Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 14
Verid í Kristi rins og greínln á víiiviáiiiiiin „ÉG ER VÍNVIÐURINN, ÞÉR ERUÐ GREINARNAR." JÓH 15.5. ANDREW MURRAY Það var í líkingunni um vínviðinn, að frelsarinn notaði orðin „verið í mér“. En með þessari skýru og innihaldsríku líkingu lýsir hann því samfélagi við sig er hann býður okkur. Við lærum það af þessari líkingu, í hverju hin sanna eining er fólgin. Það er lifandi samband milli stofns og greina; ekkert ytra samband getur komið í þess stað. Hvort heldur greinin er náttúruleg eða hefur verið grædd á stofninn þá er hún verk skaparans og stofninn veitir henni líf og næringu svo að hún ber ávöxt. Þannig er því einnig farið með trúaðan mann. Samband hans við Drottin er ekki verk mannlegs vilja eða vísdóms heldur verk Guðs. Hann hefur sjálfur komið á hinu nána, fullkomna lífssamfélagi milli hins trúaða og sonar síns með því að „hann hefur sent Anda sonar síns í hjörtu okkar.“ Andi sonar hans skapar lífið í hjörtunum. Og í einum anda og einu lífi, í Kristi, erum við eitt með honum, líkt og greinin og vínviðurinn þar sem sambandið er svo fullkomið, að hvorugt getur án hins verið heldur lifir greinin fyrir tréð og tréð fyrir greinina. Án vínviðarins getur greinin ekki borið ávöxt. Hún á tilverurétt sinn í víngarðinum trénu að þakka, líf sitt og frjósemi. Því segir Drottinn: Án mín getið þér alls ekkert gert“. Trúaður maður getur þóknast Guði aðeins að svo miklu leyti sem kraftur Krists, er ( honum býr, kemur því til vegar. Líf Heilags anda, er sífellt streymir til hans, er eina orsök þess, að hann ber ávexti Guði til dýrðar. Hann lifir sakir Krists og er hvert augnablik upp á hann kominn. Vínviður getur heldur ekki án greina verið. Tré án greina getur ekki borið ávöxt. Náð Krists er svo dásamleg, að hann þarfnast lærisveina sinna, til þess að ná til mannanna með ávexti blessunar sinnar. Hann lætur þá bjóða syndurum vínþrúgur hins himneska Kanaans. Hneykslist ekki! Hann hefur í vísdómi sínum hagað því svo sjálfur. Hann hefur kallað sína endurleystu til þessa mikla heiðurs. Þeir þarfnast hans, eigi ávextir þeirra að vera frá honum. Og hann þarfnast þeirra, til þess að ávextir hans opinberist í lífi þeirra. Hugsaðu um þetta, vinur, þar til sál þín lýtur Guði í tilbeiðslu, sakir vísdóms hans og náðar, er birtist í undursamlegu samfélagi Krists og hans trúuðu. Ailt vínviðinum tilheyrandi er einnig greinanna. Tréð dregur ekki til sín næringu úr jarðveginum sjálfs sín vegna, heldur greinanna, svo að þær fái næga næringu. Eins og stofninn er upphaf greinanna, er hann og þjónn þeirra. Jesús, sem veitt hefur okkur lífið, iagði sjálfan sig í sölurnar fyrir okkur. ,,[É]g hef gefið þeim þá dýrð sem þú gafst mér“ (Jóh 17.22). „Sá sem trúir á mig mun einnig gera þau verk sem ég geri. Og hann mun 14 | bjarmi | apríl 2018 gera meiri verk en þau“ (Jóh 14.12). Oll hans fylling, allur hans vísdómur, er í boði til hjálpar, þér sem trúir. Allt, sem Kristur er á himnum, er hann vegna okkar. Öll umhyggja hans snýst um okkur. Hann er meðalgangari okkar og árnaðarmaður hjá föðurnum. Allt, sem greinarinnar er, heyrir einnig vínviðinum til. Greinin lifir ekki sjálfri sér heldur ber hún ávöxt til þess að opinbert verði, hve gott tréð er. Hún á tilverurétt og hefur tilgang aðeins sem þjónn trésins. Yndislega líking köllunar okkar og fullkominnar vígslu til þjónustu í Guðs ríki. Eins og Kristur helgar sig okkur til heilla algerlega, eins finnum við okkur knúin til að vera algerlega hans. Hvert minnsta verk okkar, hvert augnablik lífs okkar, hver hugsun og hver tilfinning er helgað Jesú, til þess að ávextir okkar séu frá honum og fyrir hann. Þegar okkur skilst hvert gildi vínviðurinn hefur fyrir greinina og hvað

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.