Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 44
Viltu leggja þitt af mörkum í stafrænni vegferð
Reykjavíkurborgar?
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að stafrænum hönnuði til þess að taka þátt í því
markmiði að gera þjónustur borgarinnar aðgengilegar og auðveldar í notkun fyrir íbúa
hennar. Starfið er tímabundið til tveggja ára með möguleika á fastráðningu.
Borgin hefur blásið til sóknar til að hraða stafrænum umbreytingum. Sett hafa verið af
stað fjölmörg verkefni í endurhönnun stafrænnar þjónustu. Mjög mikill metnaður er
innan sviða borgarinnar og fjölmörg spennandi tækifæri framundan.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Betrumbætur og áframhaldandi þróun á hönnunarkerfi (e. design system)
Reykjavíkurborgar
• Hanna notendaupplifun (UX) á stafrænum vörum samkvæmt hönnunarstaðli
Reykjavíkurborgar
• Þátttaka í stafrænum umbreytingarteymum
• Innleiðing gæða- og þjónustumælinga vegna þjónustuveitingar
• Miðlun upplýsinga
• Vinna náið með vörustjóra, hönnuðum og forriturum að endurbótum
hönnunarkerfis
• Þátttaka í ýmsu samstarfi innan og utan borgarinnar
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Minnst þriggja ára reynsla af stafrænni vöruþróun sem hönnuður
• Þekking og reynsla af stafrænum hönnunartólum á borð við Figma, Sketch o.fl.
Hönnunarkerfi Reykjavíkurborgar er í Figma
• Þekking og reynsla af Adobe hönnunarsvítunni
• Þekking og reynsla af hreyfihönnun og viðmótskvikun (e. UI animation) er kostur
• Þekking á aðferðafræði þjónustuhönnunar er kostur
• Áhugi á því að gera stafræna þjónustu aðgengilega og notendavæna
• Framúrskarandi hæfni í teymisvinnu og mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Nákvæmni og gott auga fyrir smáatriðum
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2022. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Valgerður Pétursdóttir, hönnunarstjóri, í gegnum netfangið vala.p@reykjavik.is
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
1. Starfsferilsskrá
2. Kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga
og hæfni í starfið
3. Portfólíó sem viðhengi eða aðgangur á stafrænu formi
www.reykjavik.is/storf
Stafrænn hönnuður
Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið auglýsir laust
embætti forstöðumanns úrskurðarnefndar umhverfis-
og auðlindamála.
Forstöðumaður stýrir starfi úrskurðanefndarinnar og ber
ábyrgð á fjárhag hennar og daglegum rekstri. Hann er jafn-
framt formaður nefndarinnar. Forstöðumaður er í forsvari
fyrir nefndina út á við, ákvarðar hvernig úrskurðarnefndin er
skipuð í hverju máli og ræður annað starfsfólk nefndarinnar.
Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra skipar forstöðumann
úrskurðarnefndarinnar til fimm ára í senn.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála starfar samkvæmt
lögum nr. 130/2011 og hefur það hlutverk að úrskurða í kæru-
málum vegna ákvarðana stjórnvalda og ágreiningsmálum vegna
annarra úrlausnaratriða á sviði umhverfis- og auðlindamála svo
sem á sviði mengunar- og hollustuháttamála og mats á um-
hverfisáhrifum. Úrskurðarnefndin er sjálfstæð í störfum sínum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf eða grunnnám ásamt meistaraprófi í lögum
• Almenn hæfisskilyrði héraðsdómara, sbr. 29. gr. laga nr.
50/2016 um dómstóla
• Reynsla af stjórnun
• Leiðtogahæfileikar og hæfni til að leiða fólk til samvinnu
og árangurs
• Öguð og skilvirk vinnubrögð
• Hæfni til að vinna undir álagi
• Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti
Umsóknafrestur er til og með 7. mars 2022.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Starfatorgi — starfatorg.is
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni við-
komandi í starfið rökstudd. Þriggja manna valnefnd skipuð af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra metur hæfni og hæfi umsækjenda
og skilar greinargerð til ráðherra.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri í umhverfis-, orku-
og loftslagsráðuneytinu (sigridur.arnardottir@urn.is).
Forstöðumaður
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála