Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 6
Um 300 hjúkrunarfræðinga vantar að jafnaði til starfa innan opinbera heilbrigðis­ geirans. Það stafar af starfs­ aðstæðum, mönnunarvið­ miðunum og kjörum að mati formanns félags þeirra. ser@frettabladid.is HE ILBRIGÐISMÁL V iðva r a nd i skortur hefur verið á hjúkrunar­ fræðingum til starfa í heilbrigðis­ þjónustunni hér á landi á síðustu árum. Samkvæmt upplýsingum frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga er ekkert lát á honum, einkum og sér í lagi vegna fráhrindandi starfsum­ hverfis og kjara. „Það segir auðvitað sína sögu – og hún er þungbær – að aldrei í sög­ unni hafa f leiri úr okkar stétt sótt í styrktarsjóði félagsins, en þar er um að ræða það fagfólk okkar sem hefur fullnýtt veikindaréttindi sín og þarf á frekari bata og hvíld að halda,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður stéttarfélags hjúkrunar­ fræðinga, og kveðst meina að álag hafi sjaldan eða aldrei verið meira í faginu – og fyrir vikið flosni alltof margir úr starfi, fleiri hugsanlega en nokkru sinni. Forsvarsmenn Landspítalans hafa að undanförnu viðrað þær áhyggjur sínar að mikinn fjölda hjúkrunar­ fræðinga vanti þar til starfa, ekki síst vegna þess fjölda fagfólks sem er í einangrun af völdum farsóttar­ innar og einnig vegna brottfalls af völdum álagsins sem fylgt hefur auknum fjölda innlagna af hennar völdum, en bara í gærdag greindust um 100 starfsmenn Landspítalans með Covid­19. „Við létum vinna skýrslu um mönnunarvandann fyrir f imm árum og hún sýndi að bæta þyrfti starfsaðstæður og kjör hjúkrunar­ fræðinga, en fjölga einnig nem­ endum í greininni,“ segir Guðbjörg og tekur fram að það síðastnefnda hafi gengið eftir. Nú útskrifist um 75 nýir hjúkr­ unarfræðingar frá Háskólanum á Akureyri á ári og allt að 130 frá Háskóla Íslands. „En vandinn er sá,“ segir Guð­ björg, „að allt að fjórði hver hjúkr­ unarfræðingur sem útskrifast hefur yfirgefið heilbrigðisþjónustuna fimm árum eftir að hafa hlotið nafnbótina.“ Hún segir farsóttina á síðustu tveimur árum hafa ýkt þessa mynd – og kveðst óttast mjög að starfsfólk spítalanna verði látið hlaupa á sama hraða þegar hún verður að baki. „Viðvarandi vandi felst í mönn­ unarviðmiðum innan sjúkrahús­ anna, en hjúkrunarfræðingar eru að ganga í langtum fleiri störf en þeir eiga að sinna af því að það er verið að spara og hagræða á meðal annarra stétta innan veggja vinnu­ staðarins,“ segir Guðbjörg. Um 3.600 hjúkrunarfræðingar eru starfandi í heilbrigðiskerfinu, en alla jafna vantar tíu prósent af þeim fjölda til starfa, rösklega 300 manns. „Það er akkúrat sá fjöldi sem meldaði sig í bakvarðasveitina þegar neyðarkallið barst frá Land­ spítala þegar veiran var okkur hvað erfiðust,“ segir Guðbjörg og bendir á þann stóra vanda heilbrigðis­ kerfisins að alla jafna sé jöfn og mikil spurn eftir starfssystkinum hennar í störfum utan opinberu þjónustunnar. „Og ef kjörin, álagið og starfsað­ stæður innan heilbrigðiskerfisins eru fólki ósamboðin hugsar það auðvitað sem svo að um gnótt af öðrum starfstækifærum sé að ræða,“ segir Guðbjörg. n Vandinn er sá að allt að fjórði hver hjúkrunar- fræðingur sem útskrif- ast hefur yfirgefið heilbrigðisþjónustuna fimm árum eftir að hafa hlotið nafnbótina. Guðbjörg Páls- dóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga Hjúkrunarfræðingar sækja í sjúkrasjóði sem aldrei fyrr Sjúklingur með Covid-19 fluttur innan Landspítalans á fyrri stigum kóróna veiru- faraldursins. MYND/ÞÞ/LSH adalheidur@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Innf lutningur á skotvopnum hefur dregist saman á undanförnum tveimur árum, samanborið við síðustu þrjú ár þar á undan. Þetta kemur fram í svari embættis ríkislögreglustjóra við fyrirspurn Fréttablaðsins. Í svarinu kemur þó fram að