Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 32

Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 32
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.  „Til marks um það höfum við þurft að fjölga sölubásum hjá okkur hérna í húsinu. Þegar við opnuðum skömmu fyrir jólin 2020 voru þeir 158 en nú eru þeir 166 talsins. Við erum með stóran hóp af fastakúnn- um, bæði kaupendur og seljendur, sem eru afskaplega ánægðir með þetta framtak. Svoleiðis að það er óhætt að segja að viðtökurnar hafi verið mjög góðar,“ segir Vilborg, einn eigenda Verzlanahallarinnar við Laugaveg 26. Það er engum ofsögum sagt að Verzlanahöllin sé básaleiga með endurnýtingu að leiðarljósi því þar eru ekki aðeins seld vel með farin notuð föt á fullorðna og heimilisvörur, heldur er nánast allt innanstokks endurnýtt, allt frá gömlu afgreiðsluborði upp í inn- kaupapoka og merkispjöld. „Þau eru klippt út úr pappa sem fellur til á heimilum. Sumir viðskipta- vinir hafa jafnvel klippt niður fyrir okkur,“ lýsir Vilborg. „Við það má bæta að á 8. ára- tugnum voru ellefu búðir reknar í húsinu sem var þá líka kallað Verzlanahöllin. Þannig að við endurnýttum meira að segja gamla nafnið þegar við opnuðum,“ segir hún og hlær. Draumur að vinna með dætrunum Verzlanahöllin eru í eigu Vilborgar og dætra hennar, Þórdísar Vil- borgar Þórhallsdóttur og Sveindís- ar Önju V. Þórhallsdóttur, en engin þeirra hafði reynslu af rekstri. Spurð hvað hafi orðið til þess að mæðgurnar ákváðu að stofna saman fyrirtæki, segir Vilborg að þær hafi verið búnar að hugleiða í dálítinn tíma að gera eitthvað skemmtilegt sem þær gætu sett krafta sína og vit í. „Þar sem við höfum allar áhuga á umhverfis- vernd og endurnýtingu fannst okkur tilvalið að að sameina áhugamálin í þennan rekstur.“ Vilborg segist ekki sjá eftir því enda sé draumur að fá að starfa með dætrunum. „Auðvitað getur verið viss áskorun að vinna svona náið með fjölskyldunni,“ játar hún kímin, „en samstarfið gengur vel og þetta er gefandi og skemmtilegt. Við erum í raun af þremur kyn- slóðum, þar sem tólf ára aldurs- munur er á systrunum og svo erum við allar með ólíkan bakgrunn: Þórdís er viðskiptafræðingur, kennari og MPM, Sveindís er sál- fræðingur og íþróttasálfræðingur og sjálf er ég búin að sinna skrif- stofustörfum í áratugi. Við komum því að borðinu með mismunandi þekkingu og reynslu og það nýtist vel í rekstrinum.“ Hún bætir við að ekki skemmi fyrir að stórfjölskyldan standi fast við bakið á sér og dætrunum. „Fjöl- skyldufaðirinn hannaði básana og svo smíðaði fjölskyldan þá á vöktum í fyrstu Covid-bylgjunni. Yngsta kynslóðin hefur síðan búið til TikTok-video sem nýtast til að leiðbeina básaleigjendum. Þann- ig að fjölskyldan er alltaf boðin og búin að hjálpa til og aðstoða á álagstímum við þrif, tiltekt og afgreiðslu.“ „Fólk hefur rosalega gaman af þessu“ Að sögn Vilborgar finnst fólki nota- leg tilhugsun að eiga í viðskiptum við fjölskyldufyrirtæki. „Fólk er hrifið af því að fjölskylda skuli reka fyrirtæki og leggi sig fram um að vinna vel saman og veita persónu- lega og góða þjónustu í afslöppuðu andrúmslofti,“ lýsir hún. Enda séu þær mæðgurnar sífellt að leita leiða til að koma til móts við þarfir við- skiptavina. Þannig hafi til dæmis sérstakri aðstöðu verið komið upp fyrir seljendur, svokölluðu uppsetningasvæði, þar sem er allt til alls: slár, herðatré, þjófavarnir, merkibyssur, miðar og fleira. Þá séu hundar leyfðir í búðinni, enda mæðgurnar annálaðir dýravinir og eru bæði Kattaskrain.com og Dýrahjálp Íslands með bása í boði verslunarinnar. Nýjasta nýjungin er svo vísinda- ferðir sem njóta mikilla vinsælda. „Við bjóðum stærri hópum að kíkja í heimsókn eftir lokun, þar sem við kynnum hugmynda- fræðina sem liggur til grundvallar rekstrinum, bjóðum upp á léttar veitingar og höfum kassann opinn ef einhver vill versla. Við erum að fá heilu nemendafélögin, vinnu- staðahópa og jafnvel saumaklúbba hingað til okkar. Fólk hefur rosa- lega gaman af þessu,“ segir Vilborg og brosir. Hún tekur fram að starfsemi Verzlanahallarinnar endurspegli einlægan áhuga eigendanna á að vilja stuðla að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, einkum því tólfta, sem snúist um ábyrga neyslu og framleiðslu. „Í raun má segja að Verzlana- höllin sé okkar innlegg í að stuðla að meiri nýtingu og minni sóun. Hér gefst fólki færi á að selja hlutina sína, koma þeim aftur í hringrásina og fá smá pening sem er umhverfisvænt og gott.“ Vilborg hvetur alla áhugasama til að kíkja á heimasíðu Verzlana- hallarinnar, verzlanahollin.is, og fylgjast með henni á samfélags- miðlum. Þar sé að finna alls konar fróðleik og upplýsingar sem geti komið að góðu gagni. n „Við auglýsum ekki mikið. Ánægðir viðskiptavinir og gott orðspor eru okkar helsta auglýsing,“ segir Vilborg Norðdahl. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Í Verzlanahöllinni má finna mikið úrval af fallegum og litríkum kjólum. Húsnæði Verzl- anahallarinnar er rúmgott og vel fer um við- skiptavini. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Perlur í ólíkum litum gefa til kynna stærðir á fatnaði. Að sögn Vilborgar er Verzlanahöllin í 500 fermetra húsnæði, á besta stað í bænum, Laugavegi 26, en gengið er inn í húsnæðið Grettisgötumegin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Fólk er hrifið af því að fjölskylda skuli reka fyrirtæki og leggi sig fram um að vinna vel saman og veita persónu- lega og góða þjónustu í afslöppuðu andrúms- lofti. Vilborg Norðdahl 2 kynningarblað 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURNYTJAHLUTIR OG ENDURVINNSLA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.