Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 45

Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 45
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM VINNUFÉLÖGUM Malbikstöðin er leiðandi í framleiðslu malbiks á Íslandi og framleiðir hráefni til malbiksframkvæmda með áherslu á gæði, þjónustu og umhverfissjónarmið. Umhverfissjónarmið fyrirtækisins miðast að því að draga enn frekar úr kolefnislosun en tækjabúnaður gerir fyrirtækinu kleift að framleiða malbik með endurunnu malbiki. Malbikstöðin leggur metnað í að skapa faglegt og hvetjandi vinnuumhverfi fyrir starfsfólk sitt sem byggist á virðingu, metnaði og liðsheild. Reynslumikið starfsfólk leggur mikla áherslu á að öllum gæðastuðlum sé fylgt og að umhverfissjónarmið séu höfð að leiðarljósi við starfsemi félagsins. Fyrirspurnir sendist á info@malbikstodin.is Sótt er um störfin á www.alfred.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsókn skal skila fyrir 28.2.2022 BÍLSTJÓRAR MEÐ MEIRAPRÓF Óskað er eftir bílstjóra í 100% starf fyrir akstur vörubíla félagsins. Bílstjóri verður hluti af teymi sem tekur að sér stórar sem smáar framkvæmdir, hvort sem um ræðir jarðvinnu og/eða malbikun fyrir bílastæði, stíga, götur og/eða vegi. HÆFNISKRÖFUR Meiraprófsréttindi. Góð samskiptafærni. Þjónustulund og jákvætt viðhorf. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. FLOTASTJÓRI Óskað er eftir flotastjóra sem sér um að skipuleggja og stýra akstri félagsins með hámarksnýtingu flotans að leiðarljósi. Flotastjóri sinnir stöðugu mati á flutningsgetu og bestun ferla. Hann fylgist með hæfni og venjum bílstjóra. Flotastjóri annast einnig samskipti innan félagsins um viðhald flotans. Umsjón og utanumhald með reikningum tengdum verkefnum flotans. Að mestu er um að ræða aðsetur í stjórnstöð félagsins fyrir utan reglulegar heimsóknir á verkstæðið og þátttöku í blöndun. HÆFNISKRÖFUR Reynsla í flotastýringu æskileg. Háskólamenntun er kostur. Þekking á vörubifreiðum er kostur. Framúrskarandi samskiptahæfni. Íslenska í rituðu og töluðu máli. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. VÉLSTJÓRI MALBIKSBLANDARI Óskað er eftir starfsmanni í 100% starf við framleiðslu á malbiki. Starfsmaður verður hluti af teymi sem framleiðir hráefni til malbiksframkvæmda með áherslu á gæði, þjónustu og umhverfissjónarmið. Starfsmaður þarf að hafa þekkingu á raf- og vélbúnaði. HÆFNISKRÖFUR Vélstjóramenntun kostur. Þekking á vinnuvélum kostur. Búa yfir góðum samskiptahæfileikum. Íslenska í töluðu máli æskileg. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. STARFSMAÐUR Á RANNSÓKNARSTOFU Óskað er eftir starfsmanni á rannsóknastofu við gæðaeftirlit. Fjölbreytt greiningavinna og eftirlit með framleiðslu félagsins. Starfsmaður þarf að vera lausnamiðaður og hafa getu til að leysa úr frávikum sem upp koma við dagleg störf. Starfsmaður tekur þátt í reglulegu framleiðslueftirliti og gæðamælingum til að tryggja að framleiðsla á malbiki uppfylli íslenska og evrópska staðla. HÆFNISKRÖFUR Nákvæm vinnubrögð. Framúrskarandi greiningarhæfni. Þekking á gæðamálum er kostur. Hæfni til að vinna í teymi. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. STARFSFÓLK VIÐ MALBIKUN Óskað er eftir starfsfólki í 100% starf við malbikun hjá félaginu. Starfsfólk verður hluti af teymi sem tekur að sér stórar sem smáar framkvæmdir. Frábær og nútímalegur tækjakostur fyrir starfsfólk sem fær þá þjálfun sem til þarf til að sinna starfinu. HÆFNISKRÖFUR Vinnuvélaréttindi æskileg en ekki krafa. Hæfni til að vinna í teymi. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. HJÓLASKÓFLA/VÉLAMAÐUR Á HJÓLASKÓFLU Óskað er eftir starfsfólki á hjólaskóflu sem verður hluti af teymi við framleiðslu Malbikstöðina að Esjumelum. HÆFNISKRÖFUR Vinnuvélaréttindi. Þekking á vinnuvélum er kostur. Búa yfir góðum samskiptahæfileikum. Íslenska í töluðu máli æskileg. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.