skráður inn­ flutningur svokallaðra safnvopna hafi aukist í kjölfar breytingar á túlkun skilyrða fyrir innflutningi slíkra safnvopna sem varð árið 2020. Innflutningur á veiði­ og íþrótta­ skotvopnum hefur haldist í hendur við fjölgun leyfishafa og úreldingu eldri vopna. Fréttablaðið spurðist sérstak­ lega fyrir um vísbendingar sem valdi lögreglu áhyggjum af aukn­ um vopnaburði. „Við sjáum þessa breytingu aðallega í fjölda útkalla sem tengjast hnífum og skotvopn­ um,“ segir í svarinu. Fram kemur að töluverðar sveif lur séu í fjölda haldlagðra skotvopna en það skýrist einkum af einstaka málum þar sem mikið magn var haldlagt. „Þá sjáum við einhverjar vís­ bendingar um fjölda stolinna skot­ vopna en vera má að sú þróun sé tilviljanakennd en slík mál eru afar fá á hverju ári eða milli 10 og 20. Almennt skila þessi vopn sér til baka í kjölfar haldlagninga. Þá sjáum við í afar fáum tilvikum óskráð vopn í umferð,“ segir í svari ríkislögreglustjóra. n Samdráttur í innflutningi skotvopna Ekki hefur orðið aukning á innflutningi skotvopna og sveiflur eru í haldlagningu skotvopna og þjófnaði á skot- vopnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir styrkumsóknum Þýðingastyrkir eru veittir til að þýða á íslensku mikilvæg verk úr samtímanum, erlendar fagur­ bókmenntir og fræðirit. Einnig myndríkar bækur fyrir börn og ungmenni. Barna- og ungmennabóka– sjóðurinn Auður styrkir útgáfu vandaðra bóka sem skrifaðar eru á íslensku, fyrir yngri lesendur. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2022 Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á www.islit.is eru veittir til útgáfu og miðlunar íslenskra ritverka, þar sem kappkostað er að styrkja verk sem hafa menningarlegt og þekkingar fræðilegt gildi. Útgáfustyrkir Á grundvelli 11. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings, nr. 8/2021 auglýsir kjörstjórn þjóðkirkjunnar eftir framboðum til kirkjuþings. Á kirkjuþingi eiga sæti 29 þjóðkirkjumenn kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna, þ.e. presta og djákna og 17 leikmenn. Um kirkjuþing sjá nánar: www.kirkjan.is/kirkjuþing Kjörgengur til kirkjuþings er: a. hver vígður maður sem á kosningarrétt skv. 3. gr. starfsreglna nr. 8/2021, b. hver leikmaður sem hefur hlotið skírn í nafni heilagrar þrenningar, skráður er í íslensku þjóðkirkjuna, og hefur náð 18 ára aldri og hefur meðmæli sinnar sóknarnefndar. Hver sá sem fullnægir þessum skilyrðum skal og hafa óflekkað mannorð. sbr. nánar 2.-3. mgr. 7. gr. reglnanna. Kjörgengisskilyrði skulu vera uppfyllt 1. apríl 2022. Þeir sem hyggjast bjóða sig fram til kirkjuþings skulu hafa tilkynnt kjörstjórn framboð sitt skriflega, eigi síðar en 15. mars 2022. Tilkynningu um framboð skal senda til biskupsstofu, Katrínartúni 4, Reykjavík, eða í tölvupósti á netfangið kirkjan@kirkjan.is. Æskilegt er að ljósmynd fylgi. Nánari upplýsingar veitir: Ragnhildur Benediktsdóttir, starfsmaður kjörstjórnar, ragnhildurbe@kirkjan.is. Kjörstjórn getur óskað eftir því að sá sem hyggst bjóða sig fram framvísi staðfest- ingu um kjörgengi eða gefi kjörstjórn heimild til að afla gagna er sýni kjörgengi hans. Ef ekki berast nægilega mörg framboð, sbr. 11. gr. starfsreglnanna, skal kjörstjórn svo fljótt sem auðið er gera uppstillingarnefnd kirkjunnar viðvart. Skal uppstillingarnefnd tilnefna þá frambjóðendur sem á vantar. Skal sú tilnefning hafa borist kjörstjórn eigi síðar en 31. mars nk., ásamt samþykki hlutaðeigandi. Kosningarnar verða rafrænar og er miðað við að þær standi frá kl. 12:00 fimmtudaginn 12. maí 2022 til kl. 12:00 þriðjudaginn 17. maí sama ár. Kosningarnar verða nánar auglýstar síðar. Fyrir hönd kjörstjórnar Anna M. Karlsdóttir, formaður Auglýsing um frAmboð til kirkjuþings 6 Fréttir 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.