Bjarmi - 01.10.2018, Qupperneq 19
að leita einfaldari lífshátta með meiri áherslu á
hugarástand og góð djúp mannleg samskipti
og þá einnig dýpri tilvistarleg samskipti eða
tengsl - þ.e. gæði samskiptanna fremur en
magnið.
Spyrja má hvers vegna fjallað hafi verið um
þessi mál á byggðaráðstefnu. Skýringin er sú,
að bent var á að dreifbýlið hafi visst forskot
þegar þessi umskipti ganga yfir. Tengslin
við náttúruna væru mikilvæg í sambandi við
lífsfyllingu og úti um sveitir væri mikið af fólki
sem teldi þau tengsl og önnur dýrmæt tengsl
sín mikilvægari en magn af vörum og þjónustu
sem auðvelt væri að skapa og kaupa.
HVAÐ GEFUR TILGANG?
En víkjum nánar að því sem skapar varanlega
ánægju og þar með lífsfyllingu. Hvað einkennir
störf eða starfshætti sem vekja og viðhalda
áhuga? Við þessu eru raunar til nokkuð skýr
og áhugaverð svör. í fyrsta lagi má segja að
mjög margvísleg störf geti verið áhugaverð og
veitt lífsfyllingu. Aðalatriðið er að skynja tilgang
í því sem verið er að gera. Og rannsóknir
sýna að þessi tilgangur er á þremur sviðum,
persónulegu, félagslegu og félagssiðferðilegu.
Til þess að fólk finni tilgang í einhvers konar
vinnu eða starfsemi er mikilvægt að þetta feli
eftirfarandi í sér:
1) að stuðla að persónuþroska,
2) að skapa gefandi tengsl og
3) að þjóna markmiði sem er víðtækara/
æðra en viðkomandi einstaklingur.
Það þarf ekki mikið hugmyndaflug til
að sjá, að þessar kröfur falla fullkomlega að
kristinni trú og það er þá ekki aðeins dreifbýlið
sem hefur forskot þegar þetta nýja „hagkerfi"
fær yfirhöndina sem getur gerst nokkuð hratt
miðað við reynsluna af fyrri umskiptum.
Þessi þreföldu viðmið er greinilega einnig
hægt að nota sem tæki þegar verið er að
þróa og meta ýmsa starfsemi og þá ekki síður
gefandi og uppbyggilegt kirkjulegt starf.
Ég hvet svo fólk til að verða sér úti um
þessa fremur aðgengilegu bók eftir Hurst en
láta ekki þessa mola úr henni (og að nokkru úr
eríndi hollenska prófessorsins) duga.
'European Rural Parliament, haldið i Venhorst í Hollandi.
2The Purpose Economy: How your Desire for Impact,
Personal Growth and Community is Changing the World,
útg. Elevate, 2014.
m
o
“Aaron Hurst powerfully sums up in The Purpose Economy the
fundamental changes taking place in the business world.”
- ARIANNA HUFFINGTON. Chair, President and Editor-in-Chief of the Huffington Post Media Group
PURPOSE
BESTSELLER
The Book
That Launched
The Purpose
Revolution
bjarmi | apríl 2018 | 19