Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 40
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Ungbarnaleikskólinn við Bríetartún
óskar eftir deildarstjóra
Deildarstjórar óskast til starfa í nýjum ungbarnaleikskóla
staðsettur við Bríetartún 11.
Um er að ræða 4 deilda leikskóla með 60 börnum á aldrinum 12
mánaða til þriggja ára.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt og skapandi
fólk sem hefur áhuga og löngun til að koma að og þróa nýjan
ungbarnaleikskóla í nýju húsnæði.
Saman munum við vinna að því að skapa börnunum námsum-
hverfi þar sem hverjum og einum gefst tækifæri til að leika og
njóta, en um leið leggja áherslu á umönnun, góð samskipti og
málþroska.
Fríðindi í starfi:
• Forgangur í leikskóla
• Afsláttur á dvalargjaldi
• Vinnustytting
• Heilsustyrkur
• Sundkort
• Menningarkort
• Samgöngustyrkur
Verkefni og ábyrgð:
• Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt
starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
• Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram
fer á deildinni
• Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
• Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
• Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Hæfniskröfur í starfið:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem kennari.
• Reynsla af starfi í leikskóla.
• Reynsla af stjórnun er æskileg.
• Góð íslenskukunnátta æskileg.
• Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf.
• Góð tölvukunnátta.
Starfið er laust frá 15. mars n.k., eða eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarféla-
ga og KÍ vegna Félags leikskólakennara.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu
Reykjavíkurborgar, Deildarstjóri - Bríetartún | (reykjavik.is)
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Anna Ben. Blöndal, leikskólastjóri í síma 7734454 og tölvupóstur
anna.blondal@rvkskolar.is
Akademísk staða
í verkefnastjórnun
Háskólinn á Bifröst auglýsir lausa til umsóknar akademíska stöðu í verkefnastjórnun við viðskiptadeild
háskólans. Við leitum að einstaklingi með metnað og áhuga á að þróa kennslu og rannsóknir á
fræðasviðinu við háskólann. Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar
og hefur verið leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár.
Starfsstöðvar skólans eru á Bifröst og í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
•Umsjón með námsbraut í verkefnastjórnun
•Kennsla í verkefnastjórnun á grunn- og meistastigi
•Leiðbeining í lokaritgerðum
•Rannsóknir og fræðastörf
•Þátttaka í störfum deildar
Menntunar- og hæfniskröfur:
•Meistarapróf á fræðasviðinu, doktorspróf er kostur
•Kennslureynsla á háskólastigi
•Reynsla af uppbyggingu og mótun námskeiða/námsbrauta er kostur
•Góð reynsla og tengsl við atvinnulíf
•Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
•Leiðtoga- og skipulagsfærni
•Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
Tekið verður tillit til þarfa viðskiptadeildar og hversu vel umsækjendur falla að þeim. Möguleiki er á
hlutastarfi.
Með umsókn fylgi ferilskrá yfir nám, störf, kennslu og rannsóknir, afrit af prófskírteinum og stutt
kynningabréf. Í kynningarbréfi komi fram áhugasvið, sýn, áherslur og nálgun umsækjanda í kennslu og í
rannsóknum. Sótt er um störfið á alfred.is
Nánari upplýsingar veita Hulda Dóra Styrmisdóttir, mannauðsstjóri (mannaudsstjori@bifrost.is), og
Stefan Wendt, prófessor og deildarforseti viðskiptadeildar (deildarforsetivd@bifrost.is).
Miðað er við ráðningu frá 1.7.2022. Starfsheiti verður ákvarðað út frá hæfismati.
Háskólinn á Bifröst vinnur út frá jafnréttisáætlun og hvetur alla óháð kyni og aldri til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2022. bifrost.is
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Við ráðum
Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar
sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.