Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 34

Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 34
sem við segjum ætti að vera í samræmi við stöðu okkar og lífsgöngu. Og þó svo við þurfum ekki að segja öllum að lífið sé erfitt, þá þurfum við að segja einhverjum það. Ef við viðurkennum fyrir fólki sem við þekkjum ekki vel að allt sé nú ekki í stakasta lagi leiðir það til samræða sem eru réttar og sannar. Við þurfum ekki að útlista allt í smáatriðum en gætum sagt: „Það eru nokkrar áskoranir sem við glímum við en erum þakklát fyrir tækifærin sem við höfum. En hvernig hefur þú það?“ Þetta er rétt svar, nógu nákvæmt og ekki þörf á að segja mikið meira. Því betur sem við þekkjum fólk þeim mun nánar getum við leyft okkur að fara ímálin. Það er einnig mikilvægt að vera algjörlega opinskár við nokkra einstaklinga og einnig, að sjálfsögðu, við Guð. 3. AÐ BREYTA ÁHERSLUM TIL AÐ RÉTTLÆTA STÖÐUNA Það er undarlegt hversu margar þessara freistinga tengjast því að segja ekki satt. En ef við höfum umgengist presta og forstöðufólk um stund, höfum við trúlega áttað okkur á því að sannleíkurinn er oft fyrstur látinn róa í umhverfi mikilla væntinga. Tökum dæmi um „árangur" af starfinu. Segjum svo að safnaðarstarfið vaxi ekki, hver er tilbúinn að viðurkenna það? Þá er auðvelt að segja, „starfið snýst ekki um breidd, heldur dýpt,“ eða „við erum ekki ein þessara kirkna sem gabba fólk til að fá það til að mæta.“ Eða það er vöxtur en einnig straumur út um bakdyrnar, þá er auðvelt að segja: „Við reynum að ná til fólks en ekki endilega halda í það.“ Hvort heldur sem er, þá höfum við gefið eftir með hugsjónina vegna þess að hlutverk kirkju og kristilegs starfs er að ná til fólks með kærleika Krists og að verða vitni að því að það þroskast í kærleika Krists. Það er ekki nóg að prédika um sannleikann, við þurfum að lifa í honum. 4. AÐ VERA TALSMENN FALSKRAR EININGAR Eitt af einkennum kirkju Nýja testamentisins er eining. En það er auðvelt að vinna að A 34 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.