Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 41
STARFSFÓLK Í FRAMLEIÐSLU
STÖRF Í ÞJÓNUSTUDEILD
AFLEYSING Í REIKNINGSHALDI
STARFSFÓLK Í ÖLSUÐU OG BJÓRFRAMLEIÐSLU
ÁFYLLING Á SJÁLFSALA
STÖRF Í VÖRUHÚSI
STÖRF Í DREIFINGU/MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRI
HVAR ÆTLAR ÞÚ AÐ VINNA Í SUMAR?
Við erum að leita að öflugu og jákvæðu fólki í fjölbreytt og spennandi störf í sumar.
Nánari upplýsingar um störfin og hæfniskröfur eru að finna á heimasíðu Ölgerðarinnar: olgerdin.umsokn.is
Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri, geti hafið störf í byrjun maí og unnið fram í miðjan ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars nk.
Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sínu sviði.
Ölgerðin framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og
sérvöru af ýmsum toga.
Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur af kraftmiklu,
skapandi og framsæknu starfsfólki. Við stefnum að
því að aldrei verði hærra hlutfall en 60% af einu kyni í
stjórnunarstöðum.
Við erum stöðugt að vinna að umbótum í rekstri og nýtum
stafræna tækni til að skapa okkur samkeppnisforskot.
Við viljum vaxa með hagkvæmum og sjálfbærum hætti.
Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná
fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr
en aðrir.
Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar,
neytendur, starfsfólk og eigendur.
Fjögur gildi marka
hegðun okkar og
ákvarðanir: Jákvæðni,
áreiðanleiki,
hagkvæmni og
framsækni. Mat við
ráðningar styðjast
við þessi grunngildi
Ölgerðarinnar.