Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 12
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
Ef aðeins
er horft
yfir sviðið
innan
eigin álfu
er aftur-
haldið að
verða æði
fyrirferðar-
mikið.
Og við þá
forkæstu
íhalds-
semi bætist
krafan um
einsleitni
þjóða og
menning-
arhyggju af
þröngsýn-
ustu sort.
Bjarni, líkt
og Boris,
leyfir sér
að „eitra
brunninn“.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Ef bresk stjórnmál væru pólitískur spennu
tryllir á Netflix væru allir hættir að horfa, því
atburðarásin þætti svo fjarstæðukennd. Boris
Johnson, forsætisráðherra Bretlands, var ekki
fyrr fluttur inn í Downingstræti en í stefndi
að honum yrði gert að taka saman föggur
sínar. Ástæðan var veggfóður.
Þegar Boris og kona hans létu gera upp
nýjar vistarverur sínar var ekkert til sparað.
Hver rúlla af gylltu veggfóðrinu kostaði
150.000 krónur. En Boris var blankur. Hann
sannfærði styrktaraðila Íhaldsflokksins um
að greiða fyrir sig reikninginn. Boris stóð af
sér kröfur um afsögn en Íhaldsflokkurinn
fékk sekt fyrir að brjóta reglur um fjármál
stjórnmálaflokka.
Límið undir veggfóðrinu var varla þornað
þegar næsti skandall skók forsætisráðuneyt
ið. Þingmaður Íhaldsflokksins var fundinn
sekur um að ganga erinda tveggja fyrirtækja
á þingi gegn greiðslum. Til að koma í veg fyrir
að þingmanninum yrði vikið tímabundið úr
sæti gerði Boris sig líklegan til að breyta regl
unum. Fjöldi þingmanna flokksins neitaði
að greiða atkvæði með tillögu Borisar sem
neyddist til að draga hana til baka.
Ballið var þó rétt að byrja. Bókstaflega.
Næst var Boris sakaður um brot á sótt
varnareglum. Í ljós kom að á meðan breskur
almenningur bjó við strangar samkomutak
markanir vegna Covid voru stíf veisluhöld í
Downingstræti.
En ekkert fyrrnefndra hneykslismála
var jafnnálægt því að fella Boris og það sem
gerðist næst.
Hinn 31. janúar síðastliðinn stóð Boris
Johnson í pontu á þingi. Var honum ætlað að
svara fyrir fyrrnefnd samkvæmi í ráðuneyti
sínu. En í stað þess að taka fyrir efnisatriði
málsins ákvað Boris að beina athyglinni
annað.
Í ræðu viðraði hann samsæriskenningu,
sem flakkað hafði milli hægri öfgamanna í
myrkum skúmaskotum internetsins, um að
leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Keir Starmer,
bæri ábyrgð á að látinn skemmtikraftur og
barnaníðingur hefði ekki verið sóttur til saka.
„Við erum betri en þetta,“ sagði þing
maður Íhaldsflokksins, einn af mörgum
flokksfélögum forsætisráðherra sem kölluðu
eftir tafarlausri afsögn hans. Fórnarlömb
barnaníðingsins sökuðu Boris um að hafa
þjáningar þeirra í flimtingum. Samstarfsfólk
uppnefndi hann „ódýra útgáfu af Trump“.
Keir Starmer sagði Boris „eitra hinn lýðræðis
lega brunn“ og kvað það geta reynst hættu
legt að „apa upp samsæriskenningar fasista í
von um örfá pólitísk stig“.
Hann reyndist sannspár. Viku síðar veittist
hópur manna að Starmer með ofbeldi og
sakaði hann um að verja barnaníðinga. Tals
maður Verkamannaflokksins sagði um Boris:
Leggist maður með hundum fær maður flær.
Þjófnaður og banatilræði
Í vikunni boðaði lögreglan á Akureyri fjóra
blaðamenn til yfirheyrslu vegna umfjöllunar
þeirra um „skæruliðadeild“ Samherja. Margir
gerðu athugasemd við tilburði lögreglunnar
og lýstu yfir áhyggjum af frjálsri fjölmiðlun í
landinu.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tók
annan pól í hæðina. Hann gagnrýndi frétta
flutning af málinu og sagði að eðlilegra væri
að fjölmiðlar beindu „sjón um sín um að því
hvað hinn grunaði kunni að hafa unnið til
saka“.
