uppáhaldsbiblíuversið mitt, kom strax ákveðið vers upp í hugann. Þegar maður hefur gengið með Guði í áratugi, þá eru óneitanlega mörg vers sem manni hefur þótt vænt um í gegnum tíðina og sem hafa talað til manns við mismunandi kringumstæður, verið til uppörvunar, hvatningar og huggunar, eftir því sem maður hefur þurft á að halda hverju sinni. En það vers sem kom mér nú í hug er í Róm. 8.38-39; Því ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi né hið ókomna, hvorki kraftar, hæð né dýpt, né nokkuð annað skapað muni geta gert oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum. Ástæðan fyrir því að þetta hefur lengi verið uppáhaldsvers hjá mér er sú, að móðir mín greindist með alvarlegt krabbamein þegar hún var 68 ára gömul. Hún hafði alla tíð verið mjög heilsugóð og kom þetta því eins og reiðarslag inn í líf fjölskyldunnar. Læknar gerðu það sem þeir gátu og höfðu kunnáttu til. Við svona kringumstæður er gott að eiga góða vini sem hægt er að leita til með fyrirbænir og það voru margir sem báðu með okkur til Guðs, um lækningu fyrir hana. En allt kom fyrir ekki, mamma dó hálfu ári eftir að hún greindist með krabbameinið. Á þessu tímabili varð þetta vers mér mikil huggun. Ég fann að Guð hafði ekki misst stjórn á hlutunum, hann var enn sá sami og ég var örugg í hendi hans. Ég fann líka vel að bænir vina okkar gerðu lífið léttbærara, það var eins og þær héldu mér uppi. Eitt er víst að við munum öll deyja og þá skiptir mestu máli að eiga frið Guðs í hjarta sínu, en hann átti mamma mín. En sú fullvissa, að hvað sem kemur fyrir í lífi okkar, þá verður ekkert til að gera okkur viðskila við kærleika Krists, sú fullvissa verður manni haldreipi. Jesús gefur okkur líka styrk til að mæta öllum kringumstæðum og kjark til að halda áfram. Við komumst ekki hjá því að mæta ýmsu á lífsgöngu okkar, sem reynist okkur erfitt eða andsnúið. Margir spyrja þá: Hvers vegna, Guð? Við fáum ekki alltaf svör við því, hvers vegna erfiðir hlutir henda okkur og kannski þurfum við ekki alltaf að fá þau. Við getum einfaldlega treyst því að allt okkar líf er í hendi Guðs. Það er ekkert í þessum heimi sem er þess megnugt að draga úr kærleika Krists til okkar, ekki hið yfirstandandi né hið ókomna, engir kraftar né ógnir. Við þurfum aðeins að treysta Jesú, halda okkur í nærveru hans og láta Orð hans leiðbeina okkur. Þess vegna eru þessi vers mér svo mikils virði. Guð gefi að þau geti einnig orðið þér til uppörvunar og blessunar.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.