Bjarmi - 01.10.2018, Blaðsíða 36
M aðuriim §em
prédikaði fyrir
tugmilljómim iiiaiiua
iiiii allan heim
í MINNINGU BILLYS GRAHAM (1918-2018)
RAGNAR GUNNARSSON
Fyrr á þessu ári lést prédikarinn heimsfrægi,
Billy Graham. Hann var á hundraðasta
aldursári og hefði náð því að verða
aldargamall í nóvember. Á langri sögu
tímaritsins Bjarma hefur oft verið sagt frá
starfi Grahams og áhrifum hans um víða
veröld. Hver svo sem skoðun manna er á
áherslum hans og boðskap er engum vafa
undirorpið að hann naut mikillar virðingar
fyrir einfaldan og skýran boðskap, fyrir að
nýta sér nýja tækni óspart til að ná til fleira
fólks, fyrir að hafa kallað ótal fjölda fólks til
Jesú Krists sem síðan hefur farið og borið
honum vitni í daglegu lífi eða þjónustu á
akri Drottins - og þannig má lengi telja.
Graham leit ekki á sig sem merkilegan
mann heldur sem ker sem Drottinn fékk
að nota og bæði óttaðist og forðaðist að
kastljósinu yrði beint að sér, því skyldi beint
að Jesú Kristi. Graham var heilsteyptur,
varfærinn en um leið djarfur og sýndi
öðrum virðingu í auðmýkt.
Á rúmlega sextíu ára starfsferli náði
starf hans til 186 landa. Hann var því án
efa einn merkasti forsvarsmaður kirkju og
kristni á liðinni öld og af sumum talinn vera
mikilvægasti leiðtogi evangelískrar kristni,
eða mótmælenda, í sögunni.
AÐDRAGANDINN AÐ VIÐTÆKU
STARFI OG ÁHRIFUM
Billy Graham fæddist 7. nóvember
árið 1918 í bænum Charlotte í Norður-
Karólínu. Hann var nefndur Wllliam
Franklin Graham Junior, og var skírður
inn í Öldungadeildarkirkjuna. Sextán ára
gamall heyrði hann Mordecai Ham prédika
sem varð til að hann tók ákvörðun um að
trúa á og fylgja Jesú Kristi. Upphaflega
fór hann á samkomur með honum sem
bílstjóri og hafði ekki hugsað sér að sækja
samkomurnar sjálfur. Hann sótti ýmsa
skóla næstu árin, m.a. Bob Jones College,
Florida Bible Institute og Wheaton College.
Hann var með BA-gráðu í guðfræði og aðra
í mannfræði. Árið 1939 hafði hann verið
vígður sem prestur eða forstöðumaður fyrir
Kirkju suðrænna baptista.
f Wheaton kynntist hann Ruth
Bell, dóttur kristniboða á vegum
Öldungadeildakirkjunnar í Kína. Ruth
hafði ekki hugsað sér að giftast, stefnan
var sett á Kína þar sem hún hafði hugsað
sér að eldast sem einhleypur kristniboði.
En hún dróst að krafti og útgeisiun Billys
ásamt auðmýkt og heilindum þegar kom
að samfélaginu við Drottin. Þau gengu í
hjónaband árið 1943, strax að loknu námi.
Ruth sem lést árið 2007, 87 ára að aldri,
var sálufélagi Billys og samferða honum
andlega. Hún gat verið ákveðin og Billy
sagði brandara um það að þegar hann
hefði velt því fyrir sér að bjóða sig fram til
forseta Bandaríkjanna, hafi Ruth sagt að
hún héldi ekki að amerískur almenningur
myndi velja sér forseta sem væri fráskilinn.
36 | bjarmi | apríl 2018