Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 16

Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 16
29,1 LeBron er með 29,1 stig að meðaltali í leik í vetur sem er hæsti meðalstigafjöldi hans í ellefu ár. 0 Engum leikmanni hefur tekist að gefa tíu þúsund stoðsendingar og taka tíu þúsund frá- köst í NBA-deildinni en LeBron nálgast það. 2 Það eru tvö ár í að sonur LeBron, Bronny James, geti tekið þátt í nýliðavali NBA-deild- arinnar. Sjálfur hefur LeBron minnst á að það sé draumur hans og markmið að spila með elsta syni sínum. 10 LeBron er meðal tíu efstu í sögu NBA-deild- arinnar þegar kemur að stigum, stoðsend- ingum, stolnum og töpuðum boltum. 6 LeBron er á nítjánda tímabili sínu í deild- inni. Aðeins sex leik- menn í sögunni hafa leikið fleiri tímabil. 1 LeBron á eitt ár eftir af samningi sínum við Lakers sem sjötti launahæsti leikmaður deildarinnar. Þrátt fyrir að vera kominn langt á fertugsaldurinn er ekkert að hægjast á metnaði LeBron James. Hinn 37 ára gamli James átti stóran þátt í að setja saman stórstjörnulið Lakers í sumar sem var komið af sínu léttasta skeiði og hefur tilraunin ekki gengið sem skyldi. Á sama tíma heldur hann áfram að ryðja öðrum úr vegi í metabókum NBA- deildarinnar. kristinnpall@frettabladid.is NBA Þó að LeBron James sé að styrkja stöðu sína í sögubókum NBA-deildarinnar með því að nálgast stigamet deildarinnar og að spila f leiri mínútur en undanfarin ár, gengur illa hjá liði Los Angeles Lakers sem var smíðað til að sækja átjánda meistaratitil félagsins. Líkt og undanfarin ár tók skrifstofa Lakers ákveðna áhættu í von um að búa til meistaralið í kringum LeBron James á lokametrum LeBron í deildinni en á leiðinni inn í stjörnuvikuna er Lakers með nei- kvætt sigurhlutfall. Fyrr í vikunni komst LeBron á toppinn sem stigahæsti leikmaður í sögunni þegar stigafjöldi úr úrslita- keppninni og tímabilinu er lagður saman. Fyrir er hann í þriðja sæti yfir stigahæstu leikmenn deildar- keppninnar frá upphafi á eftir Kareem Abdul-Jabbar og Karl Mal- one. LeBron ætti að ná Malone á næstu vikum enda aðeins 369 stig í Malone en stigin eru 1.828 í Kareem á toppnum þar. Um leið er von á því að LeBron verði sá fyrsti í sögunni til að ná meira en þrjátíu þúsund stigum, tíu þúsund fráköstum og tíu þúsund stoðsendingum. Til þess að ná þeim áfanga þarf LeBron aðeins að gefa 38 stoðsendingar og er því ansi lík- legt að hann verði einn á báti innan næstu vikna. „Hann var náttúrulega orðinn þessi stórstjarna áður en hann kom inn í deildina, á forsíðum tíma- rita í Bandaríkjunum og hann er kominn yfir tuttugu ár sem stór- stjarna. Hann hefur þessa ótrúlegu íþróttalegu hæfileika, hávaxinn en hreyfanlegur og hefur allan þennan líkamlega styrk. Svo ofan á það bætir þú við körfuboltalegu getunni sem hefur tekið framförum með hverju ári sem líður. Svo er það sem liðsfélagar og andstæðingar hans tala um, að hausinn hans sé hans sterkasta vopn. Hann virðist vera með límheila og þekkir oft kerfi andstæðinganna betur en þeir,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari karlaliðs Vals, spurður út í þessi tæpu tvo áratugi sem LeBron hefur verið í deildinni. „Hann er búinn að skora öll þessi stig, þrátt fyrir að hans sterkasti eiginleiki sé ekki endilega að skora heldur að stýra sóknarleiknum eins og sést á undanförnum árum þar sem hann er oft leikstjórnandi.“ Finnur tekur undir að það sé skiljanlegt að minna fari fyrir varn- arleiknum með hækkandi aldri. „Kominn á þennan aldur, í þess- ari deild með alla þessa leiki á bakinu, þá er erfitt að setja alla orkuna í vörnina í hverjum einasta leik. Hann er og hefur alltaf verið í sviðsljósinu og það er gert mikið úr öllum mistökum hans, þótt hann hafi verið þessi fyrirmyndarein- staklingur utan vallar sem gefur vel af sér, fjölskyldumaður sem rekur skóla í heimabæ sínum.“ ■ Heldur áfram að skrifa eigin kafla í sögubækurnar 16 Íþróttir 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR ALLT FYRIR SKÍÐAFÓLK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.