Bjarmi - 01.10.2018, Síða 29
300 manns. Vegna aukinnar þátttöku
færöum við okkur yfir í Háskólabíó þar sem
ráðstefnan hefur verið undanfarin þrjú ár
og verður enn í ár. Þar er tæknileg aðstaða
afar góð, gluggalaus salur, hljóðkerfið
nýlega endurnýjað, rúmgott anddyri fyrir
veitingar, stærsta sýningartjald landsins
og ókeypis bílastæði í nágrenninu svo
það helsta sé nefnt. Enda fjölgaði og það
hafa verið um 600 manns skráðir síðan við
fluttum okkur.
Hvaö með dagskrána á þessum 9
árum, hefur hún breyst mikið?
Dagskráin er í grunninn sú sama, það
er að efla fólk til forystu og til að beita
sér til góðra verka, hver á sínum stað.
Oft eru mjög þekktir fyrirlesarar eða fólk
sem hefur látið til sín taka, hvort sem er
á kirkjulegum vettvangi eða í atvinnulífinu,
góðgerðarstarfi, stjórnmálum, íþróttum,
listum o.fl. Oft eru það frumkvöðlar og
fólk með stórar hugsjónir sem hafa náð
MIKIÐ ER
LAGT UPP ÚR
GÆÐUM, BÆÐI
HVAÐVARÐAR
INNIHALDOG
FRAMSETNINGU
ALLS EFNIS. VIÐ
TELJUM GLS
BJÓÐAUPPÁ
GOTTEFNISEMÁ
ERINDILANGT ÚT
FYRIR KIRKJUNA.
Ljósmyndir: Inga Hlíðkvist og Kristján Þór Sverrisson
bjarmi | apríl 2018 | 29