Samsæriskenning gengur um hið myrka
skúmaskot internetsins Moggabloggið,
þar sem ýjað er að því að blaðamenn hafi
stundað þjófnað og sýnt manni banatilræði
við upplýsingaöflun um Samherja.
Aðeins eitt er Trumpískara en að kasta
rýrð á fjölmiðla með því að gefa í skyn að
þeir flytji falsfréttir: Að beina athyglinni frá
kjarna málsins með því að viðra fjarstæðu
kenndar samsæriskenningar. Bjarni, líkt og
Boris, leyfir sér að „eitra brunninn“. En Bjarna
væri hollt að hafa hugfast að leggist maður
með hundum fær maður flær. n
Bjarni og flærnar
Aðalfundur
Sláturfélags Suðurlands svf.
Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn á
Goðalandi, Fljótshlíð, föstudaginn 18. mars 2022 og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 24. gr. samþykkta félagsins.
2. Önnur mál.
Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að
vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum
fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar og varastjórnar skulu hafa borist
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir
aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins.
Reykjavík, 17. febrúar 2022.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
Jafnrétti felst í því að allir hafi góða mögu
leika á að komast áfram í lífinu án þess að
samfélagið leggi stein í götu þeirra.
Og sannindin þau arna þykja okkur svo
sjálfsögð að sjaldnast veltum við þeim
fyrir okkur. Við ætlum að samfélagið sé
sanngjarnt og gerum jafnframt ráð fyrir
því að allir séu meira og minna jafnir fyrir þeim
tækifærum sem þeim bjóðast hverju sinni. En
svo er ekki.
Vandi þroskaðra samfélaga sem vilja kenna
sig við frjálsræði og lýðræði, er að standa vörð
um áunnin réttindi. Að þeim er sótt á öllum
tímum, þó það sé raunar með misjafnlega
lymskulegum hætti, allt frá óljósum undirróðri
til opinberra alhæfinga.
Og vandinn er raunar miklu víðtækari en
svo að hann sé bundinn við torfuna undir
fótum okkar. Hann blasir við okkur allt í
kring, enda er víðast hvar sótt að frelsinu og
lýðræðinu með margvíslegum hætti af æ meiri
þunga.
Ef aðeins er horft yfir sviðið innan eigin álfu
er afturhaldið að verða æði fyrirferðarmikið.
Og við þá forkæstu íhaldssemi bætist krafan
um einsleitni þjóða og menningarhyggju af
þröngsýnustu sort. Svo er bálið kynt með eldi
óttans og öngþveitisfullum yfirlýsingum um
að alþjóðahyggja og samstarf þjóðanna, þvert
á landamæri og álfur, mái burtu sérstöðuna og
arfleifðina.
Fyrir vikið vaða gamaldags og karllægar
kreddur uppi úti um alla álfuna – og nægir þar
að nefna helstu valdhafana í Póllandi, Rúss
landi, Tyrklandi og Ungverjalandi, þar sem
andstæðingar lýðréttinda berja sér á brjóst í
ræðu og riti.
Í æ fleiri þjóðlöndum álfunnar daðra stórir
og stálpaðir stjórnmálaflokkar við hræðslu
áróður af öllu tagi, misjafnlega útþembdir af
kokhraustri þjóðernishyggju og einangrunar
ást. Og óvinir þessara afla eru frelsi og jafnrétti,
einmitt þau gildi að allir hafi góða möguleika
á að komast áfram í lífinu án utanaðkomandi
hindrana.
Það er í þessu kófi sem kvenfrelsi og réttindi
hinsegin fólks eru fótum troðin. Það er í þessu
kófi sem hagur innflytjenda og alls vinnuafls
ins frá fjarlægum löndum skiptir litlu sem engu
máli. Það er í þessu kófi sem öflugir og ritstýrð
ir fjölmiðlar fá ekki að fletta ofan af spillingu
og ríkisreknum þjófnaði. Og það er í þessu kófi
sem miskunnarlaus misskiptingin þrífst, allur
ójöfnuðurinn.
Í orði höfum við óbeit á helsi og óréttlæti. Í
verki virðist okkur standa á sama. n
Jafnréttisógnin
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR