Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.10.2018, Qupperneq 26

Bjarmi - 01.10.2018, Qupperneq 26
KIRKJU- KLUKKUR ERU MÖGNUÐ HLJÓÐFÆRI OGINNAN KRISTN- INNAR ERU ÞÆR TÁKN HREINLEIKA Kirkjuklukka Tálknafjarðarkirkju Það var mikil list að steypa klukkur og leyndarmál þess geymdu meistarar þeirrar listgreinar. Elsta handrit sem til er um hvernig eigi að búa til kirkjuklukkur er frá 10. öld og ritað af Theophilusi nokkrum, munki af Benediktsreglu. Á miðöldum fá klukkurnar það útlit sem við þekkjum í dag en framleiðsla þeirra var alfarið í höndum kirkjunnar og vissar munkareglur sérhæfðu sig í henni. Hin sígilda kvikmynd, Andrei Rublev, eftir Andrei Tarkovsky, með sögusvið á óróleikatímum á 15. öld í Rússlandi, hverfist að nokkru leyti um táknræna merkingu og gildi þess að steypa gríðarstóra kirkjuklukku enda ýmist bönnuð eða ritskoðuð í Sovétríkjunum. Embætti hringjara var og ábyrgðarmikið enda lengi vel í höndum klerka. Eins og áður er getið hýstu kirkjuturnar oft margar klukkur þar sem hver um sig hafði ekki einungis visst hlutverk, heldur báru þær nöfn tengd þeim. Það sem er merkilegt við kirkjuklukkur er að grunntónn þeirra hljómar aldrei einn, bara rétt eftir að kólfurinn slæst í belg klukkunnar. Slagið kallar strax fram hljóm þeirra sem samanstendur af grunntón, þríund, fimmund, sexund og sjöund. Hljómurinn getur verið hvort sem í dúr eða moll. Þegar tónlistin á miðöldum — sérstaklega á 13. 26 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.