Bjarmi - 01.10.2018, Page 8
„£g er þiiui og þú
méi* uiir*
- ÁST, STRÍÐ OG SIGURHETJAN JESÚS í SÖNGVUM SÉRA FRIÐRIKS
RAGNAR GUNNARSSON
Kveðskapur séra Friðriks Friðrikssonar
er um margt áhugaverður og óhætt að
segja að hann hafi haft margvísleg áhrif.
Ástæða er til að staldra við þann þátt á
þessu ári þegar 150 ár eru liðin frá fæðingu
æskulýðsleiðtogans.
Á námsárum sínum í Kaupmannahöfn
kynntist Friðrik og varð hluti af starfi KFUM
þar sem söngurinn skipti miklu máli. Var það
ekki vegna söngsins eins, heldur ekki síst
vegna boðskaparins og hvatningarinnar
um að fylgja Jesú Kristi heils hugar. Á fyrstu
árum sínum eftir heimkomuna til íslands
vann hann m.a. fyrir sér með því að yrkja
erfiljóð, mörg eflaust týnd og töpuð en
önnur varðveítt.
Haldin hafa verið erindi og skrifuð
lokaritgerð til BA prófs við Háskóla
íslands um sálma séra Friðriks.1 í þessum
greinarstúf verður sjónum beint að tveimur
ólíkum meginþemum, ást og stríði og í
tengslum við stríðið fjallað um Sigurhetjuna
Jesú.
ÁSTIN
Það var trúlega fyrst í unglingastarfi KFUM
sem undirritaður fór að syngja á fundum
söngva með vísun í elsku til Jesú, innilegt
og persónulegt samfélag við hann þar sem
hann er tilbeðinn og sá er syngur gefur sig
honum á vald. Án efa endurspegla þessir
söngvar trú og trúariðkun séra Friðriks
og þá áherslu sem hann lagði á lifandi og
persónulegt samfélag hvers og eins við
Jesú Krist. Eflaust er þetta áhersla í anda
jákvæðrar heittrúarstefnu sem Danska
heimatrúboðið lagði áherslu á en KFUM
í Danmörku starfaði innan eða sem hluti
þess framan af liðinni öld.
Önnur hefð sem séra Friðrik þekkti
eflaust vel var íhugunarhefð miðalda og
þar á meðal áherslan á gagnkvæma ást
Jesú og brúðarinnar. í myndmáli Biblíunnar
er brúðurin söfnuðurinn en einnig er hefð
fyrir því að lesa Ljóðaljóðin með andlegri
skírskotun einstaklings sem lítur á sig sem
unnustuna eða brúðina.
Einn af söngvum séra Friðriks um hið
innilega, gefandi samband er söngurinn
Vinur drengja, sem séra Friðrík orti eftir
danskri þýðingu vinar síns Olferts Ricard
á Ijóði frá Suður-Afríku. f þeim söng er
Jesús ávarpaður í annarri persónu, í
persónulegri tilbeiðslu, eins og í fleiri
söngvum hans. Þannig eru annað og
þriðja erindi:
Ég veit að ég er velkominn,
þú vinur drengja, í faðminn þinn
og legg því veg og vilja minn
á vald þér, Jesús Kristur.
Á ævi minnar árdagsstund
ég allt þér gef, mitt líf, mitt pund,
og gef það strax með Ijúfri lund
þú lífsins herra, Jesús.
Svipuð áhersla er í söngnum Ó þú
sem elskar æsku mína en þannig er
annað erindið:
8 | bjarmi | apríl 